Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þjáning og sigrar Sigurlaugar

Sig­ur­laug Helga á að baki mikla þján­inga­sögu þótt hún sé aðeins rúm­lega fer­tug að aldri. Hún er eitt fórn­ar­lamba Covid. Sig­ur­laug er að vísu ein þeirra heppnu. Eftir að hafa farið tvígang í önd­un­ar­vél reis hún upp og sigr­aði dauð­ann.

Læknum þykir undra­vert að Sig­ur­laug hafi lifað af þann hryll­ing sem hún lýsir í for­síðu­við­tali við Mannlíf. Rétt eins og stór hluti mann­kyns þá smit­að­ist Sig­ur­laug af Covid-19. Í fyrstu benti ekk­ert til ann­ars en að hún myndi rísa upp frá til­tölu­lega létt­vægum veik­indum. En þetta fór á annan veg. Hún veikt­ist hast­ar­lega og mátti engu muna að hún næði ekki að kalla eftir hjálp. Hún var flutt á spít­ala og fljót­lega sett í önd­un­ar­vél. Þar var hún við dauð­ans dyr, dögum saman. Lífslík­urnar voru hverf­andi. En hún lifði af og reis nán­ast upp frá dauðum. Eftir langa end­ur­hæf­ingu náði hún bata. En sálin var í ólagi. Mánuðina á eftir vildi hún helst ekki lifa. Svart­nættið náði tökum á henni og hún lok­aði sig af. Óttinn við hið ókomna var ráð­andi og hún hafði svo sann­ar­lega ástæðu til að ótt­ast. Örfáum dögum eftir fer­tugs­af­mælið reið næsta áfall yfir. Hún fékk lungna­bólgu og var aftur sett í önd­un­ar­vél þar sem hún barð­ist enn fyrir líf sínu.

Sig­ur­laug Helga segir frá því í við­tal­inu að hún hafi sigr­ast öðru sinni á lífs­hásk­anum. Saga hennar er svo sann­ar­lega slá­andi. Hún komst lif­andi úr önd­un­ar­vél­inni og hóf strax end­ur­hæf­ingu. Tveimur mán­uðum síðar er hún búin að ná gríð­ar­legum árangri. Þvert á spár lækna er hún að nálg­ast það að vera full­frísk.

Nær­tæk­asta skýr­ingin á hinum undra­verða bata er sú að Sig­ur­laug Helga býr að því að hafa stundað íþróttir á árum áður. Hún var fim­leika­stjarna og lagði grunn að þeim styrk sem hefur bjargað henni frá þeim háska sem steðjað hefur að und­an­farið ár. Sá lær­dómur sem draga má af sögu hennar er að heilsu­rækt er gríð­ar­lega mik­il­væg til þess að geta betur mætt áföllum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi