Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rafn Franklín er umhverfisvænn: „Trúi að gæðameiri matvörur muni síðar meir spara mér læknakostnað“

Rafn Franklín er umhverfisvænn: „Trúi að gæðameiri matvörur muni síðar meir spara mér læknakostnað“
Rafn Franklín.

Neytandi vik­unnar að þessu sinni Rafn Franklín, þjálf­ari og heilsu­ráð­gjafi hjá Hreyf­ingu heilsu­lind.  Ásamt því rekur hann einnig lítið fyr­ir­tæki og hlað­varp sem kall­ast 360 Heilsa þar sem hann fær ýmsa heilsu­sér­fræð­inga í við­töl og fræðir hlust­endur um leiðir til að efla heils­una sína og lífs­stíl. Hrafn býr í Garðabæ eins og er en er á leið­inni yfir í Mos­fells­sveit að upp­fylla lang­þráðan draum um „sveit í borg“ stemn­ingu með stutt í nátt­úru, hænur í garð­inum og fleira skemmti­legt.

Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum?
Ég spara yfir­leitt lítið í þeirri deild. Ég fórna ekki gæðum í mat fyrir verð­miða. Ég legg áherslu á að kaupa líf­rænar vörur þegar kostur gefst, kjöt­meti beint frá býli eða traustum upp­runa og dýr­ari olíur þar sem þær eru nær und­an­tekn­ing­ar­laust gæða­meiri en þær ódýr­ari. Ég trúi því að meiri eyðsla í gæða­meiri mat­vörur muni síðar meir spara mér lyfja- og lækna­kostnað.

End­ur­nýtir þú? Ertu með ráð til ann­arra?
Já, en ég mætti eflaust gera betur í þeim efnum. Ég flokka rusl, pappa, dósir, raf­hlöður og þess háttar á heim­il­inu. Svo förum við reglu­lega með illa nýttan fatnað í Rauða kross­inn eða Hjálp­ar­starf kirkj­unnar. Við höfum einnig tekið að okkur gömul hús­gögn heima og gert þau upp og gefið nýtt líf ásamt fleiru. Ef ég þyrfti að gefa eitt ráð væri það ein­fald­lega að staldra við áður en þú kaupir eitt­hvað eða hendir ein­hverju og nota hug­mynda­flugið.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?
Þegar ég versla mat eru gæði og holl­usta í fyr­ir­rúmi. Ég vel yfir­leitt íslenskt fram yfir erlent og elska að versla góðar sæl­kera­vörur frá íslenskum smá­fram­leið­endum.
Ég hef ekk­ert sér­stak­lega gaman af því að versla föt og geri því lítið af því og spái ekki nógu mikið í efnum sem eru notuð eða hvaðan þau eru. Ég á þó nokkrar skyrtur og boli úr líf­rænum bómul sem mér líður voða vel í. Svo á ég frá­bæra sæng frá lopi­draumur úr 100% hreinni íslenskri ull án allra eit­ur­efna sem er í miklu upp­á­haldi hjá mér!

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á?
Ætli það sé ekki græjur af allskyns tagi. Ég er pínu dellu­kall og fæ reglu­lega æði fyrir hinu og þessu. Þá á ég það oft til að sökkva mér ofan í við­fangs­efnið og kaupa mér allskyns græjur í kringum það. Yfir­leitt er það þó eitt­hvað sem ég nýti vel en stundum eitt­hvað sem endar sem ryk­safn­ari í geymsl­unni.

Skiptir umhverf­is­vernd þig máli?
Hún gerir það klár­lega og ég geri mitt besta til að leggja mitt af mörkum. Heil­brigður neyt­andi er umhverf­is­vænni neyt­andi. Breyt­ingin byrjar hjá ein­stak­lingnum og hver ber ábyrgð á sér sjálfum.

Tökum ábyrgð á eigin heilsu og tökum með­vit­að­ari ákvarð­anir í því sem við setjum í okkur og á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi