Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brim neitaði að borga andlega veikum sjómanni staðgengislaun – Áfrýjaði til Landsréttar

Brim neitaði að borga andlega veikum sjómanni staðgengislaun – Áfrýjaði til Landsréttar
Guð­mundur Krist­jáns­son í Brimi.

Útgerð­ar­fé­lagið Brim hefur áður brotið á rétt­indum and­lega veiks sjó­manns. Fyrr á þessu ári stað­festi Lands­réttur nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í máli sjó­manns sem taldi sig eiga inni stað­geng­is­laus hjá Brim eftir and­leg veik­indi.

Í kvöld­fréttum Rúv í gær var sýnt við­tal við sjó­mann­inn Boga Theodór Ell­erts­son og eig­in­konu hans, Þórhildi Helgu Þor­leifs­dóttur. Lýstu þar hjónin því hvernig Bogi brotn­aði niður eftir að hafa misst barna­barn sitt í fyrr og eftir skotárás­ina á Blöndu­ósi á þessu ári þar sem bestu vinir hans urðu fyrir árás manns, með þeim afleið­ingum að konan lést og mað­ur­inn særð­ist alvar­lega. Bogi var í miðju túr er árásin á Blöndu­ósi varð og áfallið var gríð­ar­legt en hann fékk undir eins tauga­á­fall. Í við­tal­inu furð­uðu hjónin sig á við­brögðum og vinnu­brögðum útgerð­ar­fé­lags­ins og töl­uðu um að forn­esku­legar hug­myndir um vinnu­staða­menn­ingu ríki víða í sjáv­ar­út­veg­inum á Íslandi. Brim sagði Boga upp eftir að hann óskaði eftir veik­inda­leyfi.

Brim sendi frá sér yfir­lýs­ingu eftir kvöld­frétt­irnar þar sem fyr­ir­tækið sagð­ist harma að „verk­ferlar félags­ins hafi brugð­ist“ í máli Boga. Hét fyr­ir­tækið því að end­ur­skoða verk­ferla félags­ins í svip­uðum aðstæðum.

Ekki einsdæmi

Mál Boga er ekki eins­dæmi hjá Brim en fyrr á þessu ári stað­festi Lands­réttur nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í máli sjó­manns sem taldi sig eiga inni stað­geng­is­laun hjá Brim eftir and­leg veik­indi sem hann glímdi við eftir túr hjá útgerð­inni.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu árið 2021 að sjó­mað­ur­inn hafi átt rétt á stað­geng­is­launum. Brim áfrýj­aði hins vegar dómnum til Lands­réttar á þeim for­sendum að sjó­mað­ur­inn hafi sótt um þau laun of seint. Krafðist útgerða­fyr­ir­tækið þess að það yrði sýknað af kröfum sjó­manns­ins.

Í dómi Lands­réttar var mál­inu meðal ann­ars lýst á eft­ir­far­andi hátt:

„Stefn­andi starf­aði sem háseti hjá stefnda. Byggir hann á því að í veiði­ferð[…]hafi hann veikst, en veiði­ferðin stóð yfir 26. febr­úar 2019 til 4. mars sama ár. Stefn­andi kveðst hafa komið óvinnu­fær í land og haft sam­band við B, heim­il­is­lækni sinn. Stefn­andi höfðar mál þetta til  inn­heimtu á stað­geng­ils­launum í tvo mán­uði sem hann byggir á að stefnda beri að greiða honum vegna óvinnu­færni stefn­anda. Stefndi mót­mælir því ekki að stefn­andi hefði að öllu jöfnu á rétt til stað­geng­ils­launa í tvo mán­uði  ef  til  óvinnu­færni kæmi. Stefndi hefur hins vegar ekki fall­ist á að greiða  stefn­anda stað­geng­ils­laun á þeirri for­sendu að hvorki séu fyrir hendi form­skil­yrði né efn­is­leg skil­yrði fyrir rétti stefn­anda til greiðslu umkraf­inna launa.“

Lands­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að dómur Hér­aðs­dóms Reykja­víkur skildi standa og að Brim hf. skyldi gert að greiða sjó­mann­inum 3.703.706 krónur með drátt­ar­vöxtum sem og 950.000 krónur í máls­kostnað vegna máls­með­ferðar við hér­aðs­dóm­inn og 1.250.000 krónur í máls­kostnað fyrir Lands­rétti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi