Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fyrstu árin eftir sjálfsvíg pabba þá fékk ég alltaf mikinn þunga í sálina þegar leið að jólum“

„Fyrstu árin eftir sjálfsvíg pabba þá fékk ég alltaf mikinn þunga í sálina þegar leið að jólum“

Anna Margrét Bjarna­dóttir hefur upp­lifað mikla sorg í sínu lífi og er for­eldra­laus í dag. Faðir hennar tók eigið líf er hann var aðeins 46 ára gam­all og fyrir sjö árum missti Anna svo móður sína úr krabba­meini.

Anna er búsett í Banda­ríkj­unum og starfar sem rit­höf­undur og sjálf­boða­liði. Nú þegar líða fer að jólum fannst henni rétt að fjalla um sorg­ina og greina frá eigin áföllum í líf­inu. Það gerir hún í áhrifa­ríkum pistli.

„Á aðfanga­dag í ár eru 23 ár liðin frá því að faðir minn tók eigið líf. Hann var þá 46 ára og ég 22 ára. Fyrir síð­ast­liðin jól upp­götv­aði ég að ég væri búin að lifa jafn lengi með pabba og án pabba. Í sumar voru átta ár síðan mamma dó úr krabba­meini og við systk­inin vorum orðin for­eldra­laus.

Fyrstu árin eftir sjálfs­víg pabba þá fékk ég alltaf mik­inn þunga í sál­ina þegar leið að jólum. Sér­stak­lega fannst mér nóv­em­ber oft erf­iður. En ég ákvað strax eftir að pabbi lést að reyna eins og ég gæti að njóta jól­anna enda ólst ég upp við mikla ást til jól­anna; mamma hlust­andi á jóla­lögin í útvarp­inu allan dag­inn, amma bak­andi 100 sortir og afi að missa sig í jóla­ser­í­unum. Nú eru þau öll látin og ég á engin ömmu eða afa á lífi. En það sem ég geri er að reyna eins og ég get að skapa ljúfa jólastemmn­ingu með minni fjöl­skyldu, taka upp fal­legu jóla­hlut­ina sem amma og mamma föndr­uðu, segja sögur af fjöl­skyldu­með­limum sem eru farnir og minn­ast þeirra.

Það þyrmir yfir marga þegar stytt­ist í jólin og einnig þegar fæð­ingar- og dán­ar­dagar fall­inna ást­vina nálg­ast. Síðan getur létt aðeins á fólki þegar dag­setn­ing­arnar eru liðnar. Stundum finnst okkur eins og aðrir eigi að skilja eða muna hvers vegna þyrmir yfir okkur á ákveðnum tímum árs­ins. En annað fólk les ekki hugs­anir okkar og því getur stundum verið betra að segja beint út við okkar nán­ustu eitt­hvað á þessa leið: “Æ, veistu, núna þyrmdi bara yfir mig sakn­að­ar­til­finn­ing, það er svo stutt í dán­ar­dag­inn/afmæl­is­dag­inn/jólin.” Per­sónu­lega finnst mér stundum hjálpa aðeins að kveikja á kerti fyrir þá sem ég er að minn­ast, setja upp­á­halds­tón­list­ina þeirra á fón­inn og hugsa fal­lega til þeirra.

Á síð­ast­liðnum fimm árum hafa verk­efnin sem ég hef unnið að nátengst föður- og móð­ur­miss­inum. Ég hef fundið mikla þörf fyrir að sinna sjálf­boða­störfum í tengslum við arf­geng krabba­mein. Sú vinna teng­ist minni reynslu að vera BRCA arf­beri og lifa með auk­inni áhættu á krabba­meini og að hafa misst marga aðstand­endur úr krabba­meini. Minn drif­kraftur í þess­ari vinnu hefur því verið mjög per­sónu­legur og teng­ist sterkt krabba­meini mömmu og því að við vissum ekki um BRCA mein­vald­andi breyt­ingu í fjöl­skyld­unni fyrr en það var of seint fyrir nokkra nána fjöl­skyldu­með­limi. Á fimm mán­uðum árið 2014 lét­ust mamma, amma og frændi, öll úr krabba­meini. Einnig hafa fleiri fjöl­skyldu­með­limir greinst með krabba­mein.

En það er annað verk­efni sem ég hef unnið að síð­ast­liðin ár og það er ekki síður per­sónu­legt. Bókin mín Tómið eftir sjálfs­víg – Bjargráð til að lifa með sorg­inni kom út í apríl á þessu ári. Í bók­inni er að finna 12 frá­sagnir ein­stak­linga sem hafa misst ást­vin í sjálfs­vígi og ég deili minni eigin reynslu af föð­ur­miss­inum og að hafa misst vin sem tók eigið líf þegar við vorum ung­lingar. Með útgáfu bók­ar­innnar heiðra ég minn­ingu þeirra beggja. Vonandi reyn­ist þessi bók gagn­leg þeim sem ganga í gegnum missi eftir sjálfs­víg eða skyndi­legan missi og ég vænti þess að les­and­inn finni styrk í að sjá hvernig aðrir hafa tek­ist á við sorg­ina og tómið sem eftir situr.

Í bók­inni er einnig að finna kafla með lýs­ingum sál­fræð­ings á hvernig sé að takast á við að missa ást­vin á þennan hátt. Í lokakafla bók­ar­innar fjöllum við Guðrún Jóna Guð­laugs­dóttir um lífið með sorg­inni og tökum saman ýmis bjarg­ráð fyrir syrgj­endur. Lítið hefur verið til af svona efni á íslensku og með útgáfu þess­arar bókar er þeirri miklu þörf von­andi mætt.

Eitt besta ráðið sem ég fékk frá einum við­mæl­enda minna hljómar ein­falt en getur oft verið flókið þegar um er að ræða þungt umræðu­efni eins og sorg eftir sjálfs­víg en það er að tala, tala og tala. Gefa öðrum hlut­deild í sorg okkar og til­finn­ingum.

Sumir við­mæl­enda bók­ar­innar hafa leitað til fag­að­ila eftir miss­inn en aðrir ekki. Margir þeirra síð­ar­nefndu hafa þó íhugað það á ein­hverjum tíma­punkti eða séð eftir að hafa ekki gert það. Það er aldrei of seint. Jafnvel mörgum árum eftir and­lát getur aðstoð fag­að­ila eða jafn­ingja reynst þörf og gagn­leg. Við getum haft ríka þörf fyrir að ræða þessi mál þegar önnur áföll dynja yfir síðar á lífs­leið­inni. Slík áföll kunna að ýfa upp gömul og djúp sár. Það skiptir máli að reyna að láta sorg­ina ekki verða að stórum steini inni í okkur. Reyna frekar að hugsa þetta eins og stein sem minnkar og mýk­ist með tím­anum, hann getur orðið að dem­anti eða lit­ríkum steini þegar frá líður.

Sjálf fór ég til sál­fræð­ings og hitti hana reglu­lega á meðan ég var að skrifa bók­ina. Þessi sjálfs­vinna var löngu orðin tíma­bær og án hennar hefði ég lík­lega ekki verið í stöðu til að klára bók­ina, sinna for­mennsku Brakka­sam­tak­anna og fjöl­skyld­unni minni. Í hrein­skilni sagt fór ég langt niður and­lega á síð­asta ári og var búin að missa trúna á því að ég gæti klárað bók­ina og sinnt áfram þessum þungu mál­efnum sem tengj­ast sjálfs­vígum, BRCA og arf­gengum krabba­meinum. En með því að mæta mér af meira mildi, taka eitt skref í einu og byggja mig upp and­lega þá komst ég á annan og betri stað. Munum að sýna sjálfum okkur mildi og hugsa fal­lega til okkar sjálfra. Komum fram við okkur sjálf eins og við myndum gera við okkar allra besta vin.

Ég lít til­baka yfir árið og fyllist auð­mýkt og þakk­læti til allra þeirra sem hafa stutt mig í skrif­unum og á veg­ferð­inni í tengslum við bók­ina og brakk­ann. Mitt mark­mið er að njóta sam­veru með mínum nán­ustu á aðvent­unni og um jólin. Einnig að heyra í fjöl­skyldu og vinum nær og fjær með hjálp tækn­innar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi