Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leikritið sem endaði með falli

Leikritið sem endaði með falli
Fall er far­ar­heill … eða eitt­hvað.

Mér áskotn­uð­ust tveir leik­húsmiðar um dag­inn og ákvað að bjóða sam­starfs­konu minni sem reyndar er einnig gömul vin­kona mín að austan. Hún hafði ekki farið lengi í leik­hús og var því nokkuð spennt og ég var sjálfur afar spenntur enda lengi verið við­loð­andi leik­hús þó að lítið hafi farið fyrir því síð­ustu árin. Ég var for­maður leik­fé­lags þegar ég var að mig minnir 24 ára og vissi ekki neitt í minn haus, en það er önnur saga. Í leik­hús fórum við.

Um var að ræða frum­sýn­ingu á Shakespe­are-verk­inu Macbeth, hvorki meira né minna. Hvorugt okkar hafði séð verkið áður, en vissum þó að um harm­leik væri að ræða. Þegar við vorum mætt litum við í kringum okkur og sáum sirka níu­tíu pró­sent af öllu frægu fólki á Íslandi. Án þess að ég fari að „name droppa“ of mikið þá var frú Vigdís Finn­boga­dóttir sjálf þarna, en hún er gömul leik­hús­rotta eins og ég (en þar með líkur sam­an­burði á okkur Vigdísi) en einnig flestir leik­arar lands­ins, fjöl­miðla­fólk og fleira gott fólk. Ef Borg­ar­leik­húsið hefði brunnið með öllu fólk­inu þetta kvöld væri Auddi Blö senni­lega fræg­asti Íslend­ing­ur­inn á lífi, ekki að það væri eitt­hvað slæmt, en hann sá ég ekki þetta kvöld.

Sýningin var í heild­ina bara þokka­leg. Leik­ur­inn var góður, útlitið mjög flott, en að okkar mati var það allt of langt. Það hjálp­aði reyndar ekki að bilun varð í tækja­bún­að­inum á svið­inu þannig að leik­ritið tafð­ist um 20 mín­útur og í raun voru tvö hlé. Það byrj­aði klukkan 19 en ég var ekki kom­inn heim fyrr en um 23.30, það er full­mikið fyrir minn smekk enda er ég orð­inn mið­aldra. Við vin­konan skemmtum okkur samt kon­ung­lega (eða drottn­ing­ar­lega ef því er að skipta) enda bráð­skemmti­leg bæði tvö. En þá kem ég að til­gangi þessa pistils en hann er sá sami og hjá mann­inum sem til­kynnti það í blöð­unum snemma á síð­ustu öld, að hann hefði ekki dottið í það á ein­hverri skemmt­un­inni, þrátt fyrir kjafta­sögur um það. Og af hverju þarf ég til­kynna það? Lesið áfram til að kom­ast að því.

Fyrst skal taka fram að þessi saga ger­ist á föstu­deg­inum 13., þekktum óhappa­degi. Áður en vin­kona mín mætti hafði verið keyrt aftan á bíl­inn hennar og var hún nokkuð aum í bak­inu á sýn­ing­unni. Var þetta í annað skiptið þann dag­inn sem keyrt var á bíl­inn hennar en einnig hafði verið bakkað á hann á meðan hún vann. Í báðum hléunum (tækja­bil­un­ar­hléinu og hinu hefð­bundna) var ég nærri því dott­inn í þrep­unum á leið út úr salnum en náði að halda mér á fótum. En þegar við vin­konan ásamt öllum fínu gest­unum, frú Vigdísi og fleirum, gengum út úr salnum í hinsta sinn það kvöldið kvað við annan tón. Þrátt fyrir að vanda mig mjög við að ganga upp þessi blessuðu þrep tókst mér ein­hvern veg­inn að missa fót­anna. Að sönnum herra­manns­stíl greip ég í vin­konu mína í örvænt­ing­ar­fullri til­raun til að bjarga mér frá falli, en allt kom fyrir ekki. Ég rið­aði sífellt meira til falls og greip þeim mun fastar í axlir vin­konu minnar sem af ein­hverjum ástæðum gaf frá sér eitt fyndn­asta öskur sem ég hef á ævinni heyrt, ég get ekki með nokkru móti útskýrt það fyrir les­endum en ég get full­vissað ykkur um að allir, þar með talin frú Vigdís Finn­boga­dóttir, heyrðu þetta og litu á okkur. Áður en ég vissi hafði ég klesst vin­konu mína upp við vegg og dottið á rass­inn sjálfur. Við þetta meiddi hún sig enn meira í bak­inu og ég fékk hnykk á vinstri öxl­ina sem var löskuð fyrir. Við reistum okkur við í hvelli og drifum okkur út. Þegar út var komið öskur­grenj­uðum við úr hlátri og komum varla upp orði.

Þannig að, ef ske kynni að ein­hvern kann­að­ist við mig og vin­konu mína í Borg­ar­leik­hús­inu og hafi orðið vitni að þessu hrotta­fengna falli og öskr­unum í vin­konu minni, þá vorum við blá­edrú. Ég hafði reyndar drukkið eitt kampa­víns­glas klukkan 18.30 og þarna var lið­inn ansi langur tími síðan, en að auki þarf ég tals­vert meira magn af áfengi til að standa ekki í lapp­irnar. Ég gúff­aði í mig súkkulaði­kúlum og drakk Pepsí Max eins og auli og því ekki hægt að kenna drykkju um fallið. Ég er bara óskap­lega klaufskur maður og þar sem ég er vel þungur líka er kannski ekk­ert skrítið að vin­konan hafi öskrað þessi ósköp er ég féll á hana.

Pistill þessi birt­ist í nýjasta net­blaði Mannlífs sem má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi