Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þegar mér var „spoon-nauðgað“

Þegar mér var „spoon-nauðgað“

Ég hef orðið „nauðgað“ alls ekki í flimt­ingum, síður en svo enda um skelfi­legt sam­fé­lags­mein að ræða. Sjálfum hefur mér ekki verið nauðgað, ekki í klass­ískri skil­grein­ingu orðs­ins sem er eft­ir­far­andi: „Hver sem hefur sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök við mann án sam­þykkis hans ger­ist sekur um nauðgun.“ En ég hef lent í afar óþægi­legu atviki sem situr enn í mér þótt ég leggi þetta alls ekki á jöfnu við eig­in­lega nauðgun.

Ég kynnt­ist fyrir þó nokkrum árum finnskri konu á stefnu­móta­appi og add­aði henni fljót­lega á Messen­ger. Spjallið fjar­aði fljót­lega út, en nokkrum árum síðar sendi hún mér skila­boð og sagð­ist vera komin aftur til Íslands, í heim­sókn eftir að hafa flutt aftur heim til Finn­lands. Ég við­ur­kenni að ég mundi varla eftir henni, enda nokkuð langt um liðið og við höfðum aldrei hist og því hefur minn minn­is­lausi heili ekki vistað hana sér­stak­lega í göt­óttu minn­inu. Við ákváðum að hitt­ast og fara í bíó. Ég gerði henni þó grein fyrir því að ég hefði engan áhuga á neinu alvar­legu, ég væri enn að jafna mig eftir lang­tíma­sam­band mitt við barns­móður mína og væri ekki til­bú­inn í eitt­hvað meira en það sem á ensku kall­ast „casual dating“ sem felst í því að fara á jafn­vel nokkur stefnu­mót sem gætu endað með kyn­lífi en ekk­ert meira en það. Hún sagð­ist átta sig á því.

Eftir bíóið bauð ég henni heim sem hún þáði með þökkum. Ég end­ur­tók þá að ég vildi samt ekk­ert meira en bara kyn­líf, sem hún sagð­ist skilja. Við komum heim og byrj­uðum að kyss­ast í sóf­anum og ég verð að segja að munnar okkar smellpössuðu saman. Ég fann mig knú­inn til þess að segja enn og aftur að ég vildi bara kyn­líf, ekk­ert sam­band því ég vildi alls ekki særa neinn með því að gefa falskar vonir um ást­ar­sam­band. Hún hélt bara áfram að kyssa mig. Hún spurði hvort við ættum að færa okkur upp í rúm. Ég var mjög til í það, en sagði að ég myndi svo skutla henni heim, því ég gæti ekki sofið með konu enn þá, væri of til­finn­inga­lega skadd­aður eftir sam­bands­slit við ást­ina í lífi mínu. Þar fyrir utan þyrfti ég að mæta til vinnu klukkan átta næsta morgun. Hún sagði að það væri bara í fínu lagi.

Við lögð­umst í rúmið og nutum þar frá­bærs kyn­lífs í um tvær klukku­stundir og vorum bæði sátt að leik loknum. Eftir stutta hvíld stóð ég svo upp og byrj­aði að klæða mig í fötin og gera mig til­búin að skutla döm­unni heim. Hún hins vegar lá sem fast­ast í rúm­inu og bað mig að koma að kúra, sem er að sjálf­sögðu hinn eðli­leg­asti hluti en fyrir sam­bands­slitin og í dag, elska ég að kúra eftir kyn­líf, en á þessum tíma­punkti var ég það heftur á til­finn­inga­svið­inu að ég gat ekki hugsað mér það. Ég spurði hana hvort hún væri nokkuð búin að gleyma því að ég ætl­aði að skutla henni heim. Hún svar­aði: „Æ, má ég ekki bara gista? Þú getur svo skutlað mér að ein­hverju strætó­skýli í fyrra­málið svo þú náir að koma í vinn­una á réttum tíma.“ Ég reyndi að malda í móinn en lét svo að lokum undan enda var hún afar áfjáð um að gista. Ég ítreka þó að ég verði að fá að láta hana út á strætó­skýli á leið­inni í vinn­una, sem hún sam­þykkir, enda hafði hún átt þá hug­mynd.

Ég lagð­ist aftur upp í rúm og sneri mér frá henni enda vildi ég á þessum tíma­punkti bara fara að sofa. Hún hins vegar spurði hvort við ættum ekki að spúna (kúra í faðm­lögum), en ég sagð­ist ekki vera til í það, mér þætti það mjög óþægi­legt. Hún nauð­aði í mér og færði sig alltaf nær og nær. Ég sam­þykkti það aldrei, en að lokum var hún búin að taka þétt utan um mig og ég fann kald­ann and­ar­drátt hennar á beru baki mínu. Ég var á þessu augna­bliki kom­inn alveg á brún rúms­ins og leið hreint út sagt hörmu­lega. Ég svaf lítið þessa nótt enda sleppti hún ekki tak­inu af mér.

Daginn eftir dreif ég mig í fötin og kom okkur í bíl­inn. Þegar ég ætl­aði svo að stöðva bíl­inn við stætó­stoppi­stöð sem var í leið­inni í vinn­una, sem ég var að verða of seinn í. Nei, þá var það allt í einu ekki í lagi fyrir hina finnsku konu, sem spurði hálf­p­irruð hvort ég gæti nú ekki keyrt henni nær heim­il­inu sem hún dvaldi á. Ég gerði það vel pirr­aður og kom svo að minnsta kosti fimm mín­útum of seint í vinn­una fyrir vikið. Sú finnska fór svo frá land­inu nokkrum dögum seinna.

Næstu mán­uði tók við ein­hvers konar vísir að elti­hrella­hegðun hjá þess­ari nýju vin­konu minni. Hún fór að senda mér á hverjum degi ljós­myndir og teikn­ingar af hjörtum eða ljóðum um ást­ina. Ég svar­aði henni nokkrum sinnum þar sem ég ítrek­aði að þessi kynni okkar væru ekk­ert annað en skyndikynni, eins og ég hefði alltaf sagt, en hún svar­aði alltaf á mjög torskil­inn máta, oft með hálf­óskilj­an­legum ljóðum um ást­ina eða setn­ingum um að hún skildi það en … og svo eitt­hvað sem gaf hálf­part­inn í skyn að við ættum samt svo vel saman og ættum að vera par. Þetta gekk í ein­hverja mán­uði og olli mér alltaf jafn mik­illi kvíða­til­finn­ingu og minnti mig á þessa hræði­legu nótt þegar hún „spoon-nauðg­aði“ mér. Ég hætti að lokum alveg að svara henni og smám saman hætti þetta. Flestir hefðu senni­lega blokkað hana, en ég er svo með­virkur að ég kunni ekki við það, vildi ekki særa hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi