Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

18 ára gift í Bandaríkjunum – Þriðji partur

18 ára gift í Bandaríkjunum – Þriðji partur

Síðast end­aði ég á að segja ykkur frá því þegar ég komst að fram­hjá­haldi míns fyrr­ver­andi  eig­in­manns og ofbeld­inu sem gekk á í hjóna­bandi okkar.

Fyrri frá­sögn lauk þegar hann hvarf í enn eitt skiptið. Hvert fór hann? Jæja, sagan sem mér var sögð var lyg­inni lík­ust  –  enda örugg­lega lygi. Það var að morgni þegar hann loks kom heim í sömu  föt­unum og þegar hann fór, ég viti mínu fjær af áhyggjum og spurði hann  hvert hann hafi farið og hvar hann hefði verið? Hann svarar mér að hann hafi verið settur í flug­vél og flogið með hann og rest­ina af her­deild­inni út í miðja eyði­mörk og hlut­irnir sem hann hafi séð væru ógeðs­legir.

Hann segir mér að það sé verið að gera rann­sóknir á fólki með því að blanda saman dýrum og mönnum og hann hafi séð alls kyns hluti sem væru of hrylli­legir til að útskýra fyrir mér. Hann segir mér að her­deildin hafi verið í sér­stakri þjálfun varð­andi að vernda þetta og einnig í þjálfun við hylma yfir kjarn­orku­vopnum. Ég var 18 ára og gleypti við þessu eins og ekk­ert væri en svaf ekki vel svo vikum skipti að ímynda mér að þetta úrkynj­aða „fólk“ myndi sleppa.

Þegar þarna er komið við sögu er að  nálg­ast jól og minn fyrr­ver­andi stingur upp á því að við fengjum með­leigj­anda til að flytja inn með okkur því það væri svo dýrt að leigja bara við tvö, þrátt fyrir að her­inn væri að greiða meiri­hluta leig­unnar. Ég sam­þykki það en þó með trega, þar  til að hann nefnir nafn á stúlku sem var vin­kona mín. Þá segi ég honum að ég sé sátt við það.

Hún byrjar að hanga með okkur alla daga en flytur ekki inn. Mig fer að gruna að það sé eitt­hvað  á milli þeirra því hún var allt í einu orðin svo skrítin í kringum okkur. Ég geng á hann með það og  hann sver við líf sitt að það sé ekk­ert í gangi en ég bara vissi það, annað gat ekki verið.

Nokkrum dögum seinna er mál­efnið farið af borð­inu varð­andi með­leigj­anda og hún hætt að umgang­ast okkur. Jólin líða og ég fer að ókyrr­ast og langar að fara í heim­sókn til vin­konu  minnar sem bjó í öðru fylki. Um leið og ég nefndi það var hann til í að kaupa miða. Enginn miði  var keyptur til baka enda trúði ég honum þegar hann sagði mér að það væri bara best að kaupa  miða með stuttum fyr­ir­vara.

Þegar ég vildi koma heim – ég fer í byrjun jan­úar 2001. Það var í síð­asta skiptið sem ég sá hann þegar hann kvaddi mig á flug­vell­inum. Ég lendi í Nebraska og vin­kona mín tekur á móti mér á flug­vell­inum og mikið var gaman hjá okkur þessa viku sem ég hafði hugsað mér að vera. Svo hringi ég í minn fyrr­ver­andi og bið hann að kaupa miða fyrir mig heim, hann svarar mér með því að það sé ekki til pen­ingur fyrr en um mán­að­ar­mót. Jæja, ég tala við vin­konu mína og hún er bara ánægð með meiri tíma með mér og ég hringi í vinn­una og segi þeim frá­vþví að ég verði lengur en ég hélt að allir væru sáttir.

Hægt er að lesa rest­ina af þess­ari flottu lífs­reynslu­sögu í nýjasta tölu­blaði Mannlífs en það er hægt akkurat hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi