Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Blindu hjónin fengu loksins að fljúga til Íslands: „Þetta mál er engan veginn búið“

Blindu hjónin fengu loksins að fljúga til Íslands: „Þetta mál er engan veginn búið“

Hjón sem eru blind og flug­fé­lagið SAS hefur meinað ítrekað um flug­far eru loks komin til lands­ins – í þriðju til­raun.

Kemur fram á vef RÚV að kona sem var í sama flugi hafi verið hjón­unum innan handar og dugði það til að þau fengu að fljúga hingað heim.

Er það tekið fram að hjónin ætla að leita réttar síns vegna máls­ins.

Eyþór Kamban Þrast­ar­son, Emilía Pykarinou og árs­gömul dóttir þeirra áttu flug frá grísku höf­uð­borg­inni Aþenu til höf­uð­borgar Dan­merkur, Kaup­manna­hafnar, fyrir rúmri viku síðan, og þaðan áfram til Íslands.

Hjónin voru með bók­aðan miða, en þeim var vísað frá í tvígang á föstu­degi og sunnu­degi.

Ástæðan sem þeim var gefin var sú að hjónin þyrftu að greiða fyrir fylgd­ar­mann; að öryggi væri ekki tryggt um borð:

„Flug­fé­lagið krafð­ist þess að við værum í fylgd ann­arrar mann­eskju. Okkur tókst með herkjum að finna aðra íslenska konu sem að var að ferð­ast með þessu flugi í raun viku eftir að við áttum að ferð­ast, en sama leggnum með SAS frá Grikk­landi til Íslands,“ segir Eyþór.

Blindra­fé­lagið sem og ræð­is­maður Íslands í Grikk­landi hafa farið í málið til að fólkið fengi að fljúga burtu frá Grikk­landi með SAS:

„Þetta mál mun bara fara áfram. Þetta er engan veg­inn búið. Við erum engan veg­inn sátt við það að við höfum verið skikkuð til að finna mann­eskju til að fljúga með okkur og hvað þá að borga fyrir það. Við þurftum að vísu ekki að borga núna því að þessi mann­eskja var bara með sinn eigin miða og var að fara í sama flug,“ segir Eyþór og bendir á að 5 ára barn geti ferð­ast án fylgd­ar­manns.

Hann telur að það að hjónin ferð­uð­ust með eins árs dóttur sína með sér hafi haft áhrif á ákvörðun flug­fé­lags­ins um að hleypa þeim ekki um borð, og aðspurður svarar Eyþór því hvort hann og kona hans treysti sér sem­sagt til að sjá um eins árs gamla barn:

„Já ann­ars hefðum við ekki mætt út á flug­völl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi