Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frosti hafnar ásökunum Eddu Pétursdóttur: „Gerði ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar“

Frosti hafnar ásökunum Eddu Pétursdóttur: „Gerði ekki neinar leynilegar upptökur af kynlífi okkar“
Frosti Logason Photo / Facebook

„Ég lagði aldrei hendur á fyrr­ver­andi kær­ustu mína ,beitti hana ekki and­legu ofbeldi á meðan á sam­bandi okkar stóð og ég gerði alls ekki neinar leyni­legar upp­tökur af kyn­lífi okkar eins og haldið er fram,“ skrifar Frosti Logason fjöl­miðla­maður á Facebook vegna ásak­ana Eddu Pét­urs­dóttur, fyrr­ver­andi kær­ustu sinnar.

Edda kom fram í þætti Eddu Falak, Eigin konur, þar sem hún bar Frosta þungum sökum.

Frosti missti vinnu sína hjá Sýn í fram­hald­inu og fór á sjó­inn. Nú stígur hann fram til að koma skikk á umræð­una. Hann vísar til mis­skiln­ings um að hann hefði geng­ist við ásök­unum Eddu Pét­urs­dóttur sem hafi komið til vegna fyr­ir­sagna í fjöl­miðlum í mars í fyrra:

„Þetta er að hluta til rétt en stað­reyndin er sú að ég hef aldrei geng­ist við öllum ásök­unum hennar eins og margir virð­ast nú halda.

Í til­kynn­ingu minni sagð­ist ég taka fulla ábyrgð á hegðun minni, og að ég rengdi ekki að henni hafi liðið illa vegna þess sem ég gerði eftir að sam­bandi okkar lauk. En þá fór ég í þrá­hyggju fyrir því að fá við­ur­kenn­ingu á „brotum hennar“ gagn­vart mér og tók að senda ítrek­aða tölvu­pósta til hennar á nokkra mán­aða tíma­bili. Mér þykir það mjög leitt að ég hafi gripið til inni­halds­lausra hót­ana í þessum tölvu­póstum,“ skrifar Frosti.

Hann segir að fyrr­ver­andi kærasta sín hafi ekki tekið neinum til­raunum hans til sátta:

„Ég hef allar götur síðan að við­talið við fyrr­ver­andi kær­ustu mína birt­ist lagt áherslu á að rétta til hennar sátt­ar­hönd. Það hef ég bæði gert sjálfur per­sónu­lega og í gegnum fag­að­ila. Þess vegna hef ég á sama tíma setið hljóður hjá og gætt mín að fara aldrei út í að greina rétt frá röngu í mál­flutn­ingi hennar opin­ber­lega.

Mér hefur heldur aldrei fund­ist við hæfi að hengja upp okkar skítug­asta þvott frammi fyrir allra augum því hann á ekk­ert erindi til almenn­ings. Ég ber enn þá von í brjósti að fyrr­ver­andi kærasta mín muni ein­hvern tím­ann vilja ljúka þessu máli með mér á þann hátt sem báðir aðilar geta sætt sig við,“ skrifar Frosti.

Pistill Frosta Loga­sonar í heild sinni:

Kæru vinir
Und­an­farið hef ég orðið var við mis­skiln­ing hjá fólki sem þekkir ekki til mála.

Hann er til kom­inn vegna fyr­ir­sagna fjöl­miðla í kjöl­far yfir­lýs­ingar minnar í mars í fyrra.

Þessar fyr­ir­sagnir gáfu í skyn að mis­tök mín hafi verið meiri en raun ber vitni meðal ann­ars vegna þess að yfir­lýs­ing mín var ekki nákvæm­ari en svo að það mátti mis­skilja hana.

Þar sögðu ein­hverjir að Frosti Logason hefði geng­ist við ásök­unum Eddu Pét­urs­dóttur.

Þetta er að hluta til rétt en stað­reyndin er sú að ég hef aldrei geng­ist við öllum ásök­unum hennar eins og margir virð­ast nú halda.

Í til­kynn­ingu minni sagð­ist ég taka fulla ábyrgð á hegðun minni, og að ég rengdi ekki að henni hafi liðið illa vegna þess sem ég gerði eftir að sam­bandi okkar lauk.

En þá fór ég í þrá­hyggju fyrir því að fá við­ur­kenn­ingu á „brotum hennar“ gagn­vart mér og tók að senda ítrek­aða tölvu­pósta til hennar á nokkra mán­aða tíma­bili.

Mér þykir það mjög leitt að ég hafi gripið til inni­halds­lausra hót­ana í þessum tölvu­póstum. Það er ótrú­legt hvað höfn­un­ar­kenndin getur beyglað vand­ræða­pésa af þeirri gerð sem ég var á þessum tíma.

Ég legg áherslu á að mér og mínum finnst ég vera á miklu betri stað núna en það er end­an­lega ann­arra að dæma um það.

En svo að það sé ítrekað hér þá hef ég sem sagt við­ur­kennt og beðist afsök­unar á að hafa sent óvið­eig­andi tölvu­pósta eftir að sam­bandi okkar lauk. Annað gerði ég ekki og ég hef ekki geng­ist við neinu öðru.

Ég lagði aldrei hendur á fyrr­ver­andi kær­ustu mína, beitti hana ekki and­legu ofbeldi á meðan á sam­bandi okkar stóð og ég gerði alls ekki neinar leyni­legar upp­tökur af kyn­lífi okkar eins og haldið er fram.

Ég hef allar götur síðan að við­talið við fyrr­ver­andi kær­ustu mína birt­ist lagt áherslu á að rétta til hennar sátt­ar­hönd.

Það hef ég bæði gert sjálfur per­sónu­lega og í gegnum fag­að­ila.

Þess vegna hef ég á sama tíma setið hljóður hjá og gætt mín að fara aldrei út í að greina rétt frá röngu í mál­flutn­ingi hennar opin­ber­lega. Mér hefur heldur aldrei fund­ist við hæfi að hengja upp okkar skítug­asta þvott frammi fyrir allra augum því hann á ekk­ert erindi til almenn­ings.

Ég ber enn þá von í brjósti að fyrr­ver­andi kærasta mín muni ein­hvern tím­ann vilja ljúka þessu máli með mér á þann hátt sem báðir aðilar geta sætt sig við.

Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að það er hennar réttur að gera það ekki þótt það valdi mér og mínum sárs­auka. Sátt­ar­vilji minn er hins vegar ein­lægur.

Frosti Logason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi