Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sara Páls hataði sjálfa sig: „Ég drakk bara uppi í rúmi þangað til að ég missti með­vitund“

Sara Páls hataði sjálfa sig: „Ég drakk bara uppi í rúmi þangað til að ég missti með­vitund“
Sara Páls­dóttir er bar­áttu­mann­eskja.

Sara Páls­dóttir lög­maður og dá­leið­ari segir aðhún hafi verið komin algjör­lega á botn­inn í sjálfs­hatri; fíkn og kvíða er hún fann sáljósið og fann frelsið.

Í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar segir Sara sína sögu;  hvernig hún spyrnti sér upp af botn­inum og þangað til bat­inn kom:

„Ég var með góða menntun og út á við átti allt að virka. Við hengjum sjálfs­mynd­ina mjög oft á það sem við gerum og þannig var það hjá mér. Á meðan ég náði próf­unum, náði í menntun og leit vel út á papp­ír­unum gat ég verið full alla daga í al­gjörri af­neitun.

Svo rúll­aði maður bara þessum risa­stóra snjó­bolta á­fram,“ segir Sara og bætir við:

„Ég gat alveg lært þó að ég væri alveg sósuð, þannig að ég gat látið þetta virka mjög lengi áður en ég þurfti að gef­ast upp. Ég var með svo mikla skömm og stolt að ég hefði nán­ast frekar dáið en að byrja að segja nokkrum manni frá því hvernig mér raun­veru­lega leið. Á end­anum var þetta orðið þannig að ég drakk bara uppi í rúmi þangað til að ég missti með­vit­und. Ég drakk bara „dry“ á­fengi – var bara heima og fór ekki neitt.

Ég var í raun orðin al­gjör­lega rúm­liggj­andi af alka­hól­isma þegar ég loks­ins gerði eitt­hvað í því.“

Sara hefur tekið slag­inn við ýmsa djöfla er hafa hrjáð hana, og einn af þessum djöflum var átröskun:

„Ég var langt leidd af átröskun og var orðin alveg gríðar­lega veik. Ég man svo eftir einum morgni þar sem ég vakn­aði og fann hjart­slátt­inn orðin mjög hraðan og fannst ég bara vera að deyja og þá átt­aði ég mig á því að ég var í al­vöru á leið­inni að deyja ef ég gerði ekki eitt­hvað í mál­unum. Þarna kom fyrsta ljósið og ég á­kvað að berj­ast fyrir sjálfri mér og velja lífið.“

Hún leit­aði sér hjálpar – fór í meferð:

„Ég man þegar ég kom fyrst inn á Vog skildi ég tösk­una eftir úti í bíl þannig að ég gæti bara hlaupið til baka og ég var gríðar­lega hrædd um að sjá ein­hvern sem ég þekkti. Svo kom ég inn á Vog og þá var ég bara að hugsa um hvað ég væri í asna­legum inni­skóm. Þannig að meira að segja þarna var ég ekki hrædd um að ég væri að deyja úr alka­hól­isma, heldur var ég enn bara að hugsa um álit ann­arra. Þessi for­rit voru gríðar­lega sterk hjá mér. Það tók mig tals­vert langan tíma að verða edrú og svo eftir það þurfti ég að taka á átrösk­un­inni og fór í með­ferð á Hvíta Bandinu.

Ég sé núna að þarna var líf mitt byrjað að snú­ast við, en samt var eftir mikil vinna í að laga það sem hafði í raun ollið því að ég var með fíkn í á­fengi og sjálfs­h­atrið sem olli átrösk­un­inni.“

Eftir þessa miklu vinnu segir Sara að vinnan í að laga ræt­urnar að veik­ind­inum hennar hafi verið eftir:

„Það sat alltaf eftir þessi brotna sjálfs­mynd, ó­öryggið, þetta stans­lausa nei­kvæða sjálfs­tal og kvíð­inn. Það hélt bara á­fram að versna eftir að ég var hætt að drekka; fékk reglu­lega ofsa­kvíða­köst og van­líð­anin var mikil. Það var rosa­lega erfitt að líða þannig eftir að ég var orðin edrú. Ég hafði selt mér að það eina sem ég þyrfti að gera væri að hætta að drekka og þá yrði allt full­komið og þá yrði allt í lagi. En drykkjan var bara flótti frá sjálfs­h­atr­inu og því sem var þarna undir og það fór ekki neitt. Þannig að það að hætta að drekka var bara fyrsta skrefið.“

Sara bætir við að „ég hafði líka verið með vöðva­bólgur sem þarna urðu að krónískum verkjum og það gerði mig alltaf þreytt­ari og þreytt­ari; á end­anum var ég komin með sí­þreytu. Þá var ég hætt að drekka og reykja og hélt ég væri að lifa heil­brigðum lífs­stíl og það gerði þetta enn­þá erf­ið­ara. Mér leið stundum að­eins betur þegar ég hitti sjúkra­þjálf­ara eða þerapista, en það var alltaf bara mjög tíma­bundið og ég var farin að eiga veru­lega erfitt með að klára mig í gegnum ein­faldan vinnu­dag.“

Sara færir í tal að í hennar til­viki hafi bat­inn byrjað raun­veru­lega að koma er hún fór í dá­leiðslur og byrj­aði að hug­leiða:

„Ég byrj­aði að hug­leiða fimm mín­útur á dag og setja fók­us­inn á að ná bata. Fyrst þurfti ég að pína mig til þess að hug­leiða, þó að það væri svona stutt og ég fann að hug­ur­inn var alveg stjórn­laus. En smám saman hófst þetta stór­kost­lega bata­ferða­lag og með hjálp hug­leiðsl­unnar og dá­leiðslu fór al­vöru frelsi að koma smátt og smátt. Ég átt­aði mig á því að ég hefði verið upp­full af nei­kvæðri orku og á meðan ég los­aði hana ekki væri ég í raun bara að fara á­fram á hnef­anum. Ég fór að lesa allar bækur sem ég komst í um undir­með­vit­und­ina og fór bara ,,all in” og fór svo í kjöl­farið í nám í dá­leiðslu og lærði heilun.

Þegar maður talar um orku fara margir í vörn og eru ekki til­búnir að hlusta, en ef ég tæki míkró­fón­inn sem við erum að tala í og myndi smækka hann niður í sínar allra smæstu ein­ingar væru það orku­ein­ingar. Vísindi hafa verið að sýna fram á það að allt er orka. Líkaminn okkar er gerður úr orku­ein­ingum, hugs­anir eru orka og til­finn­ingar eru orka.

Við verðum að fara að nálg­ast þessa hluti úr þeirri átt líka.“

Sara nefnir að „þegar ég var að leita allra þess­arra hefð­bundnu lausna sem virk­uðu mjög tak­markað fyrir mig var eng­inn sem gat út­skýrt þessa hluti fyrir mér.

En smátt og smátt fór ég að gera mér grein fyrir rót­unum sem höfðu valdið vanda­mál­unum mínum. Ein rótin er sam­bandið sem við eigum við okkur sjálf. Í mínu til­viki hafði ég glímt við sjálfs­hatur sem birt­ist í sjálfs­á­sök­unum, sjálfs­niður­rifi og kvíða. Þegar við eigum í mjög ó­heil­brigðu sam­bandi við okkur sjálf verður til sárs­auki og af­teng­ing. Önnur rótin er svo þessi upp­safn­aða nei­kvæða orka sem ég hafði safnað inn í lík­amann yfir langan tíma með á­föllum, nei­kvæðum hugs­unum og til­finn­ingum. Svo er þriðja rótin ó­heil­brigt hugar­far og ef maður glímir við sí­þreytu til dæmis er það gjarnan vegna þess að hugar­farið er stjórn­laust og hug­ur­inn fær aldrei hvíld. Þessi nei­kvæðu hugar­fars­for­rit hafa á­hrif á lík­amann og þreyta kerfið.“

Sara segir frá því í við­tal­inu við Sölva hvernig hún fékk frelsi og bata frá verkj­unum, kvíð­anum og sjálfs­h­atr­inu; seg­ist hún alveg sann­færð um að allir geti fundið þetta frelsi:

„Ég vinn núna við að kenna fólki á tæki og tól til að fjar­lægja þessar rætur og breyta hugar­fari sínu, þannig að fólk fái varan­legt frelsi. Mín skoðun er sú að þetta frelsi sé í boði, sama hvort það er krónísk þreyta, kvíði, þung­lyndi eða sí­þreyta. Vinnan með nán­ast alla sem leita til mín endar alltaf í þessum þremur rótum og með því að vinna á þeim og breyta þeim byrjar frelsið að koma. Í gegnum mitt eigið bata­ferða­lag fékk ég sýn þar sem ég sá að mér var ætlað að hjálpa öðrum sem væru að glíma við það sama og ég hafði glímt við. Síðan þá hef ég verið að elta þessa sýn, allt síðan 2019.“

Sara segir að breyt­ingar hafi eðli­lega orðið á hennar dag­lega lífi:

„Fyrst hélt ég að ég gæti verið að starfa á­fram sem lög­maður, enda var ég að reka mína eigin stofu og gekk vel. Ég gerði það í á­kveð­inn tíma, en núna er dá­leiðslan, nám­skeiðin og fyrir­lestr­arnir orðin aðal­vinnan mín, enda finn ég að þetta er það sem mér var ætlað að gera. Ég finn að lög­mennskan á ekki lengur hjarta mitt og þá er ekki til­gangur með því að vera á­fram þar.“

Sara segir að end­ingu að það „getur tekið tals­verðan tíma að slíta sig alveg burt, enda geta mál tekið mörg ár ef þú ert búinn að taka þau að þér. En ef hjarta þitt er ekki lengur í hlut­unum ertu ekki að gera neinum gagn með því að halda þeim á­fram. Það er meira en nóg af góðum lög­mönnum. Ef maður finnur til­gang­inn svona sterkt á maður að elta það, enda er eng­inn betri en þú í ná­kvæm­lega því sem þér er ætlað að gera. En ef þú ert að keppa við fólk í ein­hverju þar sem hjarta þitt fylgir ekki, þá er mjög lík­legt að aðrir séu miklu betri en þú.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi