Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dóttir stórstjörnu skildi nýfætt barn sitt eftir úti í skógi í frosti: „Hún var greind tveggja ára“

Dóttir stórstjörnu skildi nýfætt barn sitt eftir úti í skógi í frosti: „Hún var greind tveggja ára“

Dóttir banda­rískrar hafna­bolta­stjörnu situr undir kæru eftir að hún skildi nýfætt barn sitt eitt eftir úti í skógi í frosti.

Alex­andra Eckersley var heim­il­is­laus þegar hún fæddi son sinn í skógi í New Hamps­hire á jóla­dag. Úti var frost en mik­ill kuldi hefur verið á þessum slóðum und­an­farið. Hún bjó í eins­konar tjaldi í skóg­inum.

Hin 26 ára Alex­andra er ætt­leidd dóttir hafna­bolta­leik­ar­ans Dennis Eckersley en hann náði miklum árangri í íþrótt­inni og spil­aði lengst af með Boston Red Sox. Alex­andra hefur glímt við and­leg veik­indi og urðu þau til þess að hún byrj­aði að mis­nota fíkni­efni, missti sam­band við fjöl­skyldu sína og varð heim­il­is­laus.

Dennis Eckersley

„Hún var greind með geð­sjúk­dóma tveggja ára, sem versnuðu í gegnum árin. Hún var oft lögð inn á sjúkra­hús og að lokum var hún lokuð inn á stofnun,“ sagði í yfir­lýs­ingu frá for­eldrum Alexöndru.

Móðir hennar segir fjöl­skyld­una hafi reynt að hjálpa henni í gegnum árin og koma henni í með­ferð en hún neit­aði þar til for­eldrar hennar neydd­ust til að koma henni út af heim­il­inu. 

„Hún var alltaf vel­komin heim aftur, með þeim skil­yrðum að hún færi í með­ferð, hún kaus að gera það ekki,“ sagði lög­fræð­ingur sem kom að mál­inu.

Á jóla­dag fæddi hún sitt fyrsta barn. Hún við­ur­kenndi fyrir lög­regl­unni að hafa notað kanna­bis og kókaín á með­göng­unni en seg­ist ekki hafa vitað að hún gengi með barn.

Eftir fæð­ing­una hafði Alex­andra sam­band við lög­regl­una og óskaði eftir aðstoð. Þegar hún var síðan spurð út í barnið, laug hún um stað­setn­ingu þess. Lög­reglan leit­aði í klukku­tíma eða þangað til Alex­andra gaf þeim réttar upp­lýs­ingar um hvar barnið væri nið­ur­komið.

Loks fannst dreng­ur­inn í tjaldi, hann var kaldur enda var sex gráðu frost. Alex­andra hafði ekki gert neitt til að vernda barnið frá kuld­anum, hann var hvorki klæddur né með teppi. Hann grét ekki en hreyfði sig þó. Farið var með hann á slysa­deild.

Tjaldið þar sem ung­barnið fannst.

Þegar Alex­andra var spurð að því hvers vegna hún hafi skilið barnið eftir í þessum aðstæðum sagði hún: „Hvað er okkur sagt að gera ef flug­vél skyldi hrapa? Ég bjarg­aði sjálfri mér fyrst.“ Hún er talin hafa verið undir áhrifum fíkni­efna við yfir­heyrsl­una. Hún sagð­ist hafa logið til um stað­setn­ingu barns­ins því hún ótt­að­ist það að missa tjaldið sitt.

Tjaldið þar sem ung­barnið fannst.

Lög­reglu­þjónn­inn sem er yfir máli Alexöndru segir enga afsökun fyrir gjörðum hennar: „Fólki í þess­ari stöðu er alltaf boðin aðstoð. Hún kaus að nýta sér hana ekki og neit­aði þegar reynt var að hjálpa henni. Fólki er frjálst að gera það sem það vill í þess­ari stöðu en þú ferð ekki svona með lítið barn. Ég ber fullan skiln­ing á geð- og fíkni­sjúk­dómum en þegar málið er svona, þegar líf barns er í húfi, missi ég allan skiln­ing. Það er ekk­ert sem afsakar svona lagað.“

Alex­andra hefur verið kærð fyrir van­rækslu á barni, ann­arrar gráðu lík­ams­árás, fölsun á sönn­un­ar­gögnum og fyrir að koma lífi barns í hættu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi