Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

20 tittlingar og 40 eistu mættu og vonuðust eftir ókeypis síma: „Ja, það var engum þröngvað úr“

20 tittlingar og 40 eistu mættu og vonuðust eftir ókeypis síma: „Ja, það var engum þröngvað úr“

Í lok nóv­em­ber árið 1995 vakti aug­lýs­ing frá Antoni Skúla­syni mikla athygli. Anton boð­aði að þeir sem kæmu naktir í verslun hans í Aust­ur­veri við Háleit­is­braut fengju ókeypis síma. Við­brögðin létu ekki á sér standa. „Eigum til Alkatel-, Nokia-, Panasonic-, Motorola- og Nokia-síma ásamt fylgi­hlutum.

Ekkert bónu­s­kjaftæði, við erum ódýr­astir,” sagði í aug­lýs­ing­unni.

Um 20 manns ber­hátt­uðu sig í versl­un­inni í þeirri trú að far­símar væru í boði.

En vand­inn var sá að ein­ungis 10 manns fengu far­síma. Það hafði ekki verið tekið fram í aug­lýs­ing­unni sem birt­ist í Helg­ar­póst­inum.

Hlutust af því eft­ir­mál þar sem Neyt­enda­sam­tökin töldu að brotið hefði verið gegn þeim nöktu sem fóru tóm­hentir heim.

Helg­ar­póst­ur­inn var mættur á vett­vang þegar versl­unin opn­aði á aug­lýstum tíma. Einungis voru mættir naktir karl­menn. Tekin voru við­töl við þá nöktu sem létu vel af sér.

„Fínt að fá síma fyrir að klæða sig úr,“ segir Jón Már Svav­ars­son 16 ára.

Hann sipp­aði sér úr föt­unum og lét sig ekki muna um það — fannst þetta ekk­ert til­töku­mál.

Aðspurður hvers vegna engir kven­menn væru þarna gerir Jón Már ráð fyrir að þær hafi ekki þorað. Hann segir að það hafi mynd­ast hópefli meðal drengj­anna og neitar því að hafa sært blygð­un­ar­kennd almenn­ings.

„Þeir sem horfðu gerðu það af fúsum og frjálsum vilja.“

„Þetta er lif­andi sönnun þess að Helg­ar­póst­ur­inn er ekki dauður mið­ill. Þetta svín­virk­aði,“ segir Anton, sem bjóst við að ein­hverjir væru til í að leggja það á sig að mæta berir en þessi fjöldi kom honum veru­lega á óvart.

En að sjálf­sögðu munum við standa við aug­lýs­ing­una gagn­vart hinum.“

Anton var gagn­rýndur fyrir að gefa aðeins tíu fyrstu GSM-síma og Neyt­enda­sam­tökin fóru að hlut­ast til um málið; að sjá til þess að hinir tíu fengu einnig GSM-síma.

Anton svar­aði þess­ari gagn­rýni svona:

„Í aug­lýs­ing­unni er boð­inn sími. Það var ekki tekið fram að aðeins þeir sem kæmu naktir fengju gef­ins GSM-síma. Hinum var boð­inn sími og einn þáði hann.“

En málið hafði líka aðrar afleið­ingar en meint brot á neyt­enda­lög­gjöf­inni.

Í lög­reglu­sam­þykkt var bannað að striplast á almanna­færi og særa þannig blygð­un­ar­semi fólks.

Helg­ar­póst­ur­inn upp­lýsti að RLR rann­sak­aði meint hóp­blygð­un­ar­brot. Anton varð­ist fim­lega.

„Ja, það var engum þröngvað úr. Þeir gerðu þetta allir af fúsum og frjálsum vilja. Ég hef ekk­ert heyrt frá RLR ennþá,“ sagði hann og taldi sig ekki hafa mis­boðið almenn­ingi með þess­ari hug­mynd. Hann setur reyndar stórt spurn­ing­ar­merki við þessa lög­reglu­sam­þykkt sem tekur til blygð­un­ar­semi. Anton sagði langt því frá að hér hafi verið um örvænt­ing­ar­fulla aug­lýs­inga­brellu að ræða.

„Þetta átti nú bara að brjóta upp hvers­dags­leik­ann með smá­húmor og hafa gaman af.“

Anton kvaðst hafa fengið jákvæð við­brögð frá öðrum kaup­mönnum og ekki orðið var við öfund í sinn garð fyrir áhrifa­ríka aug­lýs­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi