Séra Skírnir Garðarsson gagnrýnir Þjóðkirkjuna harðlega fyrir það sem hann kallar „aumingjaskap“.
Rétt fyrir jól skoraði Sr. Skírnir á Þjóðkirkjuna að opna safnaðarheimili kirkjunnar fyrir heimilislausu fólki í vetrarhörkunum sem nú tröllríða landinu. Engin viðbrögð bárust frá Þjóðkirkjunni, hvorki opinberlega né í svari til Mannlífs sem spurði í tölvupósti hvernig Þjóðkirkjunni litist á tillögur Sr. Skírnis. Engin svör bárust, frekar en fyrri daginn er Mannlíf sendir spurningar á kirkjuna.
Mannlíf hefur eftir prestinum að hann sé afar óánægður með skort á viðbrögðum frá Þjóðkirkjunni við tillögunni.
„Aumingjaskapur þjóðkirkjunnar birtist í núll viðbrögðum við tillögu frá mér og fleirum um að safnaðarheimilin verði opnuð fyrir heimilislausu fólki nú í vetrarhörkunum. Nóg húsrými er til staðar, en enginn áhugi.
Sr Heimir Steinsson skilgreindi þjóðkirkjuna árið 1985 sem „passívan áhorfanda, staðsettan á hliðarlínu hins þjóðfélagslega veruleika“. Ekki hefur ástandið batnað. Þetta er sorglegt og mjög sláandi, séríslenskt fyrirbæri í raun.Aumingjaskapur íslensku þjóðkirkjunnar er þá bara það sem hún býður okkar minnstu bræðrum og systrum upp á. Þá er bara að segja „Amen“ á eftir efninu,“ sagði Sr. Skírnir.





















Athugasemdir