Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hófí í El Salvador: „Með vélbyssu hangandi á öxlinni, skammbyssa í beltinu og risastóra sveðju“

Hófí í El Salvador: „Með vélbyssu hangandi á öxlinni, skammbyssa í beltinu og risastóra sveðju“

Þann 14. nóv­em­ber, 1985 var í fyrsta skipti, íslensk stúlka krýnd Ungfrú heimur en keppnin var haldin í Royal Albert Hall, London. Þann titil hlaut leik­skóla­kenn­ar­inn Hólm­fríður Karls­dóttir eða „Hófí“ eins og hún er alltaf kölluð en hún var 22 ára þegar hún sett upp kór­ón­una.

Heimsótti þriðja heims ríki

Í fram­hald­inu á krýn­ing­unni ferð­að­ist Hófí vítt og breytt um heim­inn og sinnti „emb­ætt­is­skyldum“ sínum sem Ungfrú heimur. Árið 1986 birti breska blaðið Today umfjöllun um ferð Hófíar til El Salvador sem á þeim tíma var klofið af borg­ara­styrj­öld. Tíminn þýddi grein Today, laus­lega yfir á hið ást­kæra ylhýra og mun blaða­maður styðj­ast við þá þýð­ingu í þess­ari upp­rifjun.

Fyrsti El Salvador­bú­inn sem Hófí hitti var einn af öryggsvörð­unum á flu­vell­inum sem tók á móti henni þegar hún steig út úr flug­vél­inni. Sá var heldur víga­legur að sjá, „með vél­byssu hang­andi á öxl­inni, skamm­byssa í belt­inu, kylfa og gas­gríma slóg­ust mjaðm­irnar og risa­stór sveðja náði frá mitti og niður að hnjám.“ Hann hafði þó tekið niður spegla­sól­gler­augun, til heið­urs Hófí og hengu þau niður úr skyrtu­vas­anum.

Hófí lét ekki harka­legt útlit örygg­is­varð­ar­ins á sig fá og hélt áfram göngu sinni um flug­völl­inn, heils­aði upp á Ungfrú El Salvador sem og flug­valla­starfs­mönnum sem horfðu með hrifn­ingu á Ungfrú Heim. Julia Morley, sem nú er for­maður Ungfrú Heims batt­er­ís­ins, skipu­lagði ferð­ina en Hófí vék sér aldrei frá henni á meðan hún gekk um flug­völl­inn enda Julia öllum hnútum kunnug í ferðum sem þessum.

Hótel í hættulegu hverfi

Í grein Today segir blaða­maður að á þessum tíma hafi það verið alþekkt að skæru­liðar í El Salvador urðu sér út um pen­ing með því að ræna áhrifa­miklu fólki og krefj­ast lausn­ar­gjalds fyrir þau. Það var því ljóst að Dórótea var ekki lengur í Kansas ef svo má að orði kom­ast. Julia Morley segir í grein­inni, þekkti orðið El Salvador nokkuð vel enda hafði hún í nokkur skipti skipu­lagt ferðir Ungfrú heims til lands­ins „til að safna fé fyrir mun­að­ar­leys­ingj­ana sem hún hafði tekið upp á sína arma.“ Fyrir bíla­lest Ungfrú heims fóru tveir lög­reglu­menn á mót­ur­hjólum og voru þeir með létta hríð­skota­byssu han­gangi á bak­inu. Hófí reyndi að veifa til fólks á leið­inni en að mati blaðam­ans Today virt­ist hún nokkuð inni­lokuð innan um alla gæsl­una. Hverfið hvar hót­elið sem Hófi gisti á var nokkuð alræmt fyrir ofbeld­is­glæpi en til að mynda hafði sam­starfs­maður blaða­manns Today verið skot­inn til bana rétt eftir að hafa skráð sig inn á hót­elið. Mikil gæsla var á hót­el­inu en örygg­is­menn gengu um gang­ana, „hvís­landi í labb-rabb-tæk­inu þar sem þeir læðu­pok­uð­ust fyrir framan svít­una sem Hófí og frú Morley höfðu fengið úthlutað.“ Þá segir í grein­inni að atburð­irnir hafi tekið „all-hjá­rænu­lega stefnu þegar Hófí var kynnt fyrir blaða­mönnum frá El Salvador.“

Blaðamenn gáttaðir

Túlk­ur­inn sem hafði verið ráð­inn fyrir Hófí, for­fall­að­ist og því þurfti Ungfrú El Salvador að þýða nokkrar „frekar dul­ar­fullar setn­ingar.“ Fyrst tjáði Hófí blaða­mönn­unum að hún kæmi frá landi þar sem sólin setj­ist aldrei á sumrin og þess vegna séu það sumir sem eigi erfitt um svefn. Blaða­menn­irnir virt­ust ekk­ert sér­stakla áhuga­samir um þessa stað­reynd en Hófí hélt áfram „það er mjög sjald­gæft að nokkur gangi atvinnu­laus á Íslandi.“ Við þetta lifn­aði yfir blaða­mönn­unum en þeir virt­ust undr­andi á þess­ari stað­hæf­ingu Hófíar. Hún hélt áfram en næst tal­aði hún um glæpi á Íslandi „síð­asta banka­rán á Íslandi var framið fyrir rétt tæpum þremur árum.“ Blaða­menn­irnir urðu við þessar upp­lýs­ingar, algjör­lega gátt­aðir.

Hófí svarar blaðamönnum fimlega

Fyrsta opin­bera athöfn Hófíar var að heim­sækja barna­heim­ili sem var stað­sett fyrir neðan skógi vax­innar hlíðar eld­fjalls, sem iðu­lega var notuð sem felu­staður skæru­liða. Segir í grein­inni að Hófi hafi gnæft yfir líf­verði sína, í hæl­unum sínum og engu lík­ara en þar væri komin „val­kyrja, umkringd flokki svart­álfa.“ Blaða­maður Today sagði að það hefði sést vel að heim­sóknin átti vel við Hófí, að vera umkringd æstum börnum sem vildu hitta Ungfrú heim en mörg barn­anna höfðu misst for­eldra sína í stríð­inu sem hafði gengið svo lengi í land­inu. Blaða­menn frá El Salvador báðu blaða­mann­inn breska um að spyrja Hófí hvað hún eig­in­lega vissi um El Salvador. Hófí svar­aði um hæl „það er rétt að ég veit ekki mikið um El Salvador, fyrir utan að landið á í miklum erf­ið­leikum. En ég kom hingað vegna barn­anna og þau eru eins all­staðar í heim­inum.“

Bak­sýn­is­speg­ill þessi er end­ur­birtur en hann birt­ist fyrst 3. sept­em­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi