Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir meirihlutann fella allar tillögur: „Þótt þessar tillögur væru orðrétt úr þeirri eigin munni“

Segir meirihlutann fella allar tillögur: „Þótt þessar tillögur væru orðrétt úr þeirri eigin munni“
Guð­mundur Árni Stef­áns­son er sig­ur­veg­ari.

Vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og odd­viti flokks­ins í Hafn­ar­firði, Guð­mundur Árni Stef­áns­son skrifar grein sem ber yfir­skrift­ina: Fram­sækni eða fælni og hefst svona:

„20 til­lögur sem til bóta horfa fyrir bæj­ar­búa í Hafn­ar­firði voru fluttar af jafn­að­ar­mönnum á fundi bæj­ar­stjórnar 7.des­em­ber síð­ast­lið­inn. Þær voru allar felldar! Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins í bæj­ar­stjórn máttu ekki til þess hugsa að sam­þykkja eina ein­ustu þeirra, jafn­vel þótt margar þessar til­lögur væru orð­rétt úr þeirri eigin munni; úr meiri­hluta­sátt­mála þess­ara flokka, sem þeir kynntu í vor! En af því að Sam­fylk­ingin lagði þetta til, þá var ekki hægt að sam­þykkja neitt – ekki eina til­lögu!“

Guð­mundur Árni nefnir að „jafn­að­ar­menn lögðu til að sam­þætta heim­il­is­hjálp og heima­hjúkrun í Hafn­ar­firði. Það felldu sjálf­stæð­is­menn og fram­sókn. Jafn­arfólk lagði til að þrýsta á rík­is­valdið um bygg­ingu nýrrar heilsu­gæslu. Og bygg­ingu nýs hjúkr­un­ar­heim­ilis í Hamra­nesi fyrir eldri borg­ara sem þurfa umönnum. Mál sem hafa verið á dag­skrá árum saman, en ekk­ert miðar. Báðum þessum brýnu og mik­il­vægu málum var hafnað.“

Guð­mundur Árni er hissa á því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn skuli „fella eigin til­lögur Hér skulu nefnd nokkur dæmi um mál sem meiri­hlut­inn hafn­aði á bæj­ar­stjórn­ar­fund­inum: Það má ekki fjölga félags­legum íbúðum í Hafn­ar­firði, þrátt fyrir gríð­ar­lega langan biðlista og brýna þörf.

Það er ekki á dag­skrá að bjóða íslensku­kennslu á vegum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar fyrir íbúa bæj­ar­ins, sem eru af erlendu bergi brotnir.

Það má ekki tryggja hús­næði fyrir Leik­fé­lag Hafn­ar­fjarðar.

Það á ekki að leysa hús­næð­is­vanda Bretta­fé­lags­ins. Né Dans­í­þrótta­fé­lags­ins.

Það má ekki hækka frí­stunda­styrk til barna og ung­menna.

Því er hafnað að bjóða upp á frítt í strætó fyrir ung­linga á aldr­inum 12-15 ára.

Það var fellt að styrkja starf­semi Mark­aðs­skrif­stofu Hafn­ar­fjarða. Það skal ekki gera betur í að lag­færa grunn- og leik­skóla­lóðir. Því er neitað að gera átak í aðgeng­is­málum fyrir fatlað fólk og auka umferð­ar­ör­yggi við gang­brautir bæj­ar­ins. Og alls ekki skal farið í við­ræður við ófaglært starfs­fólk leik­skól­anna um kjara­jöfnun gagn­vart öðrum sveit­ar­fé­lögum.“

Hann vill meina að „þessar til­lögur og fleiri voru ekki kostn­að­ar­samar, enda var gert ráð fyrir tekjum á móti í fjórum sjálf­stæðum tekju­til­lögum jafn­að­ar­manna – sem voru auð­vitað líka felldar.

Raunar voru tekju­til­lögur jafn­að­ar­manna langt umfram kostnað við úrbæt­urnar. Þessi gam­al­dags pól­tík vald­hafa í meiri­hluta Hafn­ar­fjarðar eru lýsandi dæmi um póli­tískt kjörna vald­hafa, sem eru hræddir og óvissir um stöðu sína. Það er ekki sama hvaðan gott kemur.

Ef það kemur frá fjórum bæj­ar­full­trúum Sam­fylk­ing­ar­innar – jafn­að­ar­flokks Íslands, þá skal and­æfa og hafna.

Það er sum­part skilj­an­legt að bæj­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks séu óör­uggir og óvissir og viti ekki gjörla hvað skal til bragðs taka. Þeir sjá það og skilja að eftir meira en 8 ára stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins – lengst af í sam­starfi við Fram­sókn­ar­flokk­inn, þá hefur þjón­ustu bæj­ar­ins hrakað – um leið og fjár­hags­staða bæj­ar­ins er afar við­kvæm. Þar má ekk­ert út af bregða.“

Guð­mundur Árni segir að „rekstr­ar­halli er við­var­andi, enda þótt skuldir auk­ist ár frá ári. Og jafn­vel líka þótt fast­eigna­skattar séu hækkað um tugi pró­senta.

Jafn­að­ar­menn vilja sjá sterkan Hafn­ar­fjörð þar sem bjart­sýni, vel­ferð og vel­sæld ríkir meðal bæj­ar­búa. Þar sem allir eiga kost á öfl­ugri grunn­þjón­ustu óháð efna­hag og fram­sækið atvinnu­líf er ríkj­andi.

Það vantar mikið upp á að þessi grunn­gildi séu í heiðri höfð. Þetta er spurn­ing um stjórn­ar­hætti sem ein­kenn­ast af fram­sækni eða fælni og ótta við núið og fram­tíð­ina. Það þarf ein­fald­lega jafn­að­ar­menn til for­ystu í Firðinum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi