Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bannað að tala um „sjómann“ og „fiskari“ komið í staðinn – Ólína getur ekki orða bundist

Bannað að tala um „sjómann“ og „fiskari“ komið í staðinn – Ólína getur ekki orða bundist
Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, þjóð­fræð­ingur, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi alþing­is­maður, seg­ist ekki geta orða bund­ist yfir því að orðið „sjó­maður“ hafi verið tekið út úr íslenskri lög­gjöf. Í stað þess orðs er orð­skrípið „fisk­ari“ komið í stað­inn. Hún segir þetta dæmi um dauð­hreins­un­ar­stefnu í pistli sem hún birtir á Facebook.

Pistill Ólínu í heild sinni:

Sjómaður eða fisk­ari? Orðið „sjó­maður“ hefur verið tekið út úr  íslenskri lög­gjöf og orðið „fisk­ari“ er komið í stað­inn. Og nú get ég ekki orða bund­ist – hér kemur ræðan:

Orðin sem við notum eru annað og meira heldur en dauð­hreins­aðar merk­ing­ar­ein­ingar klipptar og skornar. Ef svo væri gætum við ekki talað um lif­andi tungu­mál, skap­andi tungu­tak. Orðin eru hlaðin til­finn­ingum, lífs­skynjun, afstöðu, sögu og menn­ingu.

Orðið „sjó­maður“ hefur djúpstsæða til­finn­inga­skírskotun til margra Íslend­inga sem þekkja lífs­bar­áttu þjóð­ar­inar í gegnum ald­irnar.

Sum atvinnu­heiti eru sam­sett með orð­unum maður – flug­maður, her­maður o.fl. – önnur eru það ekki – kenn­ari, læknir, prestur. Það er gott og blessað að orð séu ekki öll mynduð eins. Það skiptir meira máli finnst mér að virða upp­runa þeirra og hefð­bundna notkun í stað þess að vera að beygja og beygla, liggur mér við að segja, tungu­málið í ein­hverri hrein­trú­ar­stefnu um það hvernig orð skuli saman sett.

Dauð­hreins­un­ar­stefna í mál­farsefnum er í besta falli skeyt­ingar- og skiln­ings­leysi – í versta falli fjand­skapur – við sköpun, sögu og til­finn­ingu. Mér er spurn: Hver stjórnar þessu eig­in­lega? Hvaða ráð­gjöf er að verki þarna bak við tjöldin?

Mín mál­til­finn­ing hafnar orð­inu „fisk­ari“ – það segir allt annað heldur en orðið sjó­maður. Seinna orðið á sér aldagamla hefð og sögu, til­finn­inga­til­vísun, sjálfs­mynd­ar­sköpun, er hlaðið atvinnu­sögu og atvinnu­menn­ingu. Allt er það hluti af orð­inu og þess vegna kemur ekk­ert annað þess í stað.

„Fiskari“ er aftur á móti dauð­hreinsuð merk­ing­ar­ein­ing og í einmitt þess vegna orð­skrípi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi