Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tóku upp aftöku á fyrrum Wagner-liða: „Áttaði ég mig á að þetta var ekki mitt stríð“

Tóku upp aftöku á fyrrum Wagner-liða: „Áttaði ég mig á að þetta var ekki mitt stríð“

Í nýju mynd­skeiði sem póstað var á hálf­op­in­berri Telegram-rás mála­lið­anna í Wagner-flokknum, sýnir það sem virð­ist vera morð á fyrrum með­limi hóps­ins.

Útlaga­frétta­mið­ill­inn rúss­neski Meduza segir frá því að nýtt mynd­skeið hafi nú birst á hálf­op­in­berri Telegram-rás Wagner-mála­lið­anna sem barist hafa í stríð­inu í Úkraínu og víða skilið eftir sig sviðna jörð, enda skeyta þeir ekki um alþjóða­lög og reglur í stríði. Í mynd­skeið­inu virð­ist sem Dmitry Yakushchenko, fyrrum fangi sem gekk til liðs við Wagner-hóp­inn en eftir þriggja mán­aða bar­daga í Úkraínu gafst hann upp fyrir Úkra­ínu­mönnum. Hið hrylli­lega mynd­skeið virð­ist sýna það þegar Dmitry er drep­inn með sleggju en fyrir um það bil þremur mán­uðum birt­ist svipað mynd­skeið­sem sýndi morðið á Yevgeny Nuzhin, sem einnig barð­ist fyrir Wagner.

Í mynd­skeið­inu sést maður sem virð­ist vera téður Dmitry Yakushchenko, sem sat áður í fang­elsi á Krím­skaga en gekk í Wagner-hóp­inn til að berj­ast í stríð­inu í Úkraínu. Hann gafst svo upp eftir fjög­urra mán­aða bar­áttu. Á Telegram-rásinni Grey Zone, sem er hálf­op­in­bera rás Wagner-liða, stóð að Yakushchenko hafi „sýktst af sama sjúk­dómi sem veldur því að maður missir með­vit­und í úkra­ínskum borgum, hvort sem það er Kænu­garður eða, í þessu til­viki, Dnipro, og vaknar síðar í kjall­ara við síð­asta dóms­fund þinn.“

Mynd­bandið sýnir mann sem seg­ist vera Dmitry Yakushchenko, en höfuð hans virð­ist teipað saman við haug af múr­steinum. Segist mað­ur­inn einnig vera frá Krím­skaga og að hann hafi áður setið inni. „Ég fór til að berj­ast með Wagner-hópnum. Þegar ég var hins vegar á víg­lín­unni átt­aði ég mig á að þetta var ekki mitt stríð. Í dag var ég úti á götu í Dnipro-borg, er ég var bar­inn í höf­uðið og missti með­vit­und. Þegar ég rank­aði við mér var ég í þessu her­bergi, þar sem þeir sögðu mér að nú yrðu haldin rétt­ar­höld yfir mér,“ sagði mað­ur­inn. Eftir það var hann ítrekað bar­inn í höf­uðið með sleggju, þó að myn­skeiðið sé nokkuð óskýrt. David Frenkel blaða­maður hjá Mediazona, hefur haldið því fram að mynd­skeiðið gæti verið falsað.

Í fyrri­hluta mynd­skeiðs­ins má sjá brot úr mynd­böndum sem tekin voru er Yakushchenko var í haldi Úkra­ínu­manna og hafði verið sýnt í sjón­varps­fréttum í nóv­em­ber 2022. Þar seg­ist hann hafa verið dæmdur í 19 ára fang­elsi og hafa afplánað hluta þess tíma í Saratov-hér­að­inu í Rúss­landi áður en hann skráði sig í stríðið til að finna „hverja þá glufu sem hann gæti […] til að sleppa.“ Að lokum sagð­ist hann hafa gef­ist upp gegn úkra­ínskum her­mönnum í Bakhmut-borg.

Fram kemur í rúss­neska fjöl­miðl­inum Agent­stvo að Yakushchenko hafi lík­leg­ast snúið aftur til Rúss­lands í fanga­skiptum 1. des­em­ber 2022. Sást hann í slíkum skiptum í sjón­varps­fréttum þar eystra.

Í nóv­em­ber 2022 birti Grey Zone rásin svipað mynd­skeið sem sýndi morð á fyrrum með­limi Wagner-hóps­ins, framið með sleggju. Síðan þá hefur stofn­andi hóps­ins, Evgeny Prigozhin og hans með­reið­ar­sveinar ítrekað notað sleggjur sem tákn fyrir mála­liða­hóp­inn í sínum áróð­urs­mynd­böndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta