Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón segir sögur rangar af válegu slysi þar sem skip fórst: „Við virðumst hafa verið ósjálfbjarga“

Jón segir sögur rangar af válegu slysi þar sem skip fórst: „Við virðumst hafa verið ósjálfbjarga“

Jón Ragn­ars­son, vél­stjóri á skip­inu Svani sem fórst í jan­úar árið 1969, segir sögu­sagnir af slys­inu ekki gefa rétta mynd af því sem í raun og veru gerð­ist. Um borð í skip­inu voru sex skip­verjar og björg­uð­ust þeir allir. Jón hand­skrif­aði sína upp­lifun á þessum örlaga­ríka degi, þegar 20 ár voru liðin frá slys­inu.

Brot úr skrifum Jóns Ragn­ars­sonar sem færð hafa verið á tölvu­tækt form.

 Svanur var 101 tonna stál­skip sem smíðað var í Austur-Þýska­landi. Sjó­ferðin örlaga­ríka hófst að kvöldi til þann 28.jan­úar 1969 frá Súðavík.

„Við lögðum af stað í þessa sjó­ferð kl 20:20 þann 28.jan­úar 1969 en það var tím­inn yfir­leitt frá Súðavík. Þá var svo­kall­aður róðra­tími hafður,“ skrifar Jón

Hann segir veðrið hafa verið fag­urt en spáin lof­aði ekki góðu. Stormspá var fyrir Vest­fjarð­ar­mið um morg­un­inn 29.jan­úar.

Jón var ósáttur með frá­sagnir af slys­inu, það hafi ekki verið talað við alla um borð heldur ein­ungis Grétar Örn­ólfs­son, skip­stjóra skips­ins. Hann nefnir bæk­urnar „Spaug­sami vor­fugl­inn“ og „Þrauta­góðir á rauna­stund“. Sú fyrr­nefnda eru end­ur­minn­ingar Þrastar Sig­tryggs­sonar sem þá var skips­herra á varð­skip­inu Þóri og var meðal þeirra sem björg­uðu skip­verjum Svans. Sú síð­ar­nefnda er sam­an­safn sagna af björg­un­ar­að­gerðum á sjó, hún kom út í nítján bindum og var sagan af slys­för Svans þar á meðal.

„Greini­legt var að engan var talað við nema Grétar skip­stjóra og allt haft eftir honum. Nú vil ég taka það fram að ég ætla ekki að gera lítið úr hans hlut, en við vorum fimm með honum og við virð­umst hafa verið ósjálf­bjarga sbr. bók Þrastar skip­herra. Þetta er aðeins brot af ósann­indum sem eru í þessum greinum enda haft eftir einum manni og ætla ég ekki höf­undum þess bóka svo slæmt að þeir segðu ósátt vilj­andi eða skáld­uðu upp þessar sögur en þeir hefðu mátt kynna sér málið betur og taka með alla skip­brots­menn­ina, þá hefði allt komið betur í ljós.“

Hann segir Grétar og annan skip­verja hafa lagst til svefns, hinir fjórir stóðu saman í stýr­is­hús­inu. Þar sáu þeir að vindur og sjór fór versn­andi. Illa sást út vegna ísingar og móðu á glugga.

„Þeir köll­uðu „brot!“ og ég sló strax af og sneri upp í, brotið leið hjá. Skömmu síðar kalla þeir aftur en þeir eru ekki fyrr búnir að sleppa orð­inu þegar það skellur á bátnum af ógur­legum krafti. Brotið hrein­lega kastaði bátnum á hlið­ina og keyrði hann niður, ég setti á fulla ferð og ætl­aði að keyra bát­inn upp en þá sá ég að vélin var stopp. Allt ger­ist þetta á svip­stundu og mér var hugsað að svona hafi þeir allir farið.“

Við fyrra brotur hafði kokkur skips­ins, Þórður Sig, kast­ast aftur fyrir sig og slasast á öxl. Skipið lá á hlið­inni, skips­verjarnir náðu að klifra út og upp á stýr­is­húsið. Grétar skip­stjóri var þarna vakn­aður og kom­inn fram, Jón minnir hann á neyð­ar­tal­stöð­ina. Grétar rétti Jóni tal­stöð­ina og sendi hann umsvífa­laust út neyð­ar­kall. Jóni datt þá í hug að telja menn­ina en sá að einn þeirra vant­aði. Kjartan, bróðir Jóns, var enn inni í bátnum. Jón skip­aði Grétari að snúa við, sem hann gerði. Kjartan var aðeins 15 ára gam­all en komst upp úr bátnum.

„Finnst mér Kjartan hafa sýnt ótrú­legan kjark og dugnað við að kom­ast upp úr bátnum við þessar aðstæður. Það var óskemmti­legt að lenda í svona atviki vak­andi en það hlýtur að vera martröð að vakna við þessar aðstæður í kol­svarta­myrkri niðri í káetu.“

Menn­irnir komust í gúmmí­bát­inn en veðrið var enn slæmt. Þakið á stýr­is­hús­inu fauk af og lenti á björg­un­ar­bátnum sem varð til þess að hann lagð­ist niður. Annar gúmmí­bátur var bund­inn við skips­hrakið og reyndu þeir að ná til hans. Það gekk erf­ið­lega.

„Á einni öld­unni er Svanur lyft­ist fest­ist ég undir ljós­kast­ara sem var framan á brúnni og dróst í kaf. Mér fannst ég vera í óra­tíma í kafi en mér tókst að halda mér með fót­unum í gúmmí­bát­inn og losa mig frá ljós­inu.“

Jón á yngri árum.

Áfram héldu menn­irnir að reyna að ná til heila gúmmí­báts­ins, á einum tíma­punkti hékk yfir þeim bali fullur af lóðum. Að lokum náðu Grétar og Jón til gúmmí­báts­ins.

„Minnist ég þess að Grétar skip­stjóri sagði við mig þegar við vorum komnir yfir í seinni bát­inn „eigum við ekki að fara um borð í Svan og reyna að bjarga honum?.“ Ég sagði að hann mætti fara en ég færi ekki. Ekki bættu þessi orð traust mitt á honum, ég sá að hann hafði fengið áfall og lái honum það eng­inn“

Jón sendi út annað neyð­ar­kall, hann fékk svar en það heyrð­ist dauft. Eftir nokkrar til­raunir kom í ljós að á hinni lín­unni voru skips­menn Sólrúnar frá Bol­ung­ar­vík.

„Ég spurði nú Grétar hvort hann vildi ekki taka við tal­stöð­inni en hann neit­aði því og bað mig um að vera með hana áfram, sem ég gerði. Ég hafði stöðugt sam­band við Sólrúnu.“

Hálfdán Ein­ars­son, skip­stjóri á Sólrúnu, lagði hart að sér við að finna menn­ina, sem hann að lokum gerði. Hann var við björg­un­ar­bát­inn þar til varð­skipið kæmi, það væri betur búið til að taka við þeim. Það tók varð­skipið 20 mín­útur að finna menn­ina.

„Ég sagði við strák­ana: „Við skulum láta Þórð fara fyrst vegna þess að hann er slas­aður“ og var það sam­þykkt. Grétar var fyrsti mað­ur­inn sem fór úr gúmmí­bátnum og um borð í varð­skipið, þó annað hafi verið talað um. Ég sagði við félaga minn: „Ég skal fara síð­astur fyrst hann var fyrstur“ og gerði það. Ég fann að ég gæti ekki gengið vegna dofa í fót­unum og vorum við allir orðnir þrek­aðir af kulda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi