Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þetta er fólkið sem lifði og dó í árás Rússa á blokkina: „Ég get ekki lifað án þeirra“

Þetta er fólkið sem lifði og dó í árás Rússa á blokkina: „Ég get ekki lifað án þeirra“
Rústir blokk­ar­innar Mynd: Clodagh Kilcoyne / Reuters / Scanpix / LETA

Þann 14 jan­úar sprengdi rúss­neski her­inn níu hæða íbúða­blokk í úkra­ínsku borg­inni Dnipro þar sem minnst 45 manns lét lífið, þar af sex börn. Hér eru sögur nokk­urra þeirra, en þær birt­ust meðal ann­ars á rúss­neska „útlaga­miðl­inum“ Meduza.

Anastasia Shvets

Eftir hina mann­skæðu loft­árás­ina í Dnipro, birt­ist ljós­mynd af Anastasiu Shvets víða á inter­net­inu og í fjöl­miðlum. Ljós­myndin er slá­andi en hún sýnir Anastasiu sitja í rúst­unum við hlið baðkars og part úr vegg sem áður hafði verið flísa­lagður. Þegar flug­skeytið skall á blokk­ina var Anastasia heima með for­eldrum sínum. Á meðan for­eldr­arnir kveiktu á kertum til heið­urs úkra­ínska hers­ins, var Anastasia að hvíla sig fyrir næt­ur­vakt­ina í her­bergi sínu. Seinna sagði hún að hurðin hafi skýlt henni í rúm­inu í spreng­ing­unni og þess vegna hafi hún sloppið „næstum því í heilu lagi.“ For­eldrar hennar lét­ust í árásinni.

Sterk en erfið ljós­mynd

Næsta dag skrif­aði hún færslu á Instagram, en hún vissi á þeim tíma­punkti ekki hvort for­eldrar hennar hefðu lifað af eða ekki. Færslan fjall­aði um það er kær­asti hennar dó á stríðsvell­inum nokkrum mán­uðum áður. „Mér leið eins og hann myndi vernda mig,“ skrif­aði hún. Sagði hún einnig að það eina sem hún hefði hugsað þegar hún sat í rústum heim­ilis síns, hafi verið að hún von­aði að for­eldrar henni fynd­ust. „Ég varð fræg [vegna ljós­mynd­ar­innar], þó ég hafi ekki vitað af því; næstum allir sam­fé­lags­miðl­arnir voru að birta mynd­ina af mér. Og ég vil bara fá for­eldra mína. Ég þjá­ist. Er ég í raun og veru til?“

Mykhailo Korenovsky

Mykhailo Kor­enov­sky er einn af þeim sem lést í árásinni en hann var box­þjálf­ari hér­aðs­liðs Dnipropetr­ovsk. Samkvæmt eig­in­konu hans fór hún út að labba með dætrum þeirra hjóna dag­inn sem árásin var gerð, en Mykhailo ætl­aði að koma aðeins seinna. Fyrst ætl­aði hann að fá sér að borða en hann hafði nýlega lokið box­keppni. Hann var enn heima þegar árásin var gerð.

Ljósmynd af ljós­gulu eld­húsi fjöl­skyld­unnar birt­ist í fjöldi miðla eftir árás­ina.

Önnur sterk ljós­mynd

Kateryna Zelenska

Hin 27 ára Kateryna Zelenska bjó í Dnipro-blokk­inni ásamt eig­in­manni sínum og eins árs gömlum syni þeirra. Vegna þess að hún er heyrna­skert, heyrði hún ekki þegar við­bragðs­að­ilar lýstu yfir algjörri þögn svo hægt væri að heyra í eft­ir­lif­endum árás­ar­innar. Að lokum heyrðu þeir grátur hennar en henni var þó ekki bjargað úr rúst­unum fyrr en morg­un­inn eftir árás­ina. Hún var því um 20 klukku­stundir föst undir leifum íbúð­ar­innar. Þegar hún loks komst á spít­ala mæld­ist lík­ams­hiti Katerynu ekki nema 31 gráður.

Katerynu bjargað úr rúst­unum

Eig­in­maður Katerynu og sonur þeirra, eru ófundnir. Samkvæmt frænda hennar, Nikolai Ivashin, lét­ust þeir báðir að öllum lík­indum. „Ég er bygg­inga­verka­maður og ég og mínir menn erum að vinna í rúst­unum núna; við erum í stöð­ugum sam­skiptum. Og ég veit að [björg­un­ar­menn] sáu barn. Strák­ur­inn var undir rúst­unum og lifði ekki af … hvað varðar eig­in­mann Katerynu, þá er engin von heldur … Ég var á staðnum þegar árásin var gerð og sá allt sem gerð­ist … Tveir dagar hafa liðið. Allir sem var hægt að finna á lífi eru nú þegar fundnir,“ sagði hann í sam­tali við blaða­menn 16. jan­úar.

Figurny fjölskyldan

Daginn fyrir árás­ina ferð­uð­ust hjónin Marina Figurna og Andriy Osynskyi frá Odesa til Dnipro til að heim­sækja ætt­ingja sem þau höfðu ekki séð frá því að stríðið hófst en frá þessu sagði vin­kona Marinu, Arina Med­vedeva á Instagram. Marina, Andriy og fimm aðrir fjöl­skyldu­með­limir voru í íbúð í blokk­inni þegar flug­skeytið hæfði blokk­ina. Aðeins einum var bjargað úr rúst­unum.

Hjónin.

„Dagurinn í dag er hræði­leg­asti dagur ævi minnar. Fjöl­skylda mín, Anna, mín elsku­lega systir sem er bara 15 ára gömul; Marina og Andriy, sem komu frá Odesa og frænka mín Yana og frændi minn Sasha, komu öll hingað til að heim­sækja ömmu okkar og afa en flug­skeyti hæfði bygg­ing­una. Við höfum engar upp­lýs­ingar, þau voru sjö and þeir hafa bara fundið ömmu okkar sem er á gjör­gæslu. Afi okkar dó. Ég þjá­ist mjög. Ég get ekki lifað án þeirra,“ skrif­aði Ksenia, ætt­ingi sem ekki var í bygg­ing­unni er árásin var gerð, á Instagram.

Hægt er að lesa um fleiri fórn­ar­lömb árás­ar­innar í Dnipro á Meduza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta