Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skrifar til Katrínar Jakobs fyrir hönd lítillar stúlku: „Meðferð markaðist af kynferðisofbeldi“

Skrifar til Katrínar Jakobs fyrir hönd lítillar stúlku: „Meðferð markaðist af kynferðisofbeldi“
Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: RÚV

Greinin er aðsend. Höfundur er Rósa Ólöf Ólaf­íu­dóttir.

Opið bréf til For­sæt­is­ráð­herra Katrínar Jak­obs­dóttur

Kæra Katrín,        .

Kveikjan að bréfi þessu eru drög að frum­varpi þínu til laga sem hefur það að mark­miði að setja heild­ar­lög um sann­girn­is­bætur til handa ein­stak­lingum sem orðið hafa fyrir var­an­legum skaða vegna illrar með­ferðar eða ofbeldis sem þeir hafa orðið fyrir vegna athafna eða athafna­leysis opin­berra aðila.

Ég skrifa þér fyrir hönd lít­illar stúlku sem hefur ekki þroska né getu til að tjá sig. Hún var vistuð frá unga aldri fyrst á Elliða­hvammi síðan á Sil­unga­polli þessu næst á Reykja­hlíð, Hlað­gerð­ar­koti og svo á einka­heim­ili.

Þegar ald­ur­inn tók að fær­ast yfir hana gerði hún sér grein fyrir að þessar upp­eld­is­að­stæður voru ákaf­lega óvenju­legar svo ekki sé meira sagt.

Hún var nauð­unga­vistuð á barna­heim­ilum og fóst­ur­heim­ilum án þess að fá að hitta fjöl­skyldu sína. Jú, heim­sóknir voru leyfðar en þessir staðir voru fyrir utan bæinn og fátæk móður hennar var bíl­laus. Aðferð hennar til lifa af þessar vist­anir var sú sama og ann­arra fanga, að láta sig dreyma um dag­inn sem hún losn­aði úr vist­inni.

Það yrði of langt mál  að fara hér út í þá með­ferð sem hún og önnur börn sem vist­uð­ust á þessum stöðum hlutu. Meðferð sem mark­að­ist af þving­unum, frels­is­svipt­ingu, stundum kyn­ferð­is­of­beldi, and­legu ofbeldi og ein­elti.

Sýnd­ar­eft­ir­litið sem átti sér stað af hálfu opin­berra yfir­valda fólst í heim­sóknum og við­tölum við yfir­menn þess­ara stofn­ana. Við vorum aldrei spurð.

Mann­rétt­indi þeirra voru fótum troðin. Gen­far­sátt­mál­inn þver­brot­inn. En hvað með það? Íslensk yfir­völd höfðu jú ekki und­ir­ritað hann.

Hún ólst upp við tíð­ar­anda þagn­ar­innar með kyn­slóð sem dæmdi og útskúf­aði ein­stak­lingum og fjöl­skyldum sem stóðu hall­l­oka í sam­fé­lag­inu.

Sumir glíma við skömm vegna eigin mis­taka í líf­inu. Hún glímdi við skömm vegna úrræða sem hún bar enga ábyrgð á.

Nú má ætla að stjórn­völd og upp­eld­is­að­ilar þessa tíma gætu gert sér grein fyrir hvaða áhrif það hefur á börn að vera lokuð inni, fjarri for­eldrum og fjöl­skyldu, árum saman. Alla vega voru komnar fram nokkuð áreið­an­legar umfjall­anir sál­fræð­inga og geð­lækna um slíka með­ferð á börnum. En nei slík þekk­ing hafði engin áhrif á gjörðir þess­ara með­ferð­ar­að­ila. Svo þessi litla stelpa dró eft­ir­far­andi ályktun:

Ég hlýt að vera óalandi óferj­andi og gallað mann­eskju­ein­tak úr því að komið er svona fram við mig.

Ef ein­hver hefði spurt hana um líðan sína og við­horfa til lífs­ins hefði hún kannski geta tjáð sig um þessa auð­sýndu fyr­ir­litn­ingu og það virð­ing­ar­leysi fyrir rétti hennar sem mann­eskju sem yfir­völd sýndu henni með þess­ari með­ferð. En það spurði eng­inn. Hún átti mörg þján­ing­ar­systkin sem þurftu að þola sömu með­ferð.

Í sam­ráðs­gátt stjórn­valda komu fram margar athuga­semdir við þetta frum­varp, örfáir skrif­uðu undir með nafni en flestir þó án þess að láta nafns síns getið. Hvers vegna skyldi fólk kjósa að skrifa ekki undir með nafni? Er ástæðan kannski sú að þessir nafn­lausu ein­stak­linga eru enn svo djúpt mark­aðir af skömm vegna vist­un­ar­innar að þeir kjósa að skrifa nafn­laust.

Kæra Katrín.

Ég vil nú víkja að þessum drögum að frum­varpi þínu til laga um sann­girn­is­bætur. Þar ætlar þú að lækka hámarks­upp­hæð bóta til handa ein­stak­lingum úr 6 millj­ónum niður í 3 millj­ónir. Hvað skyldi svo vera hægt að gera fyrir 3 millj­ónir? Skyldu 6 millj­ónir eða 3 millj­ónir nægja fyrir með­ferð hjá sál­fræð­ingi eða bæta upp skort á menntun eða skerta vinnu­getu vegna ógreindrar áfallastreyturösk­unar, sem þró­ast hefur í krónískt þung­lyndi? Nú eða árin sem fóru í brenni­vín og fíkni­efna­neyslu sem mörg okkar lifðu reyndar ekki af?

Í frum­varps­drög­unum sem ég vísa í hér að framan segir orð­rétt: „þeim sem urðu fyrir var­an­legum skaða”. Hvernig dettur þér í hug að bjóða mann­eskju sem orðið hefur fyrir var­an­legum skaða slíka upp­hæð?  Þessar upp­hæðir eru hlægi­legar en ekki bara hlægi­legar heldur sýna þær algjöran skort á skiln­ingi á þeirri mann­legu þján­ingu sem við urðum að þola á ábyrgð íslenskra stjórn­valda. En upp­hæð­irnar sýna ekki bara skiln­ings­leysi heldur líka algjöran skort á virð­ingu fyrir lífi ein­stak­linga sem ólust upp á ábyrgð íslenska rík­is­ins.

Nei, kæra Katrín.

Í krafti emb­ættis þíns fetar þú í fót­spor fyrri stjórn­valda þessa lands sem leyfðu að börn væru vistuð eins og fangar á barna­heim­ilum og einka­heim­ilum sem virt­ust geta starfað án eft­ir­lits og laga.

Rósa Ólöf Ólaf­íu­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi