Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ögmundur um VG og Sjálfstæðisflokkinn: „Annar hvor flokkurinn svíkur alltaf sína kjósendur“

Ögmundur um VG og Sjálfstæðisflokkinn: „Annar hvor flokkurinn svíkur alltaf sína kjósendur“
Ögmundur Jónasson Mynd: YouTube-skjáskot

Ögmundur Jónasson segir í við­tali í hlað­varp­inu Ein pæl­ing að það hafi alltaf verið sín skoðun að vinstri menn ættu aldrei að starfa með Sjálf­stæð­is­flokknum. Hann segir að það hlyti alltaf að verða þannig, ef sjálf­stæð­is­menn og vinstri græn færu saman í stjórn, að þá væri annar hvor flokk­ur­inn að svíkja sína kjós­endur.

Aðspurður hvort Vinstri Grænir eða Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi svikið sína kjós­endur segir hann að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi fengið miklu meira af sínu fram í núver­andi stjórn­ar­sam­starfi. Áður hefðu vinstri­menn barist fyrir jöfn­uði og að sam­fé­lagið sem væri skipu­lagt út frá þeirri grunn­hugsun. Einnig var hægt að ganga út frá því að vinstri­menn væru and­vígir hern­að­ar­hyggju og hern­að­ar­banda­lögum. Nú væru menn aftur á móti að tala um að einka­væða veg­ina, hleypa fjár­plógs­mönnum í vasa almenn­ings á þjóð­veg­inum, hlaupa í fangið á NATO-for­ingjum og flytja her­gögn á átaka­svæði. Grunn­prinsipin séu ein­fald­lega horfin. Hern­að­ar­hyggjan, einka­væð­ingin og mark­aðs­hyggjan sé búin að taka yfir.

Í umhverf­is­málum segir Ögmundur Sjálf­stæð­is­flokk­inn einnig ráða ríkjum, með umhverf­is­ráð­herra sem hefur aldrei tekið þátt í þeim mála­flokki að und­an­skyldu því að mögu­lega gefa önd­unum brauð. Nú ætti hins vegar að virkja hverja sprænu og þetta væri gert í skjóli og með þátt­töku Vinstri­hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs.

„Það er annað með þessi umhverf­is­mál. Sko Sjálf­stæð­is­menn, Umhverf­is­ráð­herra, hann hefur ekki sinnt umhverf­is­málum mikið meira en að gefa önd­unum svona í gegnum tíð­ina.“

Ögmundur seg­ist í raun hafa miklar áhyggjur af vinstri­mönnum á Íslandi, sama um hvaða flokk væri að ræða. Það væri ekki hægt að mynda vinstri­st­jórn á Alþingi vegna þess að þar sé enga vinstri­menn að finna. Með þessu áfram­haldi væru stjórn­málin öll færð yfir á „hægra sullið“ eins og hann kallar það.

ÞH: „Í sam­bandi við vinstrið, útaf því þú ræðir það líka í bók­inni þinni, þú hefur áhyggjur af vinstr­inu með til­liti til þess að vera mis­viljug til þess að eiga sam­ræður og umræður um mál­efni. Hvar finnst þér vinstrið standa í dag? Með  til­liti til sam­ræðna, umræðna og vilja til að sjá skoð­ana­hliðar ann­arra?“

ÖG: „Mér finnst það vera illa statt, mjög illa statt. Og ég segi nú í lokakafl­anum í bók­inni að það er ekki hægt að mynda vinstri­st­jórn á Íslandi því að til þess þyrftu að vera vinstri menn á Alþingi, en ég kæmi ekki auga á þá.“Ögmundur segir á öðrum stað í við­tal­inu: „Það hefur verið þannig í póli­tík­inni, að það eru svona ákveð­inn grunnur sem skipt­ing stjórn­mála­flokka hefur byggt á…. Þetta er ástæðan fyrir því að ég hef alltaf verið því and­vígur, alltaf, að við sem erum á þessum kannti störfum með Sjálf­stæð­is­flokknum, ég hef alltaf verið and­vígur því. Ekki vegna þess að mér sé illa við Sjálf­stæð­is­menn, alls ekki. Ég vil respekt­era þeirra skoð­anir eins og ann­arra. En ef við færum saman í stjórn þá svíkur annar hvor sína kjós­endur.“ÞH: „Telur þú að það hafi gerst í þessu stjórn­ar­sam­bandi?“

ÖG: „Já, já, já heldur betur. Heldur betur. Og þá svíkur annar hvor. Og það sem var, þú gast gengið út frá því að vinstri­menn­irnir vildu jafn­að­ar­sam­fé­lag og vildu skipu­leggja sam­fé­lagið á þeim grunni. Þú gast líka gengið út frá því að þeir væru and­vígir hern­að­ar­banda­lagi, og hern­ar­hyggju. Þú gast gengið út frá því að gagn­að­il­inn væri á önd­verðu meiði í báðum málum. Og nú eru þessi grunn­prinsip horfin af vinstri­vængnum. Þau eru horfin. Þau eru ekki þarna. Það er verið að tala um að einka­væða veg­ina. Það er verið að tala um að hleypa fjár­magns­mönnum ofan í vasana á okkur á þjóð­veg­inum og all­staðar. Og það er farið að selja and­rúms­loftið hérna. Og bíddu, hvað eig­in­lega endar þetta? Menn eru hlaup­andi upp í háls­inn á NATO for­ingjum og eru harð­dræg­ustu NATO-sinnar sem finn­ast, flytja her­gögn á stríðs­vett­vang. Þetta er farið.“

ÞH: „Hvort hafa kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eða Vinstri grænna verið sviknir meira í þessu stjórn­ar­sam­bandi?“ÖG: „Ég held að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé að ná sínu fram miklu meira heldur en vinstri menn. Það held ég að sé ekki nokkur spurn­ing. Það er annað með þessi umhverf­is­mál. Sko Sjálf­stæð­is­menn, Umhverf­is­ráð­herra, hann hefur ekki sinnt umhverf­is­málum mikið meira en að gefa önd­unum svona í gegnum tíð­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi