Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Velferðarsvið Reykjavíkur vegna ákalls heimilislausra: „Það samtal er í gangi“

Velferðarsvið Reykjavíkur vegna ákalls heimilislausra: „Það samtal er í gangi“
Ákall heim­il­is­lausra um gegn­sæi í neyð­ar­á­ætl­unum Borg­ar­innar Mynd/sam­sett

Á síð­ustu miss­erum hafa heim­il­is­lausir óskað eftir aðstoð fjöl­miðla og sam­landa sinna við að kasta ljósi á aðstæður þeirra. Veturinn hefur verið í kald­ara lagi og veð­urofsi ríkt. Neyð­ar­skýlum á vegum Borg­ar­innar er haldið opnum frá klukkan fimm síð­degis til klukkan tíu að morgni. Þess á milli er fólki gert að yfir­gefa skýlin.

Umgangspestir, veð­urofsi og frosta­hörkur hafa valdið heim­il­is­lausum miklum kvíða og ósk­uðu tvær konur á dög­unum eftir svörum Borg­ar­innar þegar kæmi að svoköll­uðum neyð­ar­á­ætl­unum og gegn­sæi hvenær þær væru virkj­aðar.

Sjá nánar: https://gamla.mannlif.is/frettir/innlent/heimilislausar-konur-krefja-borgina-um-svor-vid-erum-badar-maedur-eigum-vid-bara-ad-deyja-uti/

Mannlíf setti sig í sam­band við Hólm­fríði Helgu Sig­urð­ar­dóttur, upp­lýs­inga­full­trúa vel­ferða­sviðs Reykja­vík­ur­borgar og óskaði eftir svörum.

Hér eru svör frá vel­ferð­ar­sviði:

Hvar liggja mörk borg­ar­innar er varða opn­un­ar­tíma neyð­ar­skýl­anna?

Hversu vont skal veðrið vera – til að Borgin ákveði að halda skýl­unum opnum?

Hvert er gagn­sæið, hvað t.d. veð­ur­skil­yrðin varða? 

Neyð­ar­skýlin eru opin allan sól­ar­hring­inn þegar neyð­ar­á­ætlun í mála­flokki heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir vegna veð­urs er virkjuð. Neyð­ar­á­ætl­unin er virkjuð í rauðum og app­el­sínu­gulum veð­ur­við­vör­unum, þegar fólki er almennt ráð­lagt að halda sig inni við. Hún er líka virkjuð í miklu frosti en það er ekki miðað við ákveðið hita­stig. Vel er fylgst með veð­ur­spám og til­kynn­ingum frá Almanna­vörnum allan vet­ur­inn.

Hér má lesa við­bragðs­á­ætlun neyð­ar­á­ætlun vegna veð­urs.

Hvar geta heim­il­is­lausir og aðrir nálg­ast þessar upp­lýs­ing­arnar?

Þegar slæm veður eru í kort­unum og áætl­unin virkj­ast er það til­kynnt á vef og sam­fé­lags­miðlum Reykja­vík­ur­borgar, auk þess að frétta­til­kynn­ing er send fjöl­miðlum. Leitað er allra leiða til að ná til fólks enda er mark­mið neyð­ar­á­ætl­un­ar­innar að tryggja að upp­lýs­ingar um slæmt veður og opnun neyð­ar­skýla ber­ist not­endum í ótryggum aðstæðum. Allir sem vinna með og fyrir hóp­inn eru látnir vita, svo upp­lýs­ing­arnar ber­ist gestum neyð­ar­skýl­anna. VoR-teym­inu, stjórn­endum neyð­ar­úr­ræða fyrir heim­il­is­lausa, bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, lög­reglu, Rauða kross­inum og for­svars­mönnum tjald­svæða er gert við­vart.

Eru aðrir staðir/athvörf á vegum borg­ar­innar sem heim­il­is­lausir geta leitað yfir dag­inn á meðan skýlin eru lokuð?

Reykja­vík­ur­borg styrkir og á í góðu sam­starfi við Kaffi­stofu Sam­hjálpar, Hjálp­ræð­is­her­inn og Skjólið, sem er dag­setur fyrir konur sem er opið á virkum dögum. Þá hefur heim­il­is­laust fólk líkt og annað fólk í borg­inni aðgang að opin­berum bygg­ingum Reykja­vík­ur­borgar.

Eru fyr­ir­hug­aðar ein­hverjar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lag­inu/ástand­inu?

Hvorki skipu­lag á starf­semi neyð­ar­skýl­anna, né hús­næði sem þau eru í, býður upp á að þeim verði breytt í var­an­legt dagúr­ræði. Þann 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn fól vel­ferð­ar­ráð vel­ferð­ar­sviði að eiga sam­tal við þau hjálp­ar­sam­tök sem sinna þjón­ustu við heim­il­is­lausa, eða eftir atvikum aðra aðila, um mögu­leika á að auka þjón­ustu við hóp­inn. Það sam­tal er í gangi. Þá má benda á að Reykja­vík­ur­borg hefur lagt áherslu á að ríkið og önnur sveit­ar­fé­lög komi í rík­ari mæli að þess­ari þjón­ustu.

Þá sendi Hólm­fríður Helga fund­ar­gerð frá fundi vel­ferð­ar­ráðs frá 21. des­em­ber. Á þeim fundi var fjallað með ítar­legum hætti um mál­efni heim­il­is­lausra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi