Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sema tjáir sig um dóminn: „Sigur fyrir samfélagið þegar ofbeldisfólk er dæmt fyrir gjörðir sínar!“

Sema tjáir sig um dóminn: „Sigur fyrir samfélagið þegar ofbeldisfólk er dæmt fyrir gjörðir sínar!“
Sema Erla Serdar

Sema Erla Serdar tjáir sig um dóm­inn yfir Margréti Frið­riks­dóttur sem gerður var heyr­in­kunn­ugur í dag; var Margrét, eins og Mannlíf greindi frá, dæmd í 30 daga skil­orðs­bundið fang­elsi vegna hót­ana er hún við­hafði gegn Semu Erlu:

Margrét Frið­riks­dóttir.

„Í ágúst árið 2018 fór ég til lög­regl­unnar til þess að kæra konu fyrir hót­anir, lík­ams­árás og hat­urs­glæp eftir að hún réðst á mig með sví­virð­ingum, morð­hót­unum og lík­am­legu afli fyrir utan veit­inga­stað í Reykja­vík. Nú, næstum hálfum ára­tug síðar(!), hefur konan verið sak­felld fyrir líf­láts­hót­anir og dæmd í 30 daga skil­orðs­bundið fang­elsi!“

Hún bætir við:

„Það er vissu­lega margt í máls­með­ferð yfir­valda sem er ábóta­vant og mik­il­vægt að ræða í þaula. Tíminn, aug­ljós­lega! Það er ólíð­andi að ofbeld­is­mál séu árum saman í kerf­inu. Það er fóður fyrir frekara áreiti og ofbeldi þegar ger­andi er ekki boð­aður í skýrslu­töku hjá lög­reglu í næstum eitt og hálft ár. Að það gleym­ist að bjóða brota­þola að leggja fram bóta­kröfu (ekki í fyrsta skipti).“

Sema Erla bætir því við að dóms­kerfið hér á landi „þvingar þolendur til þess að mæta ger­endum sínum í dóms­sal og sæta frekara áreiti. Van­þekk­ing á hat­urs­glæpum og hat­urs­orð­ræðu og áhrifum þess innan lög­regl­unnar og rétt­ar­kerf­is­ins, sem birt­ist meðal ann­ars í því að skýrslu­taka yfir ger­anda tók eina mín­útu sam­kvæmt gögnum máls og ekki var litið til fyrri „sam­skipta“ sem ein­kennd­ust af ára­langri hat­urs­orð­ræðu, per­sónu­níði og æru­meið­ingum í minn garð þegar málið var fyrst látið falla niður (ég fór með bunka af útprent­uðum ummælum þegar ég gaf skýrslu).“

Einnig að „skortur á skil­grein­ingu á hat­urs­glæpum í almennum hegn­ing­ar­lögum, sem umrædd kona ger­ist vissu­lega sek um, en erfitt er að ákæra fyrir ef það er ekki til í lögum? Þetta og margt annað í tengslum við þetta mál þarf að ræða og það verður örugg­lega gert.“

Sema Erla segir að end­ingu að „akkúrat núna ætla ég þó bara að leyfa mér að ná and­anum aðeins og fagna því að konan sem hefur áreitt mig frá árinu 2014 og beitti mig síðar lík­am­legu og and­legu ofbeldi hafi LOKSINS verið látin sæta ábyrgð fyrir gjörðir sínar!

Þetta mál hefur tekið veru­lega mikið á og verið erfitt fyrir mig og mitt fólk. Rétt­lætið sigr­aði þó (að minnsta kosti að ein­hverju leyti) að lokum! Þetta er ekki bara sigur fyrir mig heldur er það líka sigur fyrir sam­fé­lagið þegar ofbeld­is­fólk er dæmt fyrir gjörðir sínar!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi