Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Valgeir Skagfjörð minnist látins vinar: „Lífið reyndist Finna mínum erfitt“

Valgeir Skagfjörð minnist látins vinar: „Lífið reyndist Finna mínum erfitt“
Blessuð sé minn­ing Finna

Valgeir Skag­fjörð, leik­ari og tón­list­ar­maður minn­ist lát­ins vinar síns, Magnús Finn Jóhanns­sonar sem jarð­settur verður í dag.

Skrifaði Valgeir hjart­næma færslu á Facebook þar sem hann minn­ist Magnúsar Finns en þeir kynnt­ust er Valgeir og félagar hans fengu hann í hljóm­sveit sína.

Valgeir gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta minn­ing­ar­grein­ina í heild sinni. Hana má lesa hér fyrir neðan:

„Í dag verður Magnús Finnur Jóhanns­son vinur minn kvaddur hinsta sinni. Við kynnt­umst fyrst þegar við vorum rétt skriðnir yfir tví­tugs­ald­ur­inn. Hans var beðið með óþreyju því hann kom til greina sem söngv­ari í hljóm­sveit­inni sem við nokkrir félagar vorum að stofna. Hann var í hljóm­sveit­inni Stofnþel og fóru sögur af undra­verðum söng­hæfi­leikum hans. Ég hafði aldrei heyrt í honum en hafði heyrt því fleygt að hann gengi undir nafn­inu „Storm­brin­ger“.

Það var spennu­þrungið and­rúms­loft í bíl­skúrnum við Kárs­nes­braut 63 þegar hann ásamt Tryggva Hübner gít­ar­leik­ara úr Stofn­þeli komu inn um dyrnar. Við vorum að æfa frum­samið lag eftir mig sem hét: „I’m a man.“ Hann kom með sinn eigin hljóð­nema sem hann stakk í sam­band. Hann lærði lagið á ljós­hraða og röddin hans fór lag­inu vel. Æfingin gekk svo vel að það var ákveðið að hljóm­sveitin skyldi form­lega verða skipuð þessum fimm ein­stak­lingum sem þarna voru saman komnir. Hann var sann­ar­lega „Storm­brin­ger“. Við Finni (eins og hann var alltaf kall­aður) náðum vel saman og hann var eins og fæddur til að syngja lögin mín og öll hin sem okkur lang­aði til að hafa á efn­is­skránni. Tveimur mán­uðum síðar vorum við til­búnir að koma fram opin­ber­lega og það átti sér stað spreng­ing. Hljóm­sveitin Cabaret leit dags­ins ljós og var kosin „Bjartasta vonin“ það ár og Finni kos­inn efni­leg­asti söngv­ar­inn í brans­anum. Honum skaut upp á stjörnu­him­in­inn með stórum hvelli.Það er margs að minn­ast frá þessum árum en mest um vert er sú vina­átta og þau sér­stöku tengsl við Finni áttum. Þau vin­áttu­bönd héld­ust lengi og hann kom til okkar í hljóm­sveit­ina Tíbrá frá Akranesi mörgum árum síðar og þar áttum við gott tíma­bil líka. Við tókum upp plötu með lögum eftir mig og náðum vel saman eins og forðum. En síðan skildi leiðir og Finni vinur minn átti eftir að kneyfa ört sitt ljúfa líf á meðan ég sagði skilið við Bakkus og það slakn­aði á vin­áttu­böndum okkar. Lífið reynd­ist Finna mínum erfitt þrátt fyrir allar þær góðu gjafir sem hann hafði hlotið í önd­verðu. Hann háði harða bar­áttu við alkó­hól­isma og mikið sem hann reyndi að kom­ast inn á rétta braut. Ég get því miður ekki fylgt honum síð­asta spöl­inn en hugur minn dvelur við góðu minn­ing­arnar og sá mús­íkalski drengur sem Finni var á sinni tíð er nú lagður af stað í sína hinstu ferð í þess­ari jarð­vist og megi allar góðar vættir fylgja honum hvert svo sem hún liggur. Eftir sitja alls konar stef og lag­línur og hljómur söngraddar hans verður ávallt í minni mér.

Ég sendi ætt­ingjum hans og afkom­endum mínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur. Bless Finni minn og takk fyrir allar góðu stund­irnar.“

Mannlíf vottar einnig vinum og vanda­mönnum Finna samúð sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi