Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þegar Dorrit flutti lögheimili sitt til Bretlands: „Ég sakna Sámur meira en ég sakna Ólafur“

Þegar Dorrit flutti lögheimili sitt til Bretlands: „Ég sakna Sámur meira en ég sakna Ólafur“
Mynd. skjá­skot/RÚV

Sumarið 2013 fékk íslenska þjóðin þær óvæntu fréttir að for­seta­frú lands­ins, Dorrit Moussaieff væri búin að færa lög­heim­ili sitt til Bret­lands og það rétt eftir end­ur­kjör Ólafs Ragnars Gríms­sonar.

Dorrit var gagn­rýnd fyrir þessa til­færslu á lög­heim­ili sínu enda verða hjón að hafa sama lög­heim­ili, sam­kvæmt íslenskum lögum. Sumir töldu hafa fara þennan flutn­ing vegna skatta­mála bæði hér og í Bret­landi en hér var á auð­legð­ar­skattur. Þvertók Dorrit fyrir það og sagði ástæð­una þá að for­eldrar hennar væru orðnir háaldr­aðir og hún þyrfti að hjálpa þeim með skart­gripa­veldið sem þau áttu í Bret­landi.

Frétta­blaðið fjall­aði um málið á sínum tíma:

Dorrit búin að flytja lög­heim­ilið úr landi

Lög­heim­ili Dorritar Moussaieff er nú í Bret­landi. Ástæðan er sögð „heim­ili, störf og fjöl­skylda“ Dorritar í London. Samkvæmt lögum verða hjón að hafa sama lög­heim­ili. For­seta­emb­ættið segir opin­berar stofn­anir ekki hafa gert athuga­semdir.

Dorrit Moussaieff for­seta­frú hefur fært lög­heim­ili sitt til Bret­lands og er því ekki lengur skráð til heim­ilis með Ólafi Ragnari Gríms­syni, for­seta Íslands, á Bessa­stöðum. Flutn­ingar lög­heim­ilis Dorritar frá Bessa­stöðum til Bret­lands gengu í gegn í fyrra, án athuga­semda frá Þjóðskrá, en sam­kvæmt íslenskum lögum þurfa hjón að vera skráð á sama lög­heim­ili. Örnólfur Thorsson for­seta­rit­ari segir skrán­ing­una hafa gengið í gegn með venju­bundnum hætti, án athuga­semda frá Hagstofu og Þjóðskrá. „Breyt­ingin teng­ist heim­ili, störfum og fjöl­skyldu Dorritar í London,“ segir Örnólfur. „Það var engin athuga­semd gerð af hálfu opin­berra aðila.“ Spurður hvort Dorrit og Ólafur hafi slitið sam­vistir segir hann svo ekki vera. „Að sjálf­sögðu eru þau ekki búin að slíta sam­vistir og hún verður auð­vitað hér á þjóð­há­tíð­ar­dag­inn.“ Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Þjóðskrá þurfa hjón að slíta sam­vistir til þess að geta haft sitt­hvort lög­heim­ilið sam­kvæmt lögum. Margrét Hauks­dóttir, for­stjóri Þjóð­skrár, segir að fólk þurfi að fram­vísa stað­fest­ingu á því að það sé búið að slíta sam­vistir eða sé að skilja að borði og sæng, ætli annað hjón­anna að flytja lög­heim­ili sitt. Svo­leiðis séu lögin og engar und­an­tekn­ingar gerðar á því að und­an­skildum þing­mönnum, ráð­herrum og starfs­mönnum sendi­ráða erlendis. Hún geti þó ekki tjáð sig um ein­stök mál. Greint var frá því í fyrra að Dorrit greiðir ekki auð­legð­ar­skatt hér á landi, þrátt fyrir að vera búsett hér og gift Íslend­ingi. Fjöl­skylda hennar er vell­auðug og voru for­eldrar hennar einir fremstu skart­gripa­safn­arar heims. Eignir fjöl­skyld­unnar eru metnar á tugi millj­arða og hefur hún meðal ann­ars ratað á lista Times um auð­ug­ustu fjöl­skyldur heims. Bæði for­seti Íslands og maki hans greiða skatta og gjöld af tekjum sínum og eru hjón lögum sam­kvæmt sam­sköttuð. Dorrit fékk íslenskan rík­is­borg­ara­rétt árið 2006, þremur árum eftir að hún gift­ist Ólafi Ragnari. Dorrit og Ólafur trú­lof­uð­ust árið 2000 og giftu sig á afmæl­is­degi for­set­ans þann 14. maí 2003.

„Hjón eiga sama lög­heim­ili“

„Hjón eiga sama lög­heim­ili. Hafi þau sína bæki­stöð­ina hvort skal lög­heim­ili þeirra vera hjá því hjón­anna sem hefur börn þeirra hjá sér. Ef börn hjóna eru hjá þeim báðum eða hjón eru barn­laus skulu þau ákveða á hvorum staðnum lög­heim­ili þeirra skuli vera, ella ákveður Þjóðskrá Íslands það. Hjón, sem slitið hafa sam­vistir, eiga sitt lög­heim­ilið hvort.“ Úr 7. grein laga um lög­heim­ili.

Í frétt Rúv um málið var rætt við skatta­sér­fræð­inga sem gáfu lítið fyrir rök for­seta­frú­ar­innar. Sögðu þeir lík­legra væri að ástæðan fyrir lög­heim­il­is­flutn­ingum væru þrengri reglur um hem­il­is­festi í Bret­landi.

Frétt Rúv hljóð­aði eft­ir­far­andi:

Skatta­sér­fræð­ingar gefa lítið fyrir þau rök að Dorrit Moussaieff hafi þurft að flytja lög­heim­ili til Bret­lands til að tryggja áfram­hald­andi rekstur fyr­ir­tækis for­eldra sinna. Líklegra sé að þrengri reglur um heim­il­is­festi í Bret­landi séu ástæðan.

Fréttir gær­dags­ins um að Dorrit Moussaieff, eig­in­kona Ólafs Ragnars Gríms­sonar, hafi flutt lög­heim­ili sitt til Bret­lands hafa vakið mikla athygli og spurn­ingar um ástæð­una fyrir þess­ari ákvörðun. For­set­inn sagði í við­tali í fréttum RÚV í gær að Dorrit standi frammi fyrir því hvort fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið eigi að halda áfram eða ekki. Flutn­ingur á lög­heim­ili skiptir þar litlu sem engu máli að mati þeirra skatta­sér­fræð­inga sem frétta­stofa hefur rætt við. Fjöldi dæma sé um að fólk reki fyr­ir­tæki í öðru landi en þar sem það á lög­heim­ili, og slíkt skil­yrði myndi reyndar brjóta gegn EES reglum.

Flutn­ingur á lög­heim­ili breytir ekki skatt­skyldu, meg­in­reglan er að búseta ræður því, og þá vaknar spurn­ingin: hvar á að skatt­leggja Dorit Moussaieff, hér eða í Bret­landi?

Samkvæmt tví­skött­un­ar­samn­ingi við Bretland eru nokkrir þættir sem ráða þeirri úrlausn. Í fyrsta lagi má nefna fast heim­ili, sem í hennar til­viki er bæði á Bessa­stöðum og í London. Annar þáttur er mið­stöð per­sónu­legra hags­muna. Dorrit er gift Ólafi Ragnari og hefur þannig rík per­sónu­leg tengsl á Íslandi, en á for­eldra og fjár­hags­lega hags­muni í Bret­landi. Spurn­ingin er hvort þau tengsl eru sterk­ari en tengslin við Ísland. Þriðji þátt­ur­inn snýr að dval­ar­tíma, og í því sam­hengi hafa bresk yfir­völd nýlega þrengt reglur, sem voru frjáls­legar og auð­ugt fólk, þar á meðal íslend­ingar hafa nýtt sér á und­an­förnum árum.

Rúv gerði einnig þekkt við­tal við Dorrit og Ólaf Ragnar þar sem for­seta­frúin var spurð nánar út í þessa ákvörður og for­set­inn var einnig spurður út í málið. „Heldurðu að ég vilji vera án Sámur minn? Ég sakna Sámur meira en ég sakna Ólafur. Ólafur getur komið í heim­sókn til mín, Sámur má ekki koma í heim­sókn til mín,“ sagði Dorrit er hún var spurð hvort hún ætl­aði að dvelja minna á Íslandi en áður.

Hægt er að horfa á mynd­bandið hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi