Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorláksmessuslagurinn 1968 – Er ungkommar slógust við lögregluna

Þorláksmessuslagurinn 1968 – Er ungkommar slógust við lögregluna
Mót­mæl­endur á meðan allt lék í lyndi Mynd: Lubbi

Það var á Þor­láks­messu árið 1968 að mót­mæla­ganga var haldin í Reykja­vík gegn Víetnam stríð­inu sem þá stóð yfir. Lög­reglan var ósátt við þá leið sem ganga átti með til­heyr­andi trufl­unum í jóla­ösinni og sló í brýnu á milli mót­mæl­end­anna og lög­regl­unnar. Um 12 ein­stak­lingar voru hand­teknir en nokkir ein­stak­lingar úr báðum fylk­ingum hlutu minni­háttar meiðsli. Hefur þetta kvöld verið kallað Þor­láks­messu­slag­ur­inn.

Birna Þórðar?

Fremst í flokki mót­mæl­enda voru þau Birna Þórð­ar­dóttir og Ragnar Stef­áns­son eða Raggi skjálfti eins og hann er yfir­leitt kall­aður en hann er einn helsti jarð­skjálfta­fræð­ingur lands­ins.

Morg­un­blaðið fjall­aði um málið en glöggir les­endur gætu tekið eftir hægri slag­síðu í umfjöllun þeirra. Hér er eft­ir­far­andi frétt Morg­un­blað­ins frá 1968:

Stymp­ingar í Aust­ur­stræti

Takmark göngu­fólks að kom­ast í kast við lög­regl­una, sem naut stuðn­ings almenn­ings

ENN SLÓ í brýnu milli lög­reglu­þjóna og félaga úr Æsku­lýðs­fylk­ing­unni og Félagi rót­tækra stúd­enta á Þor­láks­messu­kvöld. Félögin tvö höfðu fyrr um dag­inn til­kynnt lög­regl­unni, að farin yrði mót­mæla­ganga frá Sigtúni, og m.a. upp Banka­stræti og Skóla­vörðu­stíg. Lög­reglan til­kynnti félög­unum, að hún myndi ekki Ieyfa göng­unni að trufla almenna umferð, en stakk upp á því, að í stað þess að fara upp Banka­stræti og Skóla­vörðu­stíg færi gangan upp Hverf­is­götu og um Ing­ólfs­stræti, en því höfn­uðu félögin tvö algjör­lega. Virðist því frið­sam­leg mót­mæla­ganga alls ekki hafa verið tak­mark félag­anna tveggja heldur það eitt að valda erf­ið­leikum í jóla­ösinni og lenda í kasti við lög­regl­una. — Má benda á, að þetta er ekki í fyrsta skipti, sem félagar í Æsku­lýðs­fylk­ing­unni velja öðrum fremur anna­sam­ari daga hjá lög­regl­unni til að fara með óspektum um götur borg­ar­innar. Er þar skemmst að minn­ast átak­anna, sem urðu við Reykja­vík­ur­höfn á H-dag í sumar. Þorri við­staddra, sem fylgd­ust með stymp­ing­unum á Þor­láks­messu­kvöld, var á bandi lög­regl­unnar og virt­ist yfir­leitt hafa and­styggð á fram­ferði göngu­fólks­ins. Lögðu ýmsir lög­regl­unni lið í stymp­ing­unum.

Á Þor­láks­messu var dreift um borg­ina fund­ar­boði frá Æsku­lýðs­fylk­ing­unni og Félagi rót­tækra stúd­enta um almennan fund í Sigtúni kl. 20,30 um kvöldið. — Sama dag var lög­reglu­stjóra afhent bréf, sem í var til­kynnt, að félögin tvö myndu fara í mót­mæla­göngu að fund­inum loknum; frá Sigtúni um Aust­ur­stræti, Banka­stræti, Skóla­vörðu­stíg, Frakka­stíg, Laugaveg og Banka­stræti og ljúka göng­unni á Lækj­ar­torgi, þar sem stutt ávarp yrði flutt. Bréf þetta var und­ir­ritað af Birnu Þórð­ar­dóttur (sú sem fékk skein­una sl. laug­ar­dag og hróp­aði þá: Hvar er sjón­varpið!) fyrir hönd Félags rót­tækra stúd­enta og Leifi Jóels­syni fyrir hönd Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar. Þetta kvöld hafði verið aug­lýst sér­stök tak­mörkun á umferð í Reykja­vík, m.a. lokun mið­borg­ar­innar fyrir bílum, og aðrar sér­stakar ráð­staf­anir gerðar til að greiða fyrir umferð á öllum helztu umferð­ar­götum, þ.á.m. þeim sem félögin tvö hugð­ust ganga eftir. Þar sem sýnt var, að gangan myndi valda veru­legri truflun á allri umferð hafði Bjarki Elíasson, yfir­lög­reglu­þjónn, sam­band við Leif Jóelsson og fór fram á það við hann, að göngu­leið­inni yrði breytt til sam­rœmis við aug­lýstar umferð­ar­tak­mark­anir.

Stakk Bjarki upp á því við Leif að gengið yrði t.d. um Aust­ur­stræti, Hafn­ar­stræti og Aðal­stræti, en því hafn­aði umboðs­maður Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar. Þá bauð Bjarki að gengið yrði um Aust­ur­stræti, Lækj­ar­torg, Hverf­is­götu, Ing­ólfs­stræti, Banka­stræti og niður á Lækj­ar­torg og bað umboðs­maður Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar um frest til að bera þessa til­lögu undir félaga sína. Þegar sá frestur var útrunn­inn hringdi umboðs­mað­ur­inn og bað um lengri frest, sem lög­reglan veitti taf­ar­laust. Loks kl. 21,35 um kvöldið hringdi umboðs­mað­ur­inn svo og til­kynnti, að gengin yrði sú leið, sem félögin tvö í upp­hafi völdu og að hann væri ekki til við­ræðu um neinar breyt­ingar þar á. Tjáði Bjarki honum þá, að hann lýsti fullri ábyrgð á hendur honum og enn­fremur, að lög­reglan myndi bindra göng­una í að fara upp Banka­stræti; á móti allri almennri umferð. Svaraði umboðs­mað­ur­inn því til, að lög­reglan gæti aldrei hindrað göngu fólkið; félögin tvö hefðu á að skipa 1000 manna liði, sem myndi brjóta sér leið, ef með þyrfti.

Um 50 lög­reglu­þjónar fóru svo undir stjórn Bjarka Elí­as­sonar út á Lækj­ar­torg og mynd­uðu þre­falda röð yfir Aust­ur­stræti við gatna­mót Lækj­ar­götu. Mikil umferð gang­andi fólks var og safn­að­ist margt fólk saman, þegar það sá við­búnað lög­regl­unnar. Klukkan 22,10 kom svo gangan austur Aust­ur­stræti og bar göngu­fólk íslenzka fán­ann og ýmis spjöld. Fremstur gekk Ragnar Stef­áns­son, jarð­skjálfta­fræð­ingur og for­seti Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar, og bar hann gjall­ar­hom, sem hann hvatti með göngu­fólkið til að brjóta sér leið gegn um raðir lög­regl­unnar. í fremstu röð gengu hjú þau, sem und­ir­rit­uðu bréfið til lög­reglu­stjóra og fyrr hefur verið minnzt á. Þegar göngu­fólkið hugð­ist brjóta sér leið hófust stymp­ingar milli þess og lög­regl­unnar. Fyrr nefndur Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­for­seti klifraði upp á grind­verk og þaðan hvatti hann lið sitt til að ganga hraust­lega fram gegn vörðum lag­anna. Var hann beð­inn að hætta þessum hrópum en hann neit­aði og var þá fjar­lægður við fögnuð nær­staddra veg­far­enda. Lög­reglan hrakti svo göngu­fólkið hægt en mark­visst vestur Aust­ur­stræti og eftir um það bil klukku­stund var kornið vestur að Póst­hús­stræti. Var þá fátt göngu­fólk eftir og öll spjöld horfin. All­margir óbreyttir borg­arar lögðu lög­regl­unni lið í stymp­ingum þessum og varð lög­reglan að hafa hemil á sumum þeirra, sem vildu ganga of lang í aðgerðum gegn göngu­fólk­inu. Þorri við­staddra sem með stymp­ing­unum fylgd­ist, virt­ist vera á bandi lög­regl­unnar Um ell­efu leytið var komin á ró í mið­borg­inni og umferð aftur með eðli­legum hætti. Tólf göngu­menn voru fjar­lægðir vegna ýmiss konar afbrota. Þrír lög­reglu­menn þurftu læknis með­ferðar við, en þeir hlutu slœm spörk og högg frá göngu­fólk­inu. Enginn þeirra meidd­ist þó alvar­lega. Enn­fremur vann göngu­fólk miklar skemmdir á fötum lög­regu­manna, reif þau og skar og sleit af lög­reglu­þjónum ein­kenni. Þá köst­uðu sumir eggjum að lög­reglu­mönnum, en þeir sem ekk­ert höfðu við hend­ina hræktu. Ekki var lög­regl­unni í gær kunn­ugt um, að neinn göngu­maður hefði meiðzt illa, en ein­hverjir munu hafa kornið í Slysa­varð­stof­una á Þor­láks­messu­kvöld til að fá búið um meiðsi, sem þeir höfðu hlotið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi