Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Barnafátækt á Íslandi – Í landi auðs þar sem þúsundir barna líða skort

Barnafátækt á Íslandi – Í landi auðs þar sem þúsundir barna líða skort

Ísland er meðal auð­ug­ustu landa heims­ins sam­kvæmt nýj­ustu tölum. Hér er alltaf talað um vel­ferða­ríkið Ísland og stjórn­mála­menn berja sér á brjóst og tala um góða stöðu þjóð­ar­bús­ins og fleira í þeim dúr. Þrátt fyrir ríki­dæmi Íslands búa tug­þús­undir Íslend­inga undir fátækt­ar­mörkum, þar af fleiri þús­und börn. Hvernig má það vera? 

Í nýjum tölum frá Global Finance tíma­rit­inu má sjá að Ísland er 17 rík­asta land heims, af rétt undir 200 löndum. Erum við fyrir ofan stór lönd á borð við Þýska­land, Svíþjóð, Ástralíu og Kanada en rétt fyrir neðan Austu­ríki, Holland og Danmörku, svo nokkur séu nefnd. Þá má nefna að í lífs­kjara­rann­sókn Hag­stof­unnar fyrir árin 2019-2021 kom fram að íslensk heim­ili telja gæði eigin lífs­kjara í, eða nálægt, sögu­legu hámarki. Þar kom fram að hlut­fall heim­ila sem eiga erfitt með að láta enda ná saman hefði aldrei verið lægra og aldrei hefðu færri talið byrði hús­næð­is­kostn­aðar þungan. Hlutfall heim­ila sem sögð­ust búa við efn­is­legan skort var nálægt sögu­legu lág­marki og aldrei höfðu færri heim­ili sagst eiga í erf­ið­leikum með að mæta óvæntum útgjöldum. Ísland á sem sagt til hnífs og skeiðar. Það er að segja þjóð­ar­búið og meiri­hluti Íslend­inga. En af þeim ríf­lega 375.000 hræðum sem hér búa eru um 9% lands­manna undir lág­tekju­mörkum sam­kvæmt tölum Hagstofu Íslands en árið 2020 bjuggu 10.000 börn á Íslandi við fátækt, þar af 3.000 við sára fátækt.

Þáttur Kveiks sem birt­ist á skjánum fyrir tveimur árum síðan, vakti gríð­ar­lega athygli og má segja að hafi vakið marga Íslend­inga til umhugs­unar en þátt­ur­inn fjall­aði um fátækt á Íslandi. Þar kom fram að verst stöddu ein­stak­ling­arnir á Íslandi eru ein­stæðir for­eldrar, öryrkjar og inn­flytj­endur en börn sem alast upp í fátækt fá ekki sömu tæki­færi og önnur börn og eru þau lík­legri til að lifa við fátækt alla sína ævi. Í þætt­inum kom fram að hverju sinni búi um 18 til 35 þús­und manns við fátækt á Íslandi eða 5-10% lands­manna en í ár er það um 9%. Af þeim fjölda eru það um sjö til tíu þús­und sem býr við sára fátækt. Í 17 rík­asta landi heims. Árið 2020 bjuggu 11.1% barna 0-15 ára við fátækt hér við land.

Skilgreining á fátækt

Í Kveiks­þætt­inum var rætt við einn helsta sér­fræð­ing Íslend­inga á sviði fátæktar, Kolbein Hólmar Stef­áns­son. Sagði hann að við þekktum fátækt er við sjáum hana en að mæla hana væri annað mál. „Við erum oft að nálg­ast hana með ýmsum ólíkum mæl­ingum.“ Algeng­ast sé að miða við ákveð­inn punkt í tekju­dreif­ing­unni. „Og allir sem eru fyrir neðan hann á til­teknum tíma­punkti eru taldir búa við alla vega aukna hættu eða auknar líkur á fátækt,“ sagði Kolbeinn í við­tali við Kveik. Segir í þætt­inum að miðað við þessa skil­grein­ingu „eiga allir ein­stak­lingar sem eru með ráð­stöf­un­ar­tekjur undir 239.200 krónum á mán­uði á hættu að búa við fátækt. Og eftir því sem fjöl­skyldur eru stærri, þeim mun meiri þurfa ráð­stöf­un­ar­tekj­urnar að vera. Þannig er til dæmis við­miðið fyrir ein­stæða móður með eitt barn 310.960 krónur, fyrir ein­stæða móður með tvö börn er það 382.720 krónur, fyrir hjón er við­miðið 358.800 og fyrir hjón með eitt barn er það 430.560 krónur.“ Tekið skal fram að þessar tölur eru tveggja ára gamlar og hafa því breyst eitt­hvað á milli ára.

Samkvæmt þessum tölum er stór hópur fólks sem fær örorku, félags- og atvinn­leys­is­bætur, elli­líf­eyri eða er í lág­launa­störfum, undir lág­tekju­mörkum. „Við sjáum að það telst ekki búa við fátækt sam­kvæmt þeirri mæl­ingu en af því að það er langvar­andi þarna þá er hægt og rólega búið að éta upp allt sparifé og láns­traust og skuld­irnar hafa hrann­ast upp þá ertu komin með fólk sem raun­veru­lega býr við fátækt það nær ekki að standa undir nauð­þurftum til dæmis,“ sagði Kolbeinn í Kveik­þætt­inum marg­um­tal­aða og bætti við að um það bil þrír af hverjum fjórum ein­stak­lingum undir lág­tekju­marki, sé fólk í vinnu.

Ekki eru allir sam­mála að lág­tekju­mörkin gefi endi­lega skýra mynd af fátækt en önnur mæl­ing er skortur á efn­is­legum gæðum. Eigi þrennt við af eft­ir­far­andi lista, býr fólk við fátækt. Passi fleira á list­anum við, býr fólk við sára­fá­tækt.

  1. Hefur lent í van­skilum hús­næð­is­lána eða ann­arra lána vegna fjár­skorts á síð­ast­liðnum 12 mán­uðum.
  2. Hefur ekki efni á að fara árlega í viku­langt frí með fjöl­skyld­unni.
  3. Hefur ekki efni á kjöti, fiski eða sam­bæri­legri græn­met­is­mál­tíð að minnsta kosti annan hvern dag.
  4. Getur ekki mætt óvæntum útgjöldum.
  5. Hefur hvorki efni á heima­síma né far­síma.
  6. Hefur ekki efni á sjón­varps­tæki.
  7. Hefur ekki efni á þvotta­vél.
  8. Hefur ekki efni á bíl.
  9. Hefur ekki efni á að halda hús­næð­inu nægj­an­lega heitu.Hægt er að lesa alla grein­ina í nýjasta tölu­blaði Mannlífs hér.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi