Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásdís Olsen klessti á vegg og ákvað að breyta öllu: „Ég hef ekkert að skammast mín fyrir“

Ásdís Olsen klessti á vegg og ákvað að breyta öllu: „Ég hef ekkert að skammast mín fyrir“
Ásdís Olsen.

Ásdís Olsen seg­ist ekki kunna að rit­skoða sig og breyta sjálfri sér eftir áliti ann­arra. Ásdís, sem er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar, fer í þætt­inum yfir það að þora að fara eigin leiðir:

„Ég er frekar opin­ská og hef til­hneig­ingu til að segja bara það sem ég er að hugsa og stundum finnst sumum það of mikið. Ég er kannski í grunn­inn stundum „naive“ og það kemur fyrir að fólk í kringum mig segir að ég ætti að plotta meira og hugsa um það sem ég segi, en það er bara ekki ég. Ég verð alltaf sátt­ari og sátt­ari við að þora bara að vera alltaf ég sjálf og vera sama um hvað öðrum finnst. Ég hef ekk­ert að skamm­ast mín fyrir og átta mig stundum ekki á því af hverju við getum ekki bara tjáð okkur meira og þorað að vera skrýtin í augum ein­hverra. Líklega kemur þetta líka auð­veldar þegar maður er búinn að fyr­ir­gefa sjálfum sér og öðrum og losa sig við skömm. Ef að það sem að maður segir truflar aðra mjög mikið hefur það yfir­leitt ekk­ert með mann sjálfan að gera.“

Ásdís hefur um ára­bil kennt núvit­und­ar­hug­leiðslu og jákvæða sál­fræði. Hún segir að það ferða­lag hafi byrjað á því að hún klessti sjálf á vegg.

„Þetta ferða­lag byrj­aði eig­in­lega með því að ég fékk ofsa­kvíða­kast og þurfti að fara upp á bráða­mót­töku og hélt að ég væri að deyja. Þegar það kom svo í ljós að það var ekk­ert lík­am­legt að mér, neydd­ist ég til að skoða hvað það væri í hugs­unum mínum sem væri að valda því að tauga­kerfið færi í svona rosa­lega flækju. Á end­anum varð það eig­in­lega stærsta opin­berun lífs míns að sjá fyrir alvöru þessi varn­ar­kerfi, þar sem haus­inn á manni er að segja manni að maður sé í lífs­hættu í tíma og ótíma. Þegar ég fór svo á fullt í að læra um núvit­und og hug­leiðslu átt­aði ég mig á því að ég var búinn að læra enda­laust af hlutum í öllu mínu námi, en ekki um minn eigin huga og hvernig hann starfar. Ég man að þegar ég byrj­aði að læra þessa hluti hugs­aði ég með mér að þetta ætti að vera kennt í grunn­skólum og að það væri galið að við færum í gegnum allt þetta nám án þess að læra um okkar eigin huga og hugs­ana­kerfi.“

Ásdís seg­ist mikið hafa velt því fyrir sér hvernig væri hægt að breyta því kerfi sem við höfum komið okkur upp og seg­ist sann­færð um að það væri hægt að haga hlut­unum öðru­vísi, okkur öllum til hags­bóta:

„Ég held að þetta ætti að vera ein­hvern vegin allt öðru­vísi og við höfum villst af leið. Mér finnst ákveðin úrkynjun vera í gangi af því að við erum komin svo langt frá því sem er eðli­legt. Það er ein­hver vinnu­mark­aður og vinnu­tími sem stjórnar lífum okkar. Dag­vistun snýst um hvað hentar vinnu­mark­aðnum, skóla­kerfið er hannað eftir því hvenær for­eldr­arnir eru í vinnu og svo fram­vegis. Ég er mennt­un­ar­fræð­ingur og hef í mörg ár verið mjög upp­tekin af upp­eldis- og fjöl­skyldu­málum. Það er aug­ljóst að við höfum upp til hópa of lít­inn tíma til að vera frjáls og vera saman. Ég held að það sé á margan hátt stærsta verk­efnið okkar að skoða þetta og gera breyt­ingar. Meira að segja þegar við horfum á öll heilsu­far­s­vanda­málin og sál­ræn vanda­mál, þá er það bein­tengt því að við höfum ekki náð að sinna upp­eld­is­mál­unum nógu vel. Það er mín skoðun að ef við myndum hlúa betur að barna­fjöl­skyldum og gefa meiri tíma til að sinna börnum betur og gefa þeim meiri tíma, þá værum við að leysa mikið af öðrum vanda­málum. En það er ekki hægt að vera einn eða ein í þessu og þess vegna þyrftum við að taka okkur saman um að gera breyt­ingar.“

Ásdís segir að við séum komin á árið 2023 og það sé rétt að byrja að skoða hvort við getum ekki tekið upp nýjar leiðir

„Þróun manns­ins og sam­fé­lags­ins er komin miklu lengra og kerfin ættu að taka mið af því. For­eldrar mínir og for­eldrar þeirra voru í harðri lífs­bar­áttu og allir þurftu að standa sig bara til að upp­fylla grunn­þarfir. Þannig að það er ekki óeðli­legt að það hafi búið til hug­mynd­ina um að standa sig borg­ara­lega og önnur gildi í þá hátt. Nú eru bara aðrir tímar, þar sem við eigum að vera komin með mögu­leika á að taka skref í þá átt að opin­bera okkur sjálf meira, fara eigin leiðir og hætta að láta ótt­ann við grunn­þarf­irnar stýra alltaf för. Auðvitað þurfa margir góðan ramma og það er mik­il­vægt að láta hlut­ina ekki bara vera ein­hvern vegin, en við erum komin á tíma þar sem gervi­greind er að fara að leysa gríð­ar­lega margt af hólmi. Þá hlýtur að vera eðli­legt að við skoðum að breyta sam­fé­lags­kerfum sem mið­uð­ust við allt aðra tíma.“

Þáttinn með Ásdísi og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi