Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eva um mál Skúla: „Óháður sérfræðingur telur að ekki hafi verið forsendur fyrir lífslokameðferð“

Eva um mál Skúla: „Óháður sérfræðingur telur að ekki hafi verið forsendur fyrir lífslokameðferð“
Eva Hauks­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson

Lög­mað­ur­inn Eva Hauks­dóttir skrifar grein er ber yfir­skrift­ina: Meint þagnar­skylda um lífs­loka­með­ferð.

„Skúli Tómas Gunn­laugs­son, læknir sem grun­aður er um stór­felld brot í starfi, virð­ist eiga í nokkuð sér­stöku sam­bandi við veru­leik­ann. Hann er m.a. grun­aður um að hafa sett sjúk­linga á lífsloka­með­ferð án til­efnis en það eru bara alvar­leg­ustu brotin.

Þar til í síð­ustu viku hafði ekk­ert heyrst um afstöðu Skúla síðan í des­em­ber 2021 þegar fjöl­miðlar greindu frá því að hann teldi kæru­mál gegn sér byggð á mis­skiln­ingi.

Nú hefur lög­reglan lokið rann­sókn og mis­skiln­ing­ur­inn er ekki stærri en svo að mál­inu hefur verið vísað til ákæru­sviðs.“

Eva bætir við:

Skúli Tómas Gunn­laugs­son hefur stöðu grun­aðs í mál­inu.

„Skúli Tómas hefur nú rofið þögn­ina, seg­ist bor­inn röngum sökum, gefur til kynna að mats­gerðir dóm­kvaddra mats­manna sanni sak­leysi sitt, og kvartar undan ein­hliða umfjöllun fjöl­miðla. Ég hef aðeins séð mats­gerðir sem varða mál móður minnar. Þær eru í fullu sam­ræmi við mat ann­arra sér­fræð­inga.“

Eva nefnir að „sam­kvæmt mats­gerð sem varðar hjúkrun var reglum fylgt við umönnun en sam­kvæmt mats­gerð sem varðar lækn­is­fræði­lega með­ferð, sem Skúli bar ábyrgð á, sætti móðir mín lífsloka­með­ferð sem ekki voru for­sendur fyrir. Staðan er ein­fald­lega sú að; óháður sér­fræð­ingur sem vann álits­gerð fyrir emb­ætti land­læknis telur að ekki hafi verið for­sendur fyrir lífsloka­með­ferð, sér­fræð­ingar emb­ættis land­læknis telja að ekki hafi verið for­sendur fyrir lífsloka­með­ferð, dóm­kvaddir mats­menn hafa í tvígang kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki hafi verið for­sendur fyrir lífsloka­með­ferð.“

Hún segir einnig að „þá er und­ar­leg sú stað­hæf­ing Skúla að sjúk­lingar hans hafi lát­ist af nátt­úru­legum orsökum því eðli máls sam­kvæmt deyr fólk af nátt­úru­legum orsökum ef það er sett á lífsloka­með­ferð. Þess vegna á ekki að beita lífsloka­með­ferð fyrr en sjúk­ling­ur­inn er sann­ar­lega deyj­andi.

Rétt­ar­gæslu­maður móður minnar hefur greint nánar frá efni mat­gerð­innar sem Skúli telur sér svo hag­stæða.

Það er rétt hjá Skúla að umfjöllun fjöl­miðla hefur verið ein­hliða, enda lítið hægt um hans hlið að segja þegar hann neitar að ræða hana. Skúli ber fyrir sig þagn­ar­skyldu, sem hann heldur fram að geri sér ómögu­legt að tjá sig um málið. Það er fyr­ir­sláttur. Þagn­ar­skyldan varðar sjúk­linga – ekki verk­lag á heil­brigð­is­stofn­unum. Skúli getur ekki rætt sjúk­dóma eða önnur per­sónu­leg mál sjúk­linga en málið snýst ekki um heilsu­far þeirra sem hann er tal­inn hafa brotið gegn, heldur um það hvernig staðið var að með­ferð þeirra.

Skúli getur að sjálf­sögðu lýst því hvernig almennt var staðið að lífsloka­með­ferð undir hans stjórn á HSS. Hann getur útskýrt hvernig ákvörðun um lífsloka­með­ferð var tekin, hvaða for­sendur lágu ákvörðun til grund­vallar, hvernig skrán­ingu var háttað, hvort sam­ráð var haft við annað starfs­fólk og hvernig brugð­ist var við ef annað starfs­fólk en ábyrgur læknir taldi eitt­hvað athuga­vert. Hann getur líka sagt frá því hvenær og hvernig það mat læknis að sjúk­lingur væri deyj­andi var kynnt aðstand­endum og þeim sjúk­lingum sem voru með með­vit­und. Hann getur lýst því hvernig sam­þykkis var aflað frá sjúk­lingi og/eða aðstand­endum og hvernig hann brást við þegar aðstand­endur töldu slíka með­ferð ótíma­bæra eða vildu að ákvörðun yrði end­ur­skoðuð.

Hann getur sagt frá þeim áhrifum sem það hafði á fram­vindu með­ferðar þegar sjúk­lingi fór fram þrátt fyrir með­ferð sem felur ekki í sér lækn­inga­til­raunir og er ein­göngu ætlað að lina þján­ingar mann­eskju sem sann­ar­lega er deyj­andi.“

Eva segir að „Skúli getur líka útskýrt af hverju svo margir voru óánægðir með störf hans að lög­regla hefur nú lokið rann­sókn ell­efu mála þar sem hann bar ábyrgð á með­ferð sjúk­linga. Þar af eru sex mál þar sem grunur er uppi um ótíma­bæra lífsloka­með­ferð.

Ef málið snýst ekki um með­ferð sjúk­ling­anna, um hvað snýst það þá?

Allt þetta getur Skúli tjáð sig um opin­ber­lega án þess að brjóta trúnað við nokkurn mann. Heið­ar­leg svör yrðu mjög upp­lýsandi fyrir almenn­ing. Nú þegar Skúli er loks til­bú­inn að tjá sig væri upp­lagt að blaða­menn gengju eftir svörum um þessi atriði. Vonandi veitir Skúli við­tal og von­andi verður hann þá kom­inn í betra sam­band við raun­veru­leik­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi