Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Matti segir sjálfsást mikilvæga: „Verðum að minnka þörf á viðurkenningu í gegnum samfélagsmiðla“

Matti segir sjálfsást mikilvæga: „Verðum að minnka þörf á viðurkenningu í gegnum samfélagsmiðla“
Skjáskot – Matti Ósvald

Matti Ósvald heilsu­fræð­ingur og mark­þjálfi fann ástríð­una eftir að hafa lent í slysi sem olli því að hann var rúm­liggj­andi mán­uðum saman aðeins 19 ára gam­all. Matti, sem er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að sitt stærsta högg hafi á margan hátt endað sem hans stærsta blessun:

,,Ég hef alla tíð haft áhuga á að vita hvernig fólk virkar og hvaðan við komum. Alveg frá því að ég var barn var ég að lesa bækur af for­vitni um alls kyns mál­efni. En svo er það í raun og veru slys eða alvar­leg meiðsli sem verða til þess að ég fer alla leið í að skoða heild­ræna heilsu og leiðir til að hámarka sjálfan sig. Ég var að spila körfu­bolta 19 ára gam­all og fæ ofan á mig annan leik­mann og svo vakna ég bara einn morg­un­inn í vinkil og get ekki gengið eða gert eðli­lega hluti. Ég gat ekki farið á sal­ernið og leið eins og ég væri með rýt­ing í bak­inu. Til að gera langa sögu stutta þá fór ég til 3 sér­fræð­inga og þeir sögðu mér á end­anum að ég ætti ekki að gera mér miklar vonir um að stunda aftur íþróttir. Það eina sem ég gæti gert væri að liggja í rúm­inu í mánuð og sjá hvort að lík­am­inn geti gert eitt­hvað til að laga þetta. Það var auð­vitað rosa­legt sjokk fyrir ungan íþrótta­strák að fá þessar fréttir. En ég sé núna að líf mitt tók í raun nýja stefnu eftir þetta. Ég þurfti að kafa djúpt og lesa mér til um allt sem til var um heilsu til að koma mér aftur til baka. Það var 12 mán­aða tíma­bil þar sem ég þurfti að taka hvíld frá skóla og öllu og var í raun meira og minna rúm­fastur. En ég komst á end­anum út úr þessu tíma­bili og spila meira að segja ennþá körfu­bolta í dag,” segir Matti, sem segir að eftir þetta tíma­bil hafi hann ein­sett sér að verða mað­ur­inn sem hann hefði þurft á að halda þegar hann meidd­ist:

,,Ég ákvað að fara í nám í heild­rænni heilsu­fræði í Kali­forníu í fjögur ár og smám saman varð ég eins konar þerapisti sem var samt fyrir utan hið hefð­bundna heil­brigð­is­kerfi. Fólk er orðið mun mót­tæki­legra fyrir þessum hlutum í dag, en á þessum tíma sáu margir allt sem var fyrir utan kerfið sem ein­hverja vit­leysu. En ég ákvað að fara þessa leið og vildi gera það vel og leggja mig allan fram.”

Matti hefur í gegnum árin unnið með mik­inn fjölda fólks, sem heilsu­fræð­ingur, mark­þjálfi og nudd­ari og er því með góða mynd af því sem helst plagar fólk í nútím­anum:

,,Auðvitað eru þessir hefð­bundnu hlutir eins og streita, slæmt mat­ar­ræði, hreyf­ing­ar­leysi og of lít­ill svefn að hafa slæm áhrif. En svo eru líka aðrir hlutir sem hafa mikil áhrif. Þessi stans­lausi sam­an­burður er klár­lega eitt af því sem er að valda fólki hve mestri van­líðan. Við erum stans­laust að bera okkur saman við glans­myndir af öðrum og það býr til nið­ur­rif. Í stað­inn ættum við að ein­beita okkur á að horfa inn og átta okkur á því góða í okkur sjálfum. Í raun er sam­an­burður á margan hátt rótin að sorg. Það þurfa ekk­ert allir að hug­leiða eða þess háttar, en bara finna leiðir til að bæta sjálfs­virði sitt. Það er mjög margt gott og skemmti­legt við sam­fé­lags­miðl­ana og sím­ana, en við verðum að minnka þennan stans­lausa sam­an­burð og þörf á við­ur­kenn­ingu í gegnum sam­fé­lags­miðla. Það mun aldrei skila okkur var­an­legri ham­ingju. Ég held að það sé orðin mikil þörf á að fólk læri að elska sjálft sig og það er á margan hátt fyrsta skrefið í að bæta aðra hluti. Sá sem á í brjál­uðu ást­ar­sam­bandi við sjálfan sig mun vilja hlúa vel að sér.”

Matti hefur mikið skoðað karl­mennsku og er með mjög ákveðnar hug­myndir um hvað þarf að ger­ast þegar kemur að karl­mennsku nútím­ans:

,,Við þurfum á hvoru öðru að halda konur og karlar. Fyrir mér er næsta skref í karl­mennsku að hlusta á hvað konur eru að biðja um. Þær geta auð­vitað ekki ákveðið hvernig á að vera karl­maður og eiga ekki að fá að gera það. En í mínum huga er skýrt hvað þær eru að biðja um frá okkur og það er fyrst og fremst öryggi. Getum við byrjað að þróa nýja karl­mennsku, þar sem konum líður öruggum og byrjað þar. Það þýðir ekki að við eigum að vera með­virkir og leyfa þeim að vaða yfir okkur. Ný karl­mennska er alls ekki að fara í bleikan bol og segj­ast vera fem­inisti. Það er skugga­orka bæði í karlorku og kven­orku og við eigum ekki að fest­ast í að skoða bara skugg­ana í karlorkunni, en við karl­menn þurfum að leyfa kven­orkunni að kom­ast í gegn. Og konum verður að líða öruggum nálægt okkur og þær verða að treysta okkur. Flestir karl­menn hafa aldrei þurft að hugsa um það að geta ekki gengið um göt­urnar án þess að vera með augu í hnakk­anum eða ótt­ast um öryggi sitt.”

Matti segir í þætt­inum frá því þegar hann upp­lifði óvart sína eigin jarða­för og hvernig það hafði mikil áhrif á hug­ar­far hans og breytti honum var­an­lega:

,,Dauðinn er lang­besti kenn­ar­inn okkar, af því að hann tekur af borð­inu allt sem ekki skiptir máli. Það var í jarð­ar­för­inni hjá afa mínum og alnafna, Matta Ósvald, sem ég varð fyrir magn­aðri reynslu sem hjálp­aði mér að skilja þetta fyrir alvöru. Afi var orð­inn 98 ára gam­all þegar hann fór og var kraft­mik­ill maður og mikil fyr­ir­mynd. Ég labb­aði inn í kirkj­una eftir kistu­lagn­ing­una til að hugga lít­inn strák sem var grát­andi þegar athöfnin var búin. Ég var að segja honum að afi hafi í raun verið sáttur við að fara þegar mér er litið upp og ég sé hvíta kistu, Kefla­vík­ur­merkið og merki Víkings í Ólafsvík og svo nafnið mitt á öllum kröns­unum. Mér brá í 3-4 sek­úndur, en svo kom yfir mig mik­ill friður. Ég átt­aði mig á því að svona yrði þetta einn dag­inn fyrir mig og sá í raun mína eigin jarð­ar­för. Það var eins og ég fengi gríð­ar­lega sterk skila­boð um að það eina sem skipti máli væri hvernig ég ætl­aði að lifa þangað til að dag­ur­inn kæmi þar sem nafnið mitt yrði aftur á sama stað í kirkj­unni og minn dagur væri kom­inn. Þegar það ger­ist mun fólk halda áfram að fara í búð­ina og kaupa kaffi dag­inn eftir. Það er mik­il­vægt að horfast í augu við það að dauð­inn mun banka upp á einn dag­inn og þá mun lífið halda áfram hjá hinum. Ég verð ævin­lega þakk­látur fyrir að hafa fengið að upp­lifa þetta og sjá þetta svona skýrt.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi