Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arnar Þór hjá Sölva Tryggva: „Það er rosalega sterkur undirtónn fasisma í gangi í samfélaginu núna“

Arnar Þór hjá Sölva Tryggva: „Það er rosalega sterkur undirtónn fasisma í gangi í samfélaginu núna“
Sölvi verður ekki ákærður

Arnar Þór Jónsson vara­þing­maður segir sterkan und­ir­tón fas­isma í sam­fé­lag­inu og að við verðum að vera á varð­bergi gagn­vart sam­runa stór­fyr­ir­tækja og stjórn­valda. Arnar talar í Podcasti Sölva Tryggva­sonar um þá þróun að stór­fyr­ir­tæki séu að verða stærri og stærri og hvernig það endar á að verða lýð­ræð­inu stór­hættu­legt:

„Í við­skiptum er þessi þróun líka í gangi. Undir merkjum sam­keppni fækkar stöðugt fyr­ir­tækjum og þau stóru verða stærri og stærri og í raun verður meiri og meiri fákeppni. Það eru fleiri og fleiri svið þar sem eitt, tvö eða þrjú fyr­ir­tæki ráða nán­ast öllu og í stað­inn fyrir að áherslan sé á verð­mæta­sköpun er áherslan á sam­runa og yfir­tökur svo að topp­arnir geti greitt sjálfum sér sem mestan arð. Þessi fyr­ir­tæki eru oft alþjóð­leg og þessi gló­bal­ismi sem er stundum talað um er í raun þessi mark­aðs­hyggja á sterum sem hirðir ekk­ert um hags­muni vinn­andi fólks. Svo eru þessir risar í raun orðnir hættu­legir lýð­ræð­inu af því að þeir vilja bara þagga niður í fólki sem er ekki sátt við þessa þróun og vill breyt­ingar. Yfirmenn þess­arra fyr­ir­tækja eru svo farnir að nota svipað tungu­mál og emb­ætt­is­menn og það eru merki um ákveð­inn sam­runa milli risa­fyr­ir­tækja og hins opin­bera. Það er eitt það hættu­leg­asta sem ger­ist og ein alvar­leg­asta mynd­birt­ing fas­isma þegar stór­fyr­ir­tæki og póli­tíska valda­kefið sam­ein­ast og talar sama máli gagn­vart almenn­ingi. Nú eru í gangi margar ráð­stefnur og fleira þar sem er verið að taka ákvarð­anir um að verja millj­örðum af skattfé borg­ar­anna í verk­efni sem eru bein­teingd alþjóð­legum stór­fyr­ir­tækjum.“

Arnar, segir að í svart hvít heims­mynd sé á upp­leið í bæði hægri og vinstri hlið­inni í stjórn­málum. Það sé hættu­leg þróun sem við verðum að vera vak­andi fyrir:

„Það er rosa­lega sterkur und­ir­tónn fas­isma í gangi í sam­fé­lag­inu núna. Það er ákveðin hóphyggja í gangi sem er með mjög lítið þol fyrir efa og and­stæðum skoð­unum. Það er engin stemmn­ing fyrir því að þú sem ein­stak­lingur leyfir þér að vera sjálf­stæður og efast um það sem hóp­ur­inn er að hugsa. Það má finna þessa þróun bæði á hægri og vinstri vængnum og hlut­unum er stýrt upp mjög svart hvítum og ekki mikið um sam­töl þar sem blæ­brigðin eru rædd. Það er alið svo mikið á ótta á þeim tímum sem við lifum núna og með því að hræra í pottum ótt­ans er fólk fengið inn í fylk­ingar. Við sjáum þetta bæði á vett­vangi stjórn­mál­anna og líka í fjöl­miðl­unum. Einn fjöl­mið­ill boðar eina vídd­ina og hinn bara eitt­hvað alveg öfugt. Ég vil hafa trú á fólki og ein­stak­lingum og að við getum talað okkur saman inn í nið­ur­stöðu með því að rök­ræða ólíkar skoð­anir. Þannig getum við lifað saman með ákveðið rými sem ein­stak­lingar, en samt í ákveð­inni sátt.“

Arnar er á því að verk­efni nútím­ans sé að ná aftur á þann stað að grunnur valds­ins sé hjá þegn­unum, en ekki vald­höfum og stofn­unum:

„Við­fangs­efnið núna er í mínum huga fyrst og fremst að fólkið minni hið opin­bera og stjórn­mála­menn stöðugt á að grunnur valds­ins er hjá borg­ur­unum. Allt rík­is­vald kemur frá borg­ur­unum, sem gefa ákveðnum aðilum umboð til að fara með valdið um ákveð­inn tíma. Þróunin bæði alþjóð­lega og á Íslandi núna er sú að það er sífellt meira verið að færa valdið frá ein­stak­lingum yfir til vald­hafa eða stofn­ana, sem jafn­vel búa ekki einu sinni í sama landi. Þannig er í raun verið að aftengja eðli­lega lýð­ræð­is­lega vald­dreif­ingu. Fyrir mér verðum við að vera mjög vak­andi yfir þessu núna, enda segir sagan okkur að það er full ástæða til þess. Maður heyrir dáldið mikið þessa hug­mynd núna hjá ungu fólki að við höfum ekki frjálsan vilja sem ein­stak­lingar. Með þeim rökum erum við ekki einu sinni sið­ferð­is­verur sem höfum alltaf val og berum ábyrgð. Ef fólk trúir því að við séum bara hormón og hvatir erum við í mjög veikri stöðu gagn­vart yfir­völdum.“

Arnar Þór segir áhuga­vert að á sama tíma og guð­last hafi verið gert leyfi­legt með því að afnema það úr hegn­ing­ar­lögum séu að verða til ann­ars konar trú­ar­brögð, þar sem þeir sem eru ósam­mála séu eins og trú­vill­ingar sem stundi nútíma guð­last:

„Við lifum núna á tímum þar sem má guð­lasta, en það var ekki fyrr búið að heim­ila það með lögum að það verður til önnur hug­mynda­fræði sem vill setj­ast í hásæti heil­ag­leik­ans sem má ekki gagn­rýna. Það má til dæmis guð­lasta, en það má ekki draga í efa lofts­lags­málin, þá ertu trú­vill­ingur og fleira í þeim dúr. Nú er orðið til nýtt guð­last og rétt­trún­að­ur­inn ber öll merki kirkj­unnar, nema án fyr­ir­gefn­ingar og umburð­ar­lyndis. Mann­skepnan virð­ist alltaf þurfa að trúa á eitt­hvað og hafa eitt­hvað til til­beiðslu og þá er eins gott að við veljum eitt­hvað gott. Eitthvað sem heldur í skefjum okkar verstu til­hneig­ingum til ofbeldis og valda­græðgi.“

https://www.youtube.com/watch?v=uhX1oJZuXHM

Þáttinn með Arnari og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi