Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frásögn barþjóns af kynferðislegri áreitni á þorrablóti: „Ómerkilegt atvik sem kannski má læra af“

Frásögn barþjóns af kynferðislegri áreitni á þorrablóti: „Ómerkilegt atvik sem kannski má læra af“
Íslenskur sæl­kera­matur Mynd: whatson.is

„Saga af kyn­ferð­is­legri áreitni á barnum: ómerki­legt atvik sem kannski má læra af.

Þorra­blótið var alveg frá­bært! Ég vil bara byrja á því að taka fram að ég deili þessu alls ekki til þess að kasta nokk­urri rýrð á þennan geggj­aða við­burð. Það er bara þannig að þegar margir koma saman eru yfir­leitt ein­hverjir sem haga sér eins og fávitar. Þjóð­há­tíð í Eyjum hefur t.d. mikið fengið að kenna á þessu í gegnum tíð­ina, en er engu að síður alveg frá­bær hátíð sem ég styð heils­hugar.“ Svo hljóðar færsla sem kona nokkur utan af landi skrif­aði á Facebook nýverið. Vill hún ekki koma fram undir nafni en gaf leyfi á birt­ingu færsl­unnar.

Í færsl­unni segir hún frá kyn­ferð­is­legu áreitni sem hún varð fyrir um síð­ustu helgi en þá vann hún sem bar­þjónn á þorra­blóti á lands­byggð­inni. Tekur hún fram í færsl­unni að hún sé ekki að reyna að „kasta rýrð á karl­kynið“ með skrif­unum, heldur vilji hún með frá­sögn­inni vekja fólk, þá sér­stak­lega karl­menn til umhugs­unar um að þessi hegðun á sér stað í kringum þá, þó þeir haldi kannski að svo sé ekki. Veltir hún fyrir sér ástæð­unni fyrir þess­ari afleitu hegðun manns­ins og kemst í raun að nið­ur­stöðu en hún er ekki sú að hann hafi verið að „grín­ast“ eða reyna við sig.

„Svo vil ég líka taka fram að ég er ekki að reyna að kasta rýrð á karl­kynið með þessum skrifum heldur. Ég skil alveg að margir karl­menn hafi áhyggjur af því að lenda í að vera sak­aðir um eitt­hvað mis­jafnt í sam­skiptum sínum við konur og ég er heldur ekki þeim megin að mér finn­ist að þeir sem hafa brotið af sér kyn­ferð­is­lega gagn­vart annarri mann­eskju eigi bara ekki að eiga aft­ur­kvæmt í mann­legt sam­fé­lag. Öll erum við breysk, klúðrum ein­hverju í sam­skiptum okkar við fólk og þeir sem sjá að sér og reyna að bæta sig eiga að fá það tekið til greina að mínu mati, allt í sam­ræmi við aðstæður hverju sinni.

Mig langar hins vegar að deila þessu til þess að vekja vit­und um það hjá fólki, já og sér­stak­lega karl­mönnum sem þekkja mig og halda að þetta sé ekki að ger­ast í kringum þá, því kon­urnar vita þetta jú flestar nú þegar.“

Og þá hófst frá­sögnin af þorra­blót­inu.

„Þegar ég var að vinna á barnum á þorra­blót­inu kom til mín maður og tók að spyrja mig nær­göng­ulla og með öllu óvið­eig­andi kyn­ferð­is­legra spurn­inga. Það sem hann sagði finnst mér ekki birt­ing­ar­hæft, svo ég fer ekki nánar út í það. Ég þótt­ist ekki skilja hvað hann væri að spyrja um og bað hann um að útskýra nánar. Þegar maður er 42 ára er maður búinn að viða að sér ýmsum aðferðum til að díla við svona­lagað, og þessi aðferð virkar yfir­leitt mjög vel. Hann varð auð­vitað bara mjög pirr­aður á mér og sneri sér að næstu konu og byrj­aði að gera það sama við hana.Var þessi gaur ekki bara að reyna við mig? Neibb. Hann sýndi mér engan áhuga, þannig séð, og gerði ekk­ert sem gæti opnað á ein­hvers­konar eðli­leg sam­skipti okkar á milli, kyn­ferð­is­leg eða ann­ars­konar. Það að karl­menn reyni við mig truflar mig ekki neitt. Ég er á því að karl­menn eigi að reyna við konur ef þeir hafa áhuga á því og við aðstæður þar sem það á við, þannig verður jú nýtt fólk meðal ann­ars til, en þetta var ekki það.Var hann þá ekki bara svona mik­ill klaufi í sam­skiptum? Neibb. Til­tölu­lega vel máli far­inn og að því er virt­ist frekar sjálfsör­uggur gaur.Var þetta daður? Nei, alls ekki. Daður er mikið fín­legri list en þetta, meint allt öðru­vísi og er skemmti­legt fyrir báða aðila. Ef þú ert að daðra við ein­hvern sem ekki tekur undir, þá er það ekki lengur daður.

Var hann þá ekki bara að grín­ast? Æi…það var þá alla­vega rosa­lega lélegt grín, og hvorki hann né ég hlógum…Þó grunar mig að ef hann ætti að svara þessum skrifum mínum, þá myndi línan „get­urðu ekki tekið gríni?“ lík­lega koma upp. En jú, ég nefni­lega get alveg tekið gríni.

Hvað var hann þá að gera? Hann var að reyna að slá mig út af lag­inu. Hann var að reyna að ná ein­hvers­konar völdum yfir mér, þó að það væri bara í smá stund og á svona ómerki­legan hátt. Hann var að reyna að láta mér líða illa. Um það snýst málið.Það tókst nú ekki hjá honum. Mér leið bara ágæt­lega og fannst hann bara asna­legur. Ég skemmti mér kon­ung­lega það sem eftir var næt­ur­innar og þetta hefur sama sem engin áhrif á mig, en það þýðir ekki að það sé bara í góðu lagi að haga sér svona. Fólk er afskap­lega mis­við­kvæmt fyrir svona og ef þetta hefði verið ein­hver önnur kona gæti þetta hafa farið mjög illa í hana.Ástæðan fyrir því að ég deili þessu er að ég er að von­ast vekja fólk aðeins til umhugs­unar. Ég held líka að það sé mik­il­vægt að fólk viti að þó að kona sé gift tveggja barna móðir í ábyrgð­ar­stöðu, þá getur hún samt lent í svona­lögðu, þó að ég sé vissu­lega ekki jafn ber­skjölduð og ég var þegar ég var yngri, óreynd­ari og vann t.d. þjón­ustu­störf. Það skal þó tekið fram að ég var þarna vissu­lega í hlut­verki bar­þjóns.Kyn­ferð­is­legt ofbeldi og kyn­ferð­is­leg áreitni snýst oft alls ekki um kyn­líf og lélega stjórn fólks á kyn­hvöt sinni, heldur miklu frekar það að ná völdum yfir annarri mann­eskju. Þetta var algjör­lega lýsandi dæmi um það, og samt nógu létt­vægt til þess að flest fólk ætti að geta lesið um það án þess að fríka út, en von­andi hefur nú engum fund­ist þetta of óþægi­leg lesn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi