Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arnar Eggert: „Stúlkur skila inn afburðaefni og finnst það lélegt – Þetta þarf að breytast“

Arnar Eggert: „Stúlkur skila inn afburðaefni og finnst það lélegt – Þetta þarf að breytast“
Arnar Eggert Thorodd­sen.

Tón­list­ar­dokt­or­inn Arnar Eggert Thorodd­sen ritar afar áhuga­verða grein á Stund­inni og hefst hún svona:

„Ég var rétt í þessu að skrifa um jóla­daga­tal Akra­nes­bæjar, Skaginn syngur inn jólin, sem er í formi tón­list­ar­innslaga sem birt eru á Snjáldru (Facebook) jafnt sem í þjón­varp­inu (Youtube) þá daga sem leiða upp að jólum. Þetta er heið­ar­leg og ein­læg starf­semi, keyrð áfram af ástríðu og áhuga, og ber með sér nota­lega sam­fé­lags­til­finn­ingu þar sem þeir sem til­heyra ein­hverjum kjarna leggj­ast á eitt um að skapa eitt­hvað sem stendur utan við hóp­inn og er stærra en þeir.“

Bætir við:

„Á vissan hátt er þetta kjarni tón­list­ar­innar, hún er meira en við sem búum hana til eða stuðlum að henni, öðl­ast eigið líf sem svo blæs okkur anda í brjóst. Mig langar til að nota þetta form­lega færi sem ég hef til að setja niður hug­leið­ingar um tón­list, hvernig hún hefur hitt á mig á liðnu ári, hvaða merk­ingu hún hefur fyrir mig og, já, líka ykkur.“

Arnar Eggert segir að „ég þarf svosem ekki að fara í saumana á því hvaða merk­ingu hún hefur fyrir mig per­sónu­lega. Hún er köllun mín í líf­inu, er mér allt. Ég er svo ótrú­lega lán­samur að ég hef lifi­brauð af því að sinna henni í gegnum hin ýmsu tæki og tól, veri það í leið­sögn, skrifum, kennslu, nefnd­ar­störfum eða útvarps­mennsku. Þetta til­tæki Skaga­manna fékk mig til að hugsa um það hversu útbreidd hún er og hversu mikið við sækjum í hana. Í útvarp­inu, í tón­leika­sölum, inni í her­bergjum, í sjón­varp­inu, í sturt­unni – tón­listin er alls staðar. Hún hefur gríð­ar­legt sam­fé­lags­legt gildi og kannski af því að þetta er svo sjálf­sagt mál í okkar huga eigum við til að gleyma því að hún verður ekki til úr engu.“

Heldur áfram:

„Það þarf stuðn­ing, athygli, tæki­færi, fjár­magn og fleira til að halda þessu smurðu og gang­andi. Og þess vegna ætla ég að skipta núna í menn­ing­arpóli­tískt tal því að annað er óhjá­kvæmi­legt. Allt er póli­tík.

Og það verður aldrei of oft hnykkt á öllum þeim mik­il­vægu þáttum sem verða að vera til staðar eigi heil­brigt tón­list­ar­líf að þró­ast. Það hefur til dæmis glatt mig mikið að fá að upp­lifa aukna fram­leiðslu og auk­inn sýni­leika kvenna í tón­list að und­an­förnu.“

Arnar Eggert nefnir dæmi:

„Þrjár sterkar, ungar konur voru til dæmis áber­andi á nýaf­stað­inni Kraumsverð­launa­há­tíð, þær KUSK, Una Torfa og gugusar. Fleiri plötur eru að koma út, almennt séð, úr kvennaranni, oft stuttar plötur sem hlaðið er í inni í svefn­her­bergi og þeim svo dúnd­rað út á streym­isveitur. Fleiri konur eru að taka þátt í Mús­íktil­raunum. KÍTON, konur í tón­list, láta í sér heyra. Stelpur rokka eru til, styðja við og mynda vett­vang og pláss. Starf­semi, virkni og gjörðir eru lyk­ill hérna. Við hugsum okkur ekki út úr ójafn­rétti, nei, það þarf beinar aðgerðir,“ segir hann og bætir við:

„Mér finnst þetta svo aug­ljóst en ég veit að ekki eru allir á sama máli. Til að skakka leik­inn þarf að ákveða að hafa tón­list­ar­dóm­nefndir sirka­bát til helm­inga, karla og konur. Fimm konur og fimm karla. Fjóra karla og sex konur, allt í lagi. Sex karla og fjórar konur. Veit ekki en samt, það sleppur. Að stilla þessu svona upp stuðlar smám saman að breyt­ingum til góða. Raddir kvenna – sem heyr­ast ekki nægi­lega vel, aldrei – koma inn. Og það er mik­il­vægt.“

Hann nefnir að „það er mun skemmti­legra að vera í dóm­nefndum í dag en fyrir tíu árum. Að þú eigir minna færi á því að láta í þér heyra, vegna kyns, er óþol­andi. En ef við myndum sleppa svona kvóta­hugsun? Hvernig væru dóm­nefndir þá skip­aðar? Ég er ansi hræddur um að meiri­hluti þeirra væru ann­að­hvort ein­göngu skip­aðar körlum eða þá að ein, tvær konur myndu slæð­ast inn. Og væru svo kaf­færðar af körlunum. Pláss, athygli, vett­vangur. Platform á ensku. Sýni­leik­inn er svo mik­il­vægur auk þess sjálf­sagða réttar að vera ekki full­komin. Að koma afurð­inni út, eins vel og færni og tíma­mörk leyfa, er algert aðal­at­riði.“

Arnar Eggert segir að lokum að „menn­ing er nefni­lega ekki að vanda sig. Menning er að gera, skapa og búa til. Eitthvað. Og það má vera gott, hálf­gott eða lélegt. Íslensk tón­list­ar­fram­tíð er björt og ég vil meira. Meira, meira. Frá konum og körlum og megi það vera snilld sem ömurð. Málið er nefni­lega aldrei hvað þú getur, heldur hvað þú gerir. Í starfi mínu sem háskóla­kenn­ari skila strákar inn drasli og finnst þeir eiga Nóbels­verð­laun skilið. Stúlkur skila inn afburða­efni og finnst það lélegt. Þetta þarf að breyt­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi