Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kvika leitar á náðir stóra bróðurs: „Hringja viðvörunarbjöllum hjá almenningi“

Kvika leitar á náðir stóra bróðurs: „Hringja viðvörunarbjöllum hjá almenningi“
Marinó G. Njálsson birti pistil í færslu á Facebook. Myndin er sam­sett

Stjórn Kviku banka hefur óskað eftir við stjórn Íslands­banka að sam­runa­við­ræður yrðu hafnar milli bank­anna tveggja. Marinó G. Njálsson birti í kjöl­farið pistil á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook. Hann spyr les­endur hvort þetta hringi við­vör­un­ar­bjöllum. Marinó bendir á marga sam­nefn­ara þess­arar bónar og þess sem átti sér stað fyrir hrun.„Lítill banki sem sér­hæft hefur sig í að sinna efn­aðri hluta lands­manna, leitar eftir sam­runa við banka að stórum hluta í rík­i­s­eigu. Á þetta að hringja við­vör­un­ar­bjöllum hjá almenn­ingi?Kvika banki tók fyrir nokkrum árum yfir sjóði sem „gull­drengir“ eft­ir­hrunsár­anna (GAMMA) höfðu byggt upp og nán­ast sett í þrot. Einn sjóð­anna fór úr því að vera verð­met­inn á 4,4 millj­arða kr. niður í 42 m.kr. á nokkrum mán­uðum árið 2019. Ég velti fyrir mér þá, hvort meira væri af úldnu kjeti í kötlum GAMMA og hvort það væri snið­ugt af Kviku banka að fara í þessa mjög svo sér­stöku björg­un­ar­að­gerð.Rétt um 3 árum og 4 mán­uðum eftir yfir­töku sjóð­anna leitar Kvika eftir skjóli hjá Íslands­banka.“Marinó telur fulla ástæðu til að hafa gætur á enda ekki ólík­legt að ólag sé í rekstri Kviku­banka fyrst þeir leyti á náðir stóra bróð­urs. Hann rifjar einnig upp umræð­inu sem átti sér stað fyrir hrun:„Fyrir hrun, þá mátti ekki ræða stöðu bank­anna nema á jákvæðum nótum og þeir sem dirfð­ust að rjúfa þau helgu vé fengu yfir sig hol­skeflu þar sem þeir voru sak­aðir um að trúa ekki á „snill­ing­ana“. Ég var svo sem ekk­ert sér­lega gagn­rýn­inn á bank­ana á þeim tíma, en vissi þó að þeir væru illa und­ir­búnir fyrir áföll. Hafði unnið úttekt á stöðu áætl­ana um rekstr­ar­sam­fellu (e. business continuity plann­ing) hjá einum þeirra og er óhætt að segja að nið­ur­staðan var ekki nógu góð. Þetta var árið 2006 og það liðu tvö ár áður en bank­anum fannst til­efni til að gera eitt­hvað í mál­unum og halda áfram með verk­efnið.“

Upp­hróp­aður vit­leys­ingi

„Andrés Magn­ús­son, læknir, kom svo til Egils í Silfrið snemma árs 2008 og viðr­aði áhyggjur sínar. Hann var úthróp­aður sem vit­leys­ingi, enda hvaða vit ætti læknir að hafa á rekstri banka. Hann reynd­ist bara hafa heil­mikið fyrir sér. Danske bank sendi frá sér skýrslu árið 2006 og var­aði við alvar­legri stöðu bank­anna. Erlendur sér­fræð­ingur skrif­aði skýrslu og ráð­herra í rík­is­stjórn­inni sagði hann þurfa að fara í end­ur­menntun. Og svo má ekki gleyma for­stjóra Kaup­hall­ar­innar, sem sagði íslenska banka­menn snill­inga og útlend­ingar ættu bara eftir að upp­götva leynd­ar­mál þeirra,“ ritar Marinó og bætir við að hafa verið þess viss um  áhætt­una sem fólst í yfir­töku bank­ans á sjóðum GAMMA árið 2019.„Hvort sú áhætta sé að koma í bakið á þeim núna eða við­skipta­líkan bank­ans, veit ég ekki, en Kvika banki væri fyrsti bank­inn til að óska eftir sam­runa, þegar allt er í lukk­unar vel­standi. Almenn­ingur, sem á um 43% í Íslands­banka, á því að hafa áhyggjur af þess­ari beiðni Kviku banka.“

Almenn­ingur, sem á um 43% í Íslands­banka, á því að hafa áhyggjur af þess­ari beiðni Kviku banka.“

Hugs­an­leg björgun Kviku

Marinó G. Njálsson vill ekki útloka gróða bank­anna á hugs­an­legum sam­runa en hann hafi þó á til­finn­ing­unni að verið sé að reyna að bjarga Kviku frá falli:„Væri staða bank­ans svo frá­bær, þá ætti hann að eiga auð­velt með að leita eftir meira hlutafé frá eig­endum sínum og þannig stinga sér í gegn um öld­una. Það er ekki eins og það sé skortur á fjár­magni í umferð á Íslandi, þegar hagn­aður skráðra fyr­ir­tækja á síð­asta ári var 434 ma.kr. (sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Ragnar Þór Ing­ólfs­son hefur tekið saman).“

Hvetur for­stjór­ann til heið­ar­leika

Marinó seg­ist síður en svo óska eftir falli bank­ans en hvetur for­stjóra Kviku banka til að tala hreint út um ástæðu við­ræðn­anna:„Ég vil hins vegar að hann nafni minn Tryggva­son komi heið­ar­lega fram og greini frá því hvers vegna í raun Kvika banki hefur fal­ast eftir við­ræðum við Íslands­banka um sam­runa. Báðir bank­arnir eru skráðir á markað og ég kann­ast ekki við neinar slíkar afkomutil­kynn­ingar til Kaup­hallar að staða Kviku banka sé ekki nógu góð.Þegar GAMMA féll, þá var það bygg­ing­ar­verk­efni sem hratt öllu af stað. Hvaða sjóður Kviku banka er í vanda núna? Voru fleiri fúlegg í söfn­unum sem bank­inn tók yfir frá GAMMA eða tókst honum að verpa einu slíku sjálfur? Banki með mik­inn metnað, eins og for­ráða­menn Kviku banka hafa ósjaldan talað um, fer ekki í sam­runa­við­ræður með það að mark­miði að hverfa af yfir­borð­inu, nema staða hans sé MJÖG alvar­leg og hann sér ekki fram á að geta bjargað sér sjálfur.Vona, að ég hafi rangt fyrir mér og allt sé eins og blóm­strið eina hjá Kviku banka. Þar til að bank­inn hefur lagt spilin á borðið, þá ætla ég samt að leyfa mér að gjalda beiðni bank­ans með var­hug.“Hér að neðan má sjá færslu Marinós í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi