Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lífsreynslusaga Mannlífs: Draumurinn sem varð að martröð

Lífsreynslusaga Mannlífs: Draumurinn sem varð að martröð

Seint á síð­ustu öld var ég 18 ára og nýlega búinn að eiga ham­skipti. Ég fór úr því að vera vand­ræða­legur, hor­aður, síð­hærður spangar­ung­lingur yfir í nokkuð brattan, ágæt­lega útlít­andi ungan mann, með greitt í píku að vísu en nokkuð fram­bæri­legur að öðru leyti. Ég hafði fram að þessu ekki verið neitt sér­stakt kvenna­gull, hafði átt eina kær­ustu í mánuð en ann­ars bara látið mig dreyma um hylli kvenna.

Ég bjó úti á landi á þessum árum og var í mennta­skól­anum í bænum mínum. Ball var á næsta leyti þegar þessi lífs­reynslu­saga hefst. Ekki man ég hvaða band var fengið til að spila á ball­inu, en ef það var ekki Sálin hans Jóns míns var það senni­lega Síðan skein sól, þannig að von var á fullu húsi.

Systir mín, Stefanía, hafði stuttu áður kynnst förð­un­ar­fræð­ingi frá Reykja­vík sem við skulum kalla Guðrúnu. Hún var 24 ára og hress, að sögn systur minnar. Guðrún hafði fengið boð á ballið frá fjórða árs nema úr næsta bæj­ar­fé­lagi en vant­aði gist­ingu. Systir mín spurði móður okkar hvort Guðrún fengi að gista hjá okkur og að hún lof­aði að mála mömmu í þakk­læt­is­skyni. Mamma var treg til, enda um ókunn­uga konu að ræða, en sló svo til eftir frekara suð frá systur minni.

Ég mætti á ballið vel slomp­aður eftir fyr­ir­partí og gerði mig gild­andi á dans­gólf­inu. Allt í einu stóð stór­glæsi­leg stelpa fyrir framan mig og ég upp­lifði eitt­hvað sem ég hafði aldrei upp­lifað áður; raf­magn­aða kem­i­stríu. Hún horfði í augun á mér og færði sig nær og spurði hvort ég væri bróðir Stefaníu. Ég sagði svo vera og hafði varla sleppt orð­inu þegar tungur okkar mætt­ust í því sem mér fannst mjög kyn­þokka­fullur koss, en gæti trúað að nær­stödd vitni hafi ekki verið sam­mála því mati mínu. En við smullum líka svona rosa­lega vel saman þarna á ball­inu, slefið slitn­aði ekki á milli okkar og hendur okkar könn­uðu nýjar lendur, ef svo má að orði kom­ast. Kannski má það ekki í dag og biðst ég þá afsök­unar á því. Og svo fór að við fórum saman heim.

Þegar heim var komið héldu koss­arnir og káfið áfram, en við komumst ekki lengra en í sófann inni í stofu. Ég var ekki að trúa hvað var að ger­ast, draumur lúð­ans með spang­irnar var að ræt­ast, ítur­vaxin og fal­leg kona hafði áhuga á mér! Af öllum karl­mönn­unum á ball­inu hafði hún bara áhuga á mér! Við vorum byrjuð að stunda kyn­líf í sóf­anum (róleg, ég henti laki á sófann), en þá gerð­ist svo­lítið sem fékk mig til að raula Paradise by the Das­h­bo­ard Light með Meat Loaf í huga mér:

Stop right there!
I gotta know right now!
Before we go any further!
Do you love me?
Will you love me for­ever?
Do you need me?
Will you never leave me?
Will you make me so happy for the rest of my life?
Will you take me away and will you make me your wife?
Do you love me!?
Will you love me for­ever!?

Guðrún tók sem sagt þessa ræðu á mig. Sagðist ekki vilja sofa hjá mér nema með því lof­orði að við myndum byrja í sam­bandi í kjöl­farið. Á þessu augna­bliki var horm­óna­starf­semin í ungum lík­ama mínum að vinna yfir­vinnu, allar æðar þandar og aðeins örlítið blóð eftir í hausnum. Ég sagði að sjálf­sögðu „Já ókei!“, en Guðrún sendi mig í her­bergið mitt þar sem ég átti að hugsa málið í 15 mín­útur. Ég hlýddi og fór inn í her­bergi. En ég hugs­aði ekk­ert í 15 mín­útur, ég beið bara. Greddan var skyn­sem­inni yfir­sterk­ari. Kortéri síðar mætti ég aftur inn í stofu og til­kynnti Guðrúnu að ég geng­ist við skil­yrðum hennar. Fórum við svo inn í her­bergi mitt og áttum frá­bæra nótt saman.

Um klukkan 11 dag­inn eftir, vakn­aði ég þynnri en silki­klútur Meat Loaf og þegar ég var að skríða á fætur hoppar Guðrún inn í her­bergi með bros og vör. „Hæ, elskan!“ sagði hún og tjáði mér svo að hún væri búinn að tala við gamla grunn­skóla­stjór­ann minn og spurt hann hvort hann væri með lausa stöðu í skól­anum og að hann ætl­aði að hugsa málið. Þá sagði hún mér að hún væri einnig búin að hringja í eig­endur lausra íbúða í pláss­inu, því við værum að fara að flytja inn saman. Ég fann að hjartað á mér byrj­aði að slá hraðar en nokkru sinni og ég fann að and­litið á mér tók að skipta um lit og varð eldrautt á met­tíma.

Ástæðan fyrir þess­ari líðan var tvenns konar. Annars vegar hellt­ist skömmin yfir mig fyrir að hafa logið að henni að ég vildi byrja með henni, svo hún svæfi hjá mér og hins vegar vegna þess að nú yrði ég að koma mér undan þessu óvænta full­orð­ins­sam­bandi sem ég var kom­inn í.

Ég sett­ist niður með henni og sagði henni sann­leik­ann. Ég hafi bara verið spólgraður, 18 ára vit­leys­ingur sem hefði sagt hvað sem er til að halda áfram leiknum, nótt­ina áður. Að segja að hún hefði tekið þessum (að mér fannst aug­ljósa) sann­leika illa væri vægt til orða tekið.

Hún fékk ofsa­kvíða­kast, ofand­aði og grét. Alls ekki það sem ég bjóst við, enda þekkt­umst við akkúrat ekk­ert. Ég fór með hana á heilsu­gæsl­una þar sem læknir sem ég þekkti ágæt­lega tók við okkur. Eftir að lækn­ir­inn hafði rætt við hana í ein­rúmi í dágóða stund tal­aði hann við mig eins­lega. Byrjaði hann á að skamma mig fyrir að stunda skyndikynni með ókunn­ugri konu. Svo sagði hann mér að keyra hana beint á flug­völl­inn svo hún kæm­ist sem fyrst aftur til Reykja­víkur. Við Guðrún skildum á góðum nótum, ræddum málið og allt í góðu. Ég jafn­vel hitti hana aftur í eitt skipti í næstu Reykja­vík­ur­ferð, en það er saga sem verður að bíða betri tíma.

Þessi lífs­reynslu­saga sýnir hversu ólík upp­lifun tveggja ungra ein­stak­linga getur verið, en þetta kenndi mér að vera heið­ar­legri í sam­skiptum mínum við hitt kynið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi