Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bergman við Hrafn: „Hvernig eiga þeir sem geta ekki haldið við einu klósetti að reka kjarnorkuver?“

Bergman við Hrafn: „Hvernig eiga þeir sem geta ekki haldið við einu klósetti að reka kjarnorkuver?“
Hrafn fór með Bergmann í Bláa lónið á sínum tíma, því Bergmann var með exem – var hann afar ánægður með virkni vatns­ins á exemið.

Hrafn Gunn­laugs­son er án efa eitt stærsta nafn íslenskrar kvik­mynda­sögu. Og án efa einn af umdeild­ari og mik­il­væg­ari kvik­mynda­gerð­ar­mönnum Íslands, og þótt víðar væri jafn­vel leitað.

Myndir hans eru áleitnar og í þeim er að finna sam­fé­lags­lega gagn­rýni – Óðal feðr­anna, árið 1981 – til­rauna­mennsku sem heppn­að­ist gíf­ur­lega vel í upp­á­halds­kvik­mynd þess sem heldur um penn­ann í þess­ari grein – Okkar á milli – í hita og þunga dags­ins, árið 1982; mynd sem brýtur hressi­lega upp hið „sam­þykkta“ kvik­mynda­form, sem var ein­fald­lega stein­gelt á Íslandi á þessum árum – gjör­sam­lega stein­gelt.

Stór­kost­legt lista­verk að öllu leyti þessi kvik­mynd.

Hrafn hristi upp í þessum gelda kvik­mynda­gerð­ar­heimi með auð­ugu ímynd­un­ar­afli; frá­bærri tón­list­ar­notkun og mörgum stór­kost­legum senum sem eru ekk­ert annað en lista­verk.

Svonu litu alvöru töffarar út í den.

Hrafn er stór og mik­ill karakter sem hefur afrekað margt og mikið. Ekki bara sem leik­stjóri, heldur einnig sem dag­skrár­stjóri RÚV, þar sem segja má að hann hafi komið RÚV út úr grárri forn­eskj­unni og inn í nýja tíma. Ég man það vel þegar Hrafn tók við stjórn­inni á RÚV – allt í einu vorum við Duran Duaran-ung­ling­arnir farnir að horfa á RÚV! Ungt fólk kom til starfa og drep­leið­in­legir þættir eins og Maður er nefndur og margir aðrir hrylli­lega leið­in­legir þættir luku keppni án nokk­urra mót­mæla.

Hrafn fékk marga stór­kost­lega lista­menn til að koma á Lista­há­tið. Hann fékk Leonard Cohen heit­inn hingað til lands.

Hrafn er þannig gerður að orðin hálf­kák og með­al­mennska eru sem eitur í beinum hans; Hrafn vill ann­að­hvort allt eða ekk­ert, og hefur aldrei slegið af kröfum sínum; fyrir það hefur hann hlotið lof og last, eins og títt er um fólk sem er óhrætt að segja skoð­anir sínar og að hrinda hug­myndum sínum í fram­kvæmd. Hikaði aldrei þegar þurfti að taka stórar ákvarð­anir. Stór per­sónu­leiki í alla staði.

Hinn stór­kost­legi og skraut­legi leik­stjóri, John Waters, var gestur Hrafns á Lista­há­tíð. Fór vel á með þeim, enda báðir stórir og öðru­vísi karaka­terar..

Árið 1994 kom út alveg sér­lega skemmti­leg, fróð­leg og athygl­is­verð bók, eftir Árna Þór­ar­ins­son blaða­mann til margra ára­tuga: Bókin er ævi­saga Hrafns frá fæð­ingu og til þess tíma er hún leit dags­ins ljós: Krummi – Hrafns saga Gunn­laugs­sonar. 

Sögurnar í bók­inni eru sumar hverjar ævin­týra­legar, og hægt að skrifa nán­ast heilan sagna­bálk um afrek Hrafns; en hann var mun virt­ari og vin­sælli víða um heim en hér á Íslandi.

Frábær bók í alla staði. Til á flestum almenni­legum bóka­söfnum.

Og hann var elsk­aður í Svíþjóð – en þar sló mynd hans, Hrafninn flýgur, algjör­lega í gegn og gerði Hrafn að heims­frægum leik­stjóra, sem hann átti svo sann­ar­lega skilið. Eftir árang­ur­inn í Svíþjóð fóru Íslend­ingar loks­ins að meta Hrafn sem kvik­mynda­gerð­ar­mann og einnig sem stóran per­sónu­leika og skraut­legan; skemmti­legan mann sem hik­aði aldrei; lét bara alltaf vaða.

Hrafn og ekkja Pablo Picasson, Jacqueline Roque, á Lista­há­tíð árið 1986. Jacqueline tók sitt eigið líf sama ár og þessi mynd var tekin.

Af mörgum skemmti­legum sögum úr bók­inni, er sagan þegar Hrafni tókst að fá sjálfan Ingmar Bergman, einn merkasta kvik­mynda­leik­stjóra sög­unnar, til Íslands, einna sér­kenni­leg­ust. En frægt var hversu tregur og óvilj­ugur Bergmann var að ferð­ast og koma fram opin­ber­lega; honum leidd­ist það.

Ein besta kvik­mynd Íslands­sög­unnar.

En þegar Hrafn hringdi þá var Bergman til í slag­inn, enda hafði hann sem og öll Svíþjóð gjör­sam­lega heill­ast af kvik­mynd­inni Hrafninn flýgur sem kom út árið 1984. Stór­kost­leg mynd sem gerð var fyrir lít­inn pen­ing en hafði á sér yfir­brag stór­myndar; sem og hún sann­ar­lega var og er. Íslenskur forn­aldar-vestri í sér­flokki.

Lista­há­tíð hafði gert ítrek­aðar til­raunir til að fá Ingmar Bergman til Íslands. Alltaf kom afsvar. Hann var hættur að ferð­ast (bls. 106).

En Hrafn var ekki á því að gef­ast upp, og hringdi heim til Bergmans, og eig­in­kona hans, Ingrid, svar­aði í sím­ann:

Ég sagð­ist heita Hrafn Gunn­laugs­son. Og hvað hefur þú svo gert? spurði hún. Bíó­myndir svar­aði ég. Jæja, hvaða myndir? spurði hún. Hrafninn flýgur til dæmis, svar­aði ég, enda var það eina myndin sem Svíar vissu ein­hver deili á. Er það virki­lega? spurði hún þá, Ingmar hefur horft á hana oftar en einu sinni í einka­bíó­inu sínu (bls. 106).

Og Bergman tók sím­ann:

Heyrðu, ert þú þessi mikli sagna­maður? sagði Bergman og bætti við: Loksins hefur gamla nor­ræna sagna­hefði verið end­ur­vakin og það í kvik­myndum. Ég hef ákveðið að þiggja boð þitt um að koma til Íslands (bls. 106).

Ingman Bergman kom því í heim­sókn til Íslands, og að sjálf­sögðu tók Hrafn á móti honum í flug­stöð­inni gömlu, sem nú heitir Leifs­stöð. Hrafn byrj­aði á því að keyra með Bergman í Bláa lónið, sem þá var ekki sú okur­búlla og ferða­manna­gildra eins og raunin er í dag. En Bergman var með exem og Hrafn vildi sýna þeim sænska hversu mikla og góða virkni á húð og heilsu vatnið í Bláa lón­inu er. Var Bergman ánægður og sagði vatnið hafa haft góð áhrif á exemið.

Tveir góðir; umdeildir og upp­á­tækja­samir: Hrafn og Erró.

Já, Bergman kom því sem gestur Lista­há­tíðar árið 1986. Hrafni fannst Bergman sér­stakur karakter. Hrafn bjóst við miklum sam­ræðum um gildi kvik­mynda­gerðar fyrir sam­fé­lagið og annað í þeim dúr – tengt kvik­mynda­gerð. En, ónei, svo var ekki. Bergman vildi frekar ræða um þarfir sem allar mann­eskjur hafa – þörfin að kúka, og hann pældi mikið í kúk, sem kom Hrafni í opna skjöldu:

Hann fór inn á sal­ernið og sturt­aði niður. Heyrðu, sagði hann, vatnið snýst í skál­inni. Ég vil ekki nota svo­leiðis kló­sett. Ég vil ekki að kúk­ur­inn snú­ist í hringi. Ég vil að hann fari beint niður. Alltaf þegar ég er búinn á kló­sett­inu stend ég upp, virði fyrir mér kúk­inn og horfi á hann hverfa og ég vil ekki sjá hann tæt­ast í sundur í svona hring­iðu (bls. 108).

Hinn dáði sænski og heims­frægi leik­stjóri, Ingmar Bergman, pældi mikið í kúknum sínum. Og Hrafn var eig­in­lega stúmm:

Ég hafði hlakkað til að hitta þennan mikla snill­ing og and­ans mann, sem ég hafði alltaf dáð úr fjar­lægð, fá tæki­færi til að tala við hann og nema vis­dóms­orð af vörum hans, en svo tal­aði hann um kúk! Hann fór að segja mér ýmsar sögur um reynslu sína af ólíkum kló­settum. Til dæmis væri engin furða að Tsjerno­byl kjarn­orku­verið hefði bilað því ekki væri til eitt ein­asta kló­sett í Rúss­landi sem virk­aði. Hvernig eiga þeir menn sem geta ekki haldið við einu kló­setti að reka heilt kjarn­orku­ver? spurði hann (bls. 107).

Ein af þekkt­ari perlum sem Ingmar Bergmann gerði – kvik­myndin Persona frá árinu 1966.

Já, þarna fékk Hrafn ekki mikið upp úr Bergman varð­andi kvik­mynda­gerð – en fékk nán­ast heila B.A. rit­gerð um kúk­inn sinn, sem og þau kló­sett sem hann hafði prófað á ferða­lögum sínum í gegnum tíð­ina.

En sem betur fer fyrir Hrafn, hitti hann Bergman nokkrum sinnum eftir að heim­sókn hans til Íslands, og þá gaf Bergman Hrafni nokkur góð ráð sem nýtt­ust honum vel síðar á ferl­inum. En minnt­ist þá ekk­ert á kúk.

Lýkur þar með frá­sögn­inni af því þegar Ingmar Bergman hafði engan áhuga á að tala við Hrafn Gunn­laugs­son um kvik­mynda­gerð en vildi bara tala um kúk­inn sinn.

Endir.

Heimild: Krummi – Hrafns saga Gunn­laugs­sonar. Árni Þór­ar­ins­son. Fróði hf. 1994.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi