Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Maria úr Pussy Riot óttast þriðju heimsstyrjöldina: „Það yrði í raun algjör martröð“

Maria úr Pussy Riot óttast þriðju heimsstyrjöldina: „Það yrði í raun algjör martröð“
Maria Alyok­hina Mynd: Björgvin Gunnarsson

Hópur sem kallar sig Rússar gegn stríði mót­mæltu fyrir utan Rúss­neska sendi­ráðið í Reykja­vík á laug­ar­dag­inn. Maria Alyok­hina úr pönkk­hljóm­sveit­inni og aktí­vista­hópnum Pussy Riot hélt ræðu á fund­inum.

Mótmælin voru partur af alþjóð­legum mót­mælum Rússa en fóru þau fram víða um heim á laug­ar­dag­inn. Voru þau haldin í til­efni þess að tvö ár voru liðin frá því að stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn Alexei Navalny var hand­tek­inn fyrir upp­lognar sakir og dæmdur í 11 ára fang­elsi í Rúss­landi en áður hafði verið eitrað fyrir honum. Var því lögð áhersla á póli­tíska fanga Vla­dimirs Pútíns Rúss­lands­for­seta, á mót­mæl­unum.

Mót­mæl­end­urnir voru um 20 tals­ins en þau stilltu sér upp fyrir framan sendi­ráð Rúss­lands, sum hver með lím­band fyrir munn­inn, hald­andi á skiltum sem sýndu nokkra af þús­undum póli­tískra fanga Rúss­lands.

Blaða­maður Mannlífs var á staðnum og tók við­tal við Mariu Alyok­hina úr Pussy Riot-hópnum en hún hélt ræðu á mót­mæl­unum. Hún hefur sjálf mátt sæta ofsóknum yfir­valda í Kreml en árið 2012 var hún dæmd, ásamt tveimur öðrum konum úr Pussy Riot, til tveggja ára fang­els­is­vistar fyrir gjörn­ing sem þær gerðu í kirkju í Moskvu. Hún kom til Íslands fyrir viku og verður að hennar sögn í eina til tvær vikur í við­bót.

Frá því að stríðið hófst í Úkraínu hefur Maria verið hand­tekin í nokkur skipti vegna opin­bers stuðn­ings hennar við Úkraínu en í apríl 2022 ákvað hún að flýja heima­landið, eftir að henni hefði verið til­kynnt af yfir­völdum að hún yrði dæmd til vistar í ein­hvers­konar „hegn­ing­ar­ný­lendu“ en Ragnar Kjart­ans­son lista­maður hjálp­aði henni meðal ann­ars að flýja Rússland.

„Árið 2021 fóru þeir að hand­taka mig fyrir það að vera ég sjálf, ég var ekki að gera neitt. Í þeirra augum var ég hættu­leg fyrir að vera ég sjálf. Vegna þess að lög­reglan er enn að rann­saka mál mín í Rúss­landi, hugsa ég að mér yrði stungið inn í fimm, sex ár ef ég kæmi aftur þangað,“ sagði Maria í sam­tali við Mannlíf. „Fyrir mér er þetta ekk­ert mikið vanda­mál fyrir mig en ég held að ef maður hefur þann mögu­leika, og hann hef ég, til að styðja við Úkraínu og safna pen­ing fyrir fólkið þar, þá þarf ég að gera það. Nú þarf að ein­blína algjör­lega á Úkraínu og á sigur gegn Rúss­landi því ef að Úkraína vinnur ekki þetta stríð munu fleiri lönd verða fyrir árásum og þriðja heim­styrj­öldin hefj­ast. Það yrði í raun algjör martröð.“

Sagði hún einnig að allt það sem nú er að ger­ast komi fólki í Rúss­landi, að minnsta kosti það fólk sem er á móti Pútín, ekk­ert á óvart. „Því miður er þetta ekki ein­hverjar hvat­vísar ákvarð­anir heldur partur af keðju kúg­unnar, þróun sem hefur átt sér stað frá byrjun í raun, en þó aðal­lega upp úr 2011-2012.“

For­eldrar Mariu eru enn í Moskvu en henni tókst að koma barns­föður sínum og syni úr landi í tæka tíð. „Ég kom þeim úr landi eftir að rúss­neskar öryggs­is­sveitir voru farnar að heim­sækja þá en þetta gerði ég líka tveimur vikum fyrir herkvaðn­ing­una en barns­faðir minn er á þeim aldri að hann er gjald­gengur og sonur minn er næstum því 16 ára og því einnig gjald­gengur. Og þetta er mín helsta martröð. En For­eldrar mínir eru þar enn, og ég sakna þeirra mjög mikið,“ sagði Maria og beygði smá af.

Eins og áður segir hefur Maria þurft að dúsa í fang­elsi í nokkur ár í Rúss­landi en hvernig var komið fram við hana þar? „Það var mis­jafnt eftir fanga­vörðum. Flestir fanga­verðir bera virð­ingu fyrir póli­tískum föngum, sér­stak­lega ef þú ert kona. Þeir bera virð­ingu fyrir fólki sem trúa því sem það stendur fyrir. En ekki allir samt, ég hef því miður séð það, sér­stak­lega eftir að stríðið byrj­aði að fanga­verðir og lög­reglu­menn hafa verið algjör­lega heila­þvegnir. Áróð­ur­inn er mjög svip­aður og sást í Þýska­landi Nas­ism­ans. Þetta er alræð­is­hyggju­heila­þvottsá­róður. Og hann virkar. Og við getum ekki sagt að þetta sé bara í sjón­varp­inu og gleymt þessu. Þetta er heila­þvottur.“

En heldur Maria að eitt­hvað myndi breyt­ast ef Pútín myndi deyja?

„Við verðum að krefj­ast alþjóð­legra rétt­ar­halda yfir Pútín fyrir stríðs­glæpi og allra þeirra sem bera ábyrgð á þessu stríði. Þetta þyrftu að vera opin­ber rétt­ar­höld þar sem fórn­ar­lömb stríðs­ins myndu bera vitni. Án opin­berra rétt­ar­halda, án frá­sagna um það sem er í gangi, gæti fram­tíðin orðið sú sama og nútím­inn og sagan gæti end­ur­tekið sig. Akkurat núna er Pútín og hans rík­is­stjórn ekki að gera neitt nýtt, þeir eru að nota gamlar aðferðir, stundum Nas­ista­á­róður, stundum Sovíet áróður eins og þegar þeir kalla okkur „óvini rík­is­ins“ og „óvini fólks­ins“. Til þess að geta átt fram­tíð, verðum við að skilja hvað er að ger­ast núna. Og ég held að dauði Pútíns yrði ekki nein alvöru lausn, því miður.“

Hér fyrir neðan má sjá ljós­myndir og hlusta á eina af ræð­unum sem fluttar voru á mót­mæl­unum á laug­ar­dag­inn. Það var Björgvin Gunn­ars­son sem tók ljós­mynd­irnar og mynd­skeiðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi