Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrettánda(ó)gleðin á Selfossi 1982: „Bensínsprengjur höfðu verið útbúnar og þrjár slíkar sprengdar“

Þrettánda(ó)gleðin á Selfossi 1982: „Bensínsprengjur höfðu verið útbúnar og þrjár slíkar sprengdar“

Þrett­ánda­gleðin á Selfossi hafði árin á undan oft verið ansi líf­leg en árið 1982 breytt­ist hún í algjörar óeirðir þegar um þrjá­tíu ung­menni tóku upp á því að loka götum bæj­ar­ins og ráð­ast á lög­reglu­menn með bens­ín­sprengjum og grjóti. Engin meiðsl urðu á fólki en einn lög­reglu­bíll var skemmdur í lát­unum. Þá var einni bens­ín­sprengju kastað á sam­komu­húsi, fullu af fólki.

DV fjall­aði um Þrett­ánda­gleð­ina dag­inn eftir:

Mikill æsingur á götum Selfoss í gær­kvöld: Ráðizt að lög­reglu með flösku- og grjót­kasti

Lög­reglu­bíll skemmdur og 30 manns fékk að heim­sækja fanga­geymslur

Mikill æsingur greip um sig á götum Selfoss í gær­kvöldi og þurfti lög­reglan aö fjar­lægja um þrjá­tíu manns af þeim sökum. Hin árlega þrett­ánda­gleði fór fram á Selfossi í gær­kvöldi en und­an­farin ár hefur sú gleði kostað múgæs­ing. Lög­reglan á Selfossi var því við­búin látum að þessu sinni og hafði fengið aukalið frá Reykja­vík sér til hjálpar. Strax er skemmt­unin var að byrja þurfti lög­reglan að byrja að fjar­lægja fólk vegna óspekta. Æstist leik­ur­inn til muna er leið á kvöldið en þá var hald­inn dans­leikur í Sel­foss­bíói. Nokkur ung­menni reyndu að loka götum bæj­ar­ins og er lög­reglan reyndi að stöðva leik­inn var hafizt handa gegn henni. Ung­mennin köst­uðu flöskum og grjóti að lög­reglu­mönnum og hlutu nokkrir þeirra meiðsl. Þá var einn af lög­reglu­bílum grýttur. Einnig var nokkuð um rúðu­brot í bænum. Að sögn lög­regl­unnar á Selfossi var gíf­ur­legur mann­fjöldi sam­an­kom­inn í bænum og margir komnir langt að. Það munu þó ein­ungis hafa verið heima­menn sem í ólát­unum stóðu. Þá sagði lög­reglan að búizt hefði verið við átökum eftir reynslu fyrri ára. Ekki var vitað hvaða stefna yrði tekin í áfram­hald­andi þrett­ánda­gleði á Selfossi. Margir munu þó telja að bezt væri að leggja gleð­ina niður. –

Nokkrum mán­uðum síðar birti DV frétt um málið sem þá hafði verið rann­sak­aði um nokk­urt skeið. Kom þar í ljós að óeirð­irnar hefðu verið vand­lega skipu­lögð af nokkrum ein­stak­lingum. Þó að ein­ungis hafi þremur bens­ín­sprengjum verið kastað hafi verið búið að útbúa nokkra tugi þeirra.

Þett­ánda­ó­lætin á Selfossi voru vand­lega und­ir­búin af nokkrum ein­stak­lingum

Höfðu útbúið nokkra tugi bens­ín­sprengja —að því er fram hefur komið við rann­sókn

Óeirð­irnar sent urðu á Selfossi á þrett­ánd­anum hafa heldur belur dregið dilk á eftir sér, fyrir suma að minnsta kosti. Lög­reglu­yf­ir­völd i Árnes­sýslu hafa rann­sakað aðdrag­anda og aðild ein­stak­linga að ólát­unum og voru 40 ein­stak­lingar yfir­heyrðir vegna þessa, ýmist sem vitni eða sak­born­ingar. Þar af voru 5 yngri en 16 ára. Ljóst virð­ist að ólætin voru vand­lega und­ir­búin af nokkrum ein­stak­lingum. Bens­ín­sprengjur höfðu verið útbúnar og þrjár slíkar sprengdar fyrir mið­nætti þetta kvöld. Þar af var einni kastað í vegg sam­komu­húss­ins um mið­nætti, en þá voru milli 250 og 300 manns inni í hús­inu. 32 bens­ín­flöskur voru gerðar upp­tækar úr bif­reið einni um kl. 23. Eig­end­urnir höfðu ekki náð að sprengja neitt en við­ur­kenndu að slíkt hefði verið ætl­unin. Skömmu áður höfðu 25 heima­til­búnar púð­ur­sprengjur verið teknar úr annarri bif­reið. Hátt i 200 flöskum var safnað saman og stolið á dans­leiknum i Sel­foss­bíói og voru þær ætl­aðar til óspekta síðar. Eldur var kveiktur á Hafn­arplan­inu um kl. 22 og síðan, um það leyti er dans­leiknum var að ljúka, var ruslagámi ýtt út á Eyrarveg og kveikt í honum. Þegar lög­reglan kom að var tekið á móti henni með flöskukasti og var það upp­haf ólát­anna. Þá fyrst var lög­reglu­flokk­ur­inn kall­aður út, segir í yfir­liti frá rann­sókn­inni. Á meðan lög­reglan reyndi að dreifa hópnum var kastað í hana flöskum, sumum fullum af bens­íni og svo grjóti. Fyr­ir­liði lög­reglu­liðs­ins, sem frá Reykja­vík kom, heim­il­aði mönnum sínum að beita kylfum til varnar, en til þess kom ekki. Engin slys urðu á fólki og ekk­ert telj­andi eigna­tjón, utan skemmdir á lög­reglu­bif­reið og rúðu­brot í barna­skól­anum. Lög­reglan í Árnes­sýslu hefur nú kært stóran hóp ung­menna lil sýslu­manns. Að sögn Karls F. Jóhanns­sonar full­trúa er sumum þeim málum lokið með sektum og dómsátt. Öðrum og alvar­legri brotum verður vísað til rikissak­sókn­ara á næst­unni. Ekki liggur ljóst fyrir hversu margir það eru sem hljóta refs­ingu eða sektir fyrir þátt­töku í óeirð­unum. Engin kæra eða kvart­anir hafa borizt sýslu­manns­emb­ætt­inu vegna fram­göngu lög­regl­unnar þetta kvöld

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi