Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Langveik kona ósátt við framferði lögreglu eftir umferðaróhapp: „Hvað er þetta eiginlega?“

Langveik kona ósátt við framferði lögreglu eftir umferðaróhapp: „Hvað er þetta eiginlega?“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Kona sem ekki vill láta nafn síns getið missti með­vit­und undir stýri er hún keyrði í íbúð­ar­götu í Reykja­vík um dag­inn en konan er lang­veik. Segir hún farir sínar ekki sléttar í sam­skiptum sínum við lög­regl­una.

Vinkona kon­unnar, Sunna að nafni, skrif­aði færslu um málið þar sem hún hneiksl­ast á fram­ferði lög­regl­unnar í mál­inu.

„Langveik vin­kona mín lendir í því um dag­inn að missa með­vit­und undir stýri keyr­andi í íbúð­ar­götu rétt hjá heim­ili sínu. Hún keyrir útaf og í snjó­skafl, þar sem hringt er á lög­reglu og sjúkra­bíl. Hún er þvoglu­mælt og ennþá hálf out of it þegar hún rankar við sér og man ekk­ert hvað gerð­ist und­an­farin klukku­tíma ca. Löggunni grunar að hún sé undir áhrifum áfengis, fíkni­efna eða ópíóða svo þeir taka af henni bíllyklana og fylgja henni á bráða­mótök­una til að bíða nið­ur­stöðu blóðprufna. Vinkonan hafði tekið 1 Tradolan (ópíóði) um morg­un­inn, en hún gerir það flesta morgna og sam­kvæmt upp­lýs­ingum lyfja­fræð­ings þá fer það lyf úr blóð­inu á 6 tímum. Lyfið var tekið kl 10 og slysið varð kl 18, 8 tímum seinna,“ skrifar Sunna í byrjun færsl­unnar. Því næst segir hún að vin­kona hennar hafi sagt lög­regl­unni að kona hennar gæti komið upp á bráða­mót­töku til að sækja lyklana að bílnum sem sat enn fastur á umferð­ar­eyju:

„Vinkonan segir lögg­unni að konan hennar geti komið upp á bráða­mót­töku til að sækja lyklana, en löggan segir nei. Konan hennar kíkir á bíl­inn og sér að hann er fastur en að sama skapi fastur á umferð­ar­eyju og er hvorki fyrir bílum né gang­andi veg­far­endum. Það er ekk­ert að bílnum nema smá beygla á stuð­ara.“

Nið­ur­stöður úr blóðprufum sýna svo ekk­ert athuga­vert í blóð­inu:

„Vinkonan fær nið­ur­stöður úr blóðprufum og hvorki áfengi, fíkni­efni né ópíóðar finn­ast í blóð­inu. Blóðprufur sýna aftur á móti alvar­legan blóð­skort og járn­leysi. Einnig finn­ast hjart­slátta­trufl­anir og blóð­þrýst­ingur er upp og niður.

Löggan fer þar sem ekk­ert sak­næmt hefur átt sér stað en ákveður að taka lyklana samt með sér, í staðin fyrir að skilja þá eftir hjá veikri vin­kon­unni eða leyfa kon­unni að sækja lyklana uppá bráða­mót­töku.“

Næst í færsl­unni segir Sunna frá því er kona vin­kon­unnar sækir lyklanna dag­inn eftir til lög­regl­unnar.

„Daginn eftir fer konan að sækja lyklana og er þá tjáð að bíl­inn hafi verið dreg­inn í burtu og hún þurfi að fara í Vöku til að sækja hann. Konan fer þangað og fær bíl­inn gegn því að borga tæp­lega 50 þús­und króna gjald. Taka ber fram að vin­konan og konan eru báðar öryrkjar.“

Viku seinna fær vin­kona Sunnu afrit af lög­reglu­skýrsl­unni en þar sést að svo virð­ist sem lög­reglan hafi verið búin að ákveða snemma í ferl­inu að vin­konan væri lyfjuð:

„Um það bil viku seinna fær vin­konan afrit af lög­reglu­skýrsl­unni. Þar sést greini­lega á myndum að jú bíll­inn er fastur, en ekki fyrir neinum. Smá mokstur og auð­velt hefði verið að losa hann og ef lykl­arnir hefðu ekki verið teknir þá hefði það verið gert sama dag eða morg­un­inn eftir.Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Vöku þá hefur löggan verið að fá slatta af kærum und­an­farið, vegna þess að þeir eru að láta draga bíla af of litlu til­efni.Í lög­reglu­skýrsl­unni stendur meðal ann­ars:„…en illa gekk að ræða við hana og afla frá henni upp­lýs­inga þar sem hún var sjá­an­lega lyfjuð og alltaf að detta inn og út úr með­vit­und.“ – Þarna eru þeir strax búnir að ákveða að vin­konan sé dópuð.„…hér­aðs­læknir mætti þá á vett­vang og fram­kvæmdi sitt akst­urs­mat á X sem hún féll á.“ – Já auð­vitað, ef það líður yfir fólk sökum blóð­leysis þá er það ekk­ert skrítið að það sé ekki dæmt akst­urs­hæft rétt eftir atburð­inn. Það er ekk­ert sama­sem­merki á milli þess og þess að vera lyfj­aður eða dóp­aður.„…sagði X vera þvoglu­mælta, synd­andi til augn­anna, með óstyrkar augn­hreyf­ingar. Hann sagði einnig að sam­hæf­ing hreyf­ingar X væri frekar léleg og að ástand hennar líkt­ist því að hún væri undir áhrifum mik­illa lyfja.“ – Já vin­konan var mjög veik, það er stað­fest, veik­ari en hún sjálf hélt. Stikkorðið hér er „lík­ist“. Lækn­ir­inn er að líkja ástand­inu við lyfja­neyslu, ekki að segja að svo sé. Mjög veikt fólk getur auð­veld­lega litið út og hegðað sér eins og það sé dópað, ein­fald­lega vegna þess að það er slappt.„…sagði að X hefði sagt við sig að hún væriþá búin að taka ópíóð lyf fyrr um dag­inn sem maki hennar hafi gefið henni áður en hún fór út að aka bif­reið sinni.“ – Já 8 tímum áður, lyfið er farið úr kerf­inu! Líka lyf sem vin­konan tekur reglu­lega, lík­am­inn er þar af leið­andi orð­inn vanur því og engin vímu­á­hrif koma fram, ef þau þá gerðu það nokkurn tíman.Aðeins á einum stað stendur „Neysla efna ekki stað­fest“, á for­síð­unni undir brot/nán­ari skýr­ing. Aldrei er minnst á það í vitn­is­burði og aðal­texta skýrsl­unnar. Það er aftur á móti talað ítrekað um hvernig vin­konan virð­ist lyfjuð og grun­semdir um neyslu. Þetta lítur allt út eins og löggan hafi dæmt strax og skýrslan er sett upp til að rök­styðja þann dóm eða skoðun.

Einnig er athygl­is­vert að orða­lagið „Neysla efna ekki stað­fest“ er notað í stað þess að segja ein­fald­lega að ekk­ert hafi fund­ist. Aftur finnst mér þetta orða­lag vera sett upp til rök­stuðn­ings við það sem löggan var búin að ákveða fyr­ir­fram.“

Að lokum spyr Sunnar ýmissa spurn­inga og er nokkuð orð­hvöss enda ekki sama um vin­konu sína:

„Hvað er þetta eig­in­lega?Hvaða fávita löggu datt í hug að fara bara með lyklana?Af hverju voru lykl­arnir ekki bara skildir eftir annað hvort hjá vin­kon­unni eða í afgreiðslu bráða­mót­töku svo konan gæti sótt þá, losað bíl­inn og keyrt hann heim í gær?Af hverju var hringt í Vöku og þær ekk­ert látnar vita og allur kostn­aður á þeirra höndum?Af hverju er það ekki nóg að læknir stað­festi að vin­konan sé raun­veru­lega veik en ekki full eða dópuð?Af hverju er það ekki tekið skýrt fram í skýrsl­unni að hún var ekk­ert dópuð, bara veik?Af hverju er enda­laust minnst á lyf, að vera lyfj­aður og ópíóða í skýrsl­unni?

Mér finnst þetta vera hálf­gert, eða jafn­vel bara heil­gert, lög­reglu­of­beldi og vald­níðsla.“

Mannlíf spurði hinu lang­veiki vin­konu Sunnu hvort hún hyggð­ist kæra lög­regl­una fyrir að láta Vöku keyra bílnum á brott. „Það er í skoðun. Ekkert ákveðið ennþá,“ svar­aði hún og bætti við að hún væri ennþá að jafna sig því þetta hafi verið áfall og hún sé ennþá veik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi