Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hermaður varð ungum manni að bana í Hafnarfirði: „Þórður Sigurðsson var 22 ára að aldri“

Hermaður varð ungum manni að bana í Hafnarfirði: „Þórður Sigurðsson var 22 ára að aldri“
Strand­gata 4 Mynd: fjardarfrettir.is skjáskot

Hermaður varð ungum manni að bana í Hafn­ar­firði. Nokkrum her­mönnum hafði lent saman við hóp Íslend­inga og end­uðu þau mál á því að tveir her­menn­anna hófu að skjóta á Íslend­ing­ana með skamm­byssum sínum. Eftir skot­hríð­ina lá einn í valnum og tveir slas­aðir. Svo virð­ist sem lætin hafi byrjað þegar fórn­ar­lambið gætti ekki að því hvar hann gekk.

Þetta gerði­ost þann 8. nóv­em­ber árið 1941. Alþýðu­blaðið sagði svo frá mál­inu á mánu­deg­inum 10. nóv­em­ber:

„Amer­ískir her­menn skjóta á hóp manna í Hafn­ar­firði

Þrír af mönn­unum særð­ust og einn þeirra mjög hættu­lega.
Skýrsla bæi­ar­fó­geta­full­trú­ans í Hafn­ar­fl­rði.

SÍÐASTLIÐIÐ LAUGARDAGSKVÖLD kl 10.30 gjörð­ist sá atburður, að tveir her­menn úr Banda­ríkja­hernum á Íslandi skutu með skamm­byssu á hóp íslenzkra manna fyrir utan húsið Strand­götu 4 í Hafn­ar­firði. Skutu þeir 5—6 skotum áður en þeir hlupu burt vestur Vest­ur­götu. Tveir menn urðu fyrir skotum: Þórður Sig­urðs­son, Aust­ur­götu 27 sem fékk kúlu­skot í gegnum magan og liggur hann nú á St. Jós­eps­spít­ala þungt hald­inn.

Sigurður L. Eiríks­son Kross­eyr­ar­veg 2 varð einnig fyrir skoti. Fór kúla upp um sól­ann á skó á vinstra fæti og marð­ist fót­ur­inn og kom á hann smá­skeina. Auk þess var hann mar­inn á lófa á vinstri hönd, að því er virð­ist eftir kúlu, sem hafði strok­ist með lóf­anum. Margir menn veittu her­mönn­unum eft­ir­för vestur göt­una. Þegar komið var vestur fyrir sölu­búð
F. Hansens skaut annar her­mað­ur­inn enn einu skoti á þá, sem eltu hann. Annar her­mað­ur­inn var hand­samaður uppi á Kirkju­vegi og afhentur lög­regl­unni. Hinn her­mað­ur­inn hljóp vestur Kirkju­veg­inn og skaut þá enn einu skoti á Sig­ur­geir Gíslason, Aust­ur­götu 21, sem veitti honum eft­ir­för, og straukst kúlan við fremsta lið á þum­al­fingri á vinstri hendi, og kom skeina á fing­ur­inn. Þessi her­maður náð­ist ekki.

Aðdrag­andi að þessum atburði er sá, að margt manna var saman komið inni á veit­inga­stofu við Strand­götu 6 og þar á meðal 4 Banda­ríkja­her­menn, sem sátu þar við borð og voru að drekka öl. Á gólf­inu stóð Þórður Sig­urðs­sen með ölflösku í hend­inni og var að tala við annan mann. Snéri Þórður baki að her­mönn­unum. Steig Þórður eitt eða tvö skref aftur á bak og mun þá hafa komið við einn af Banda­ríkja­her­mönn­unum; tók hann sam­stundis upp skamm­byssu úr frakka­vasa sínum og otaði henni að Þórði. Reiddi Þórður þá upp ölflösk­una sem hann hafði í hend­inni, og skip­aði her­mann­inum að láta byss­una niður, og stakk hann henni taf­ar­laust í frakka­vas­ann aftur. Stuttu síðar stóðu her­menn­irnir upp og fóru út. Um leið og þeir fóru út, munu þeir hafa sagt Þórði að koma út með sér. Fór hann út á eftir þeim og flestir þeir, sem höfðu verið inni á veit­inga­stof­unni. Her­menni­mir gengu vestur Strand­götu og Þórður og hinir menn­irnir í humátt á eftir þeim.

Þegar her­menn­irnir höfðu gengið lít­inn spotta snéru tveir þeirra sér allt í einu við og hófu skot­hríð á menn­ina og skutu senni­lega 4—5 skotum þarna. Þegar stot­hríðin hófst, var Þórður Sig­urðs­son í um tveggja faðma fjar­lægð frá her­mönn­unum. Miðaði annar þeirra skamm­byss­unni á hann og skaut á hann. Þórður hljóp þegar á her­mann­inn og hafði að hrista skamm­byss­una úr hend­inni á honum. Um leið hlupu margir þeir, sem staddir voru
þama nálægt, af stað til þess að hjálpa Þórði, en áður en þeir komu til þeirra, hafði her­mað­ur­inn losað sig og hlaupið burtu, vestur göt­una. Þeir tveir her­menn sem voru með þeim, er að skot­hríð­inni stóðu, hlupu einnig burtu, og náð­ust ekki. Af Þórði hefir enn ekki verið hægt að taka skýrslu sökum þess, að hann liggur þungt hai­dinn á St. Josephs spít­ala.
Þetta er sam­kvæmt skýrslu frá full­trúa bæj­ar­fó­get­ans í Hafn­ar­firði. Samkvæmt öðrum heim­ildum hefir blaðið frétt um áverka Þórðar, að kúlan hafi farið inn í mag­ann hægra megin og út vinstra megin.

Þórður Sig­urðs­son var 22 ára að aldri.“

Þórður Sig­urð­ar­son

Nokkrum dögum síðar lést Þórður af sárum sínum. Samkvæmt blað­inu Vest­ur­land brut­ust út slags­mál milli her­mann­anna og Íslend­ing­anna sem lauk með skotárás Banda­ríkja­mann­anna. Sagt er frá mál­inu í Vest­ur­landi hér að neðan:

„Íslenzkur maður skot­inn til bana af amer­ískum her­manni

Síðastl. laug­ar­dag urðu skærur milli íslend­inga og amer­ískra her­manna á veit­inga­húsi í Hafn­ar­firði. Bárust áflogin siðan út á götu, fyrir framan veit­inga­húsið. Er sagt, að amer­ísku her­menn­irnir hafi beðið þar lægri hlut. Tóku þeir þá til skot­vopna. Var einn Íslend­ing­anna, Þórður Sig­urðs­son, skot­inn i kvið­inn, en annar i rist­ina. Ameríska her­lög­reglu bar þá að þarna og flutti her­menn­ina burt, en Þórður var taf­ar­laust fluttur i sjúkra­hús og lá þar þungt hald­inn, þar til að hann and­að­ist s. l. mið­viku­dags­kvöld af völdum skotsárs­ins. Yfir­hers­höfð­ingi amer­íska setu­liðs­ins og sendi­herra Banda­ríkj­anna hafa tjáð for­sæt­is­ráð­herra afsökun sína út af þessum atburðum og lýst því yfir, að hinir amer­ísku her­menn hafi borið vopn í leyf­is­leysi og verði ríkt gengið eftir þvi fram­vegis að slíkt komi ekki fyrir.“

Ekki kemur það nokk­urs­staðar fram hvort her­mönn­unum hafi verið refsað eða þeir hlotið dóm fyrir mann­drápið, aðeins að slíkt muni ekki koma fyrir aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi