Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ofurkonan Lara: „Ég á í stórri skuld við Ísland því landið bjargaði lífi mínu“

Ofurkonan Lara: „Ég á í stórri skuld við Ísland því landið bjargaði lífi mínu“
Lara De Stefano á sjúkra­beð­inu. Mynd: Facebook

Hin ítalska Lara De Stefano heill­að­ist af landi og þjóð er hún stund­aði nám á Íslandi á yngri árum. Fyrir nokkrum árum ákvað hún að flytja til lands­ins en tíma­setn­ingin gat vart verið verri. Það var rétt þegar Covid-far­ald­ur­inn dreifð­ist yfir heims­byggð­ina og setti allt í lás. Á sama tíma upp­götv­aði hún krabba­mein í brjósti.

Ísland bjargaði lífi hennar

Lara De Stefano, 33 ára ein­stæð kona, skrif­aði færslu á Facebook þar sem hún birti mynd af sér á sjúkra­beði og skrifar við hana þakk­ar­ræðu. Þakk­irnar fær Ísland og heil­brigð­is­starfs­fólk. Færsluna má lesa hér að neðan í íslenskri þýð­ingu.

„Ég á í stórri skuld við Ísland því landið bjarg­aði lífi mínu. Ég mun aldrei hætta að segja það. Ég hef verið að berj­ast við krabba­mein síð­ustu tvö ár vegna erfða­stökk­breyt­ingar sem kall­ast palb2 sem gerir það að verkum að lík­urnar á því að fá brjósta- og briskrabba­mein aukast gríð­ar­lega. Ég er ekki íslensk en þetta land hefur séð um líf mitt og séð um mig. Ég end­ur­tek; ég á í stórri skuld við Ísland og Íslend­inga vegna þessa. Ég verð að þakka lækn­unum, hjúkr­un­ar­fræð­ing­unum og öllu starfs­fólki Lands­spít­al­ans við Hring­braut. Þetta var erfitt ár því and­lega hliðin mín var einnig afar veik en vinnan, háskóla­námið og mörg frá­bær verk­efni sem ég hef tekið þátt í, gaf mér frá­bæran vilja til að lifa og vera alltaf með bros á vör. Takk Ísland!“

Lara De Stefano á sjúkra­beð­inu.

Slæm tímasetning

Mannlíf tók við­tal við Löru þar sem hún lá á sjúkra­beð­inu og jafn­aði sig eftir brjóst­náms­að­gerð.

„Ég vil endi­lega fá að bæta Ljósinu við þakka­list­ann og brjósta­stöð Land­spít­al­ans,“ sagði Lara í upp­hafi við­tals­ins og hélt svo áfram. „Saga mín er í raun alveg órú­leg því ég er ein á Íslandi og þrátt fyrir lyfja- og geisla­með­ferð og þrjár aðgerðir, hefur mér tek­ist að halda nægri orku til að opna fyr­ir­tæki mitt. Ég held að þetta séu frá­bær skila­boð til kvenna sem ótt­ast krabba­mein og hætta í vinn­unni.“

„Ég er ítölsk og kem frá Como-borg. Ég flutti til Íslands en ég stund­aði nám við Háskóla Íslands þegar ég var yngri og ég hreyfst svo af land­inu og menn­ing­unni,“ sagði Lara en hún er með BA-gráðu frá Ítalíu í lög­fræði en einnig lærði hún menn­ing­ar­miðlun. Á Ítalíu rak hún bíla­leigu og tísku­vöru­verslun í fjöldi ára.

„Ég ákvað á ákveðnum tíma­punkti að selja fyr­ir­tækið og ferð­ast um heim­inn í tvö ár. Fór til Kína, Ameríku, Ísrael og Jórdaníu. Og svo reyndi ég að lifa af vet­ur­inn á Íslandi árið 2918. Þegar ég kláraði heims­reis­una ákvað ég að flytja á nýjar slóðir og Ísland varð fyrir val­inu. Ég flutti hingað í febr­úar árið 2020. Því miður kom Covid líka.“

En Covid var ekki einu slæmu frétt­irnar.

„En á sama tíma upp­götv­aði ég eitt­hvað í lík­am­anum mínum, krabba­mein.“

Í fyrstu ætl­aði Lara að fara til Mílanó á Ítalíu í krabba­meins­með­ferð en lækn­arnir töldu það glapræði. „Lækn­arnir mínir sögðu að ég myndi taka stóra áhættu með að fara þangað því sumar deild­irnar á sjúkra­hús­inu í Mílanó höfðu þá þegar verið lok­aðar vegna Covid,“ sagði Lara en Covid-far­ald­ur­inn fór ansi illa með Ítalíu í upp­hafi hans.

Þannig að Lara ákvað að byrja með­ferð hér á landi. „Ég var mjög hrædd því ég tal­aði ekki tungu­málið og þekkti ekki heil­brigð­is­kerfið á Íslandi. En ég ákvað að fara í aðgerð­irnar og með­ferð­irnar til að bjarga lífi mínu. Ég fór í tvær aðgerðir á brjóstum og eftir að það upp­götv­að­ist að ég væri með palb2 erfða­stökk­breyt­ingar í mér sem fylgdi hærri líkur á brjósta- og briskrabba­meini. Þá fór ég í lyfja- og geisla­með­ferð 2020 til 2021. Ég fór einnig í horm­óna­með­ferð til að forð­ast þung­lyndi vegna með­ferð­anna.“

Ekkert eirðarleysi

En þrátt fyrir veik­indin ákvað Lara að vera ekki eirð­ar­laus. „Ég ákvað að byrja í masters­námi í við­skipta­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík. Svo ég skilji betur íslenska mark­að­inn og menn­ing­una. Ég stofn­aði fyr­ir­tæki sem flytur inn raf­magns og hybrit-bíla. Ég sel bæði bíla til bíla­sala en einnig beint til við­skipta­vina. Ég flyt aðeins bíla frá Ítalíu því við treystum hvoru öðru.“

Þá segir Lara að Ísland stefni á mjög mik­il­væg mark­mið um orku­skiptin sem þurfa að verða að veru­leika fyrir árið 2040. „Ég held að Ísland geti verið fyr­ir­mynd ann­arra þjóða í Evrópu hvað varðar orku­skiptin og þá sér­stak­lega hvað varðar raf­magns­bíla. Á Ítalíu gengur raf­magns­bíla­mark­að­ur­inn ekki því að raf­magnið er svo dýrt þar og vegna þess hversu erfitt er að hlaða bíl­ana. Þetta hefur hvatt mig til þess að flytja inn slíka bíla til Íslands. Ég elska að hjálpa fyr­ir­tækjum á Íslandi að stækka. Ég er að skrifa rit­gerð um orku­skiptin á Íslandi en því miður er það svo­lítið erfitt vegna heils­unnar.“

Lara fékk nýverið við­ur­kenn­ingu frá Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta vegna verk­efnis sem hún tók þátt í með fyr­ir­tæk­inu Sea Saver ehf. „Síðasta sumar tók ég þátt í verk­efni með Sea Saver ehf þar sem smíðuð var frum­gerð að tæki til að bjarga fólki úr sjó. Ég vann með frá­bæru liði sem sam­an­stóð af nem­endum frá hinum ýmsum deildum Háskóla Reykja­víkur. Þetta var í fyrsta skipti sem ég vann með Íslend­ingum og það hjálp­aði mér mjög mikið að skilja hvernig frum­kvöðlar á Íslandi hugsa hlut­ina en það er allt öðru­vísi en í ítal­skri menn­ingu. Í þessu verk­efni tókst mér að sam­eina þarfir Ítalíu, þar sem ég fékk tæki­færi til að ræða við yfir­menn í Ítalska sjó­hernum, og Íslands en ég tel það afar mik­il­vægt að byggja upp sterka rann­sóknar- og frum­kvöðla­teng­ingar á milli landa. Sea Saver ehf var á meðal sex í úrslitum keppn­innar og ég er mjög ánægð með það því verk­efnið hefur gríð­ar­lega mögu­leika.“

Lara og for­set­inn

En þetta er ekki eina frum­kvöðla­keppnin sem Lara hefur tekið þátt í í miðjum veik­ind­unum. „Ég mætti nýlega á Gul­leggið-keppn­ina og það var mjög áhuga­verður við­burður. Ég ætla að búa til sprota­fyr­ir­tæki sem myndi auð­velda orku­skipti með raf­knúnum öku­tækjum. Ég fékk fullt af jákvæðum end­ursvörum frá dóm­ur­unum og það er mér hvatn­ing til að halda áfram með hug­mynd mína með íslenska lið­inu mínu, eftir aðgerð­ina.“

Mannlíf óskar þess­ari ítölsku ofur­konu alls hins besta í fram­tíð­inni og skjótum bata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi