Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Starfsmenn segja Íslandshótel minna á þrælabúðir: „Tilraun til nauðgunar er hluti af vinnu ykkar“

Starfsmenn segja Íslandshótel minna á þrælabúðir: „Tilraun til nauðgunar er hluti af vinnu ykkar“
Davíð Torfi Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri Íslands­hót­ela

Davíð Torfi Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri Íslands­hót­ela, full­yrti í gær í Reykja­vík Síðdegis á Bylgj­unni að Efling væri að „ráð­ast á eitt fyr­ir­tæki“. Samn­inga­nefnd verka­lýðs­fé­lags­ins sam­þykkti í vik­unni verk­falls­boðun sem tekur til starfs­stöðva Íslands­hót­ela.

Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og ferða­mála­ráð­herra, tók svo í sama streng í kvöld­fréttum RÚV og sagði þetta ósann­gjarnt af Eflingu. Nafn­lausar frá­sagnir fyrr­ver­andi starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins benda þó til þess að það sé jafn­vel mjög við­eig­andi að verk­fallið bein­ist að Íslands­hót­eli.

Í þræði á sam­fé­lags­miðl­inum Reddit eru nokkrir sem vara fólk við að starfa hjá fyr­ir­tæk­inu. Umræðan hófst í gær þegar einn not­andi spurði um reynslu fólks af slæmum vinnu­stöðum og yfir­mönnum á Íslandi. Fjöl­margir svör­uðu og eru mörg fyr­ir­tæki nefnd á nafn, svo sem ÁTVR og skemmti­stað­ur­inn Gauk­ur­inn. Hér má lesa allar þær sögur. ´

Nokkrir nefna þó Íslands­hótel eða Foss­hótel, en sama fyr­ir­tæki rekur þau bæði. Einn not­andi lýsir reynslu sinni af því að vinna á hót­el­inu svo: „Foss­hótel ( Íslands­hótel) nota van­kunn­áttu starfs­manna sinna á rétt­indum sínum til að svindla á þeim. Þau borga nærri aldrei yfir lág­marks­launum sam­kvæmt kjara­samn­ingum. Starfs­menn fá oft ekki lág­marks­hvíld sem kveðið er á um í kjara­samn­ingum. Erlendis starfs­menn á lélegum launum vinna vinnu latra Íslend­inga sem eru í áskrift af launum sínum og gera lítið sem ekk­ert. Starfs­menn fá fáar pásur og vinna oft 12 tíma á fót­unum.“

Við­kom­andi heldur áfram og segir starfið hafa minnt sig á þræla­búðir. „Örygg­is­mynda­vélar eru á þeim einu stöðum þar sem hægt er að sitja í sófum til að hlaða batt­er­íin til að halda áfram vinnu. Micromanaging yfir­menn labba um allan dag­inn og passa að starfs­menn eru ekki að taka „óþarfa“ pásur eins og þetta séu þræla­búðir. Þau ná lítið að halda í starfs­menn vegna lélegra kjara og mik­illar vinnu, fyrir utan þá starfs­menn sem eru komnir með Stockholm Syndrome. Íslands­hótel hagn­ast um hund­ruðir milj­ónir á ári og mest­megnið af því er greitt út sem arður til örfárra eig­enda. Ekki láta ykkur detta í hug að sækja um hjá þessum hót­elum eða gefa þeim við­skiptin ykkar.“

Fleiri hafa svip­aða sögu að segja af fyr­ir­tæk­inu. Annar segir tekur undir og skrifar: „Vann hjá þeim í aðeins meira en 1 og hálft ár. Upplifun mín var sú sama, þegar öllu lok­aði í covid fann ég mér nýja vinnu. Skellti næstum uppúr þegar yfir­maður hringdi í mig og spurði hvort ég kæmi ekki til­baka þegar það var opnað aftur.

Sá þriðji segir hót­el­stjóra hafa sagt við starfs­menn sem unnu í spa hót­els­ins: „Kyn­ferð­is­leg áreitni og til­raun til nauðg­unar er hluti af vinnu ykkar“.

Sá fjórði lýsir reynslu sinni svo: „Ég vann á Foss­hótel Reykja­vík frá opnun í kannski 1-1.5 ár. Þau ákváðu eftir nokkra mán­uði af allir myndu fá vinnu­jakka­föt. Ég var ekki hrif­inn af hug­mynd­inni (léleg gæði, svitn­aði ótrú­lega mikið í mót­tök­unni, ljót). Svo var okkur sagt að við ættum að þvo þau sjálf. Mér fannst það mjög skrýtið. Kvartaði smá. Spurði trún­að­ar­mann­inn hjá stétt­ar­fé­lag­inu hvort það mætti. Yfir­mað­ur­inn minn komst að því, varð algjör­lega brjál­aður og til­kynnti að nú yrði stríð, og byrj­aði að koma mjög illa fram við mig, af ásettu ráði. Gaur sem ég kunni mjög vel við fyrst. Ekki eftir þetta. Aðstoð­ar­hót­el­stjóri reyndi líka að fá mig til að tala við sig i stað­inn fyrir trún­að­ar­mann­inn (nýbúið að reka hann þá). Hún sagð­ist vera trún­að­ar­mað­ur­inn (hún var það ekki, auð­vitað). Ógeðs­legt pakk. En mjög skemmti­legir sam­starfs­menn. En ekki Gunnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi