Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjarnheiður fordæmir verkfall Eflingarfólks á hótelum: „Áróðursvélar Eflingar hamast linnulaust“

Bjarnheiður fordæmir verkfall Eflingarfólks á hótelum: „Áróðursvélar Eflingar hamast linnulaust“
Samn­inga­nefnd Eflingar fagnar.

„Fólkið sem rekur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækin er kallað öllum illum nöfnum og stillt upp sem ótýndum glæpa­mönnum, sér­stak­lega ef fyr­ir­tækin hafa náð að skila ein­hverjum arði – sem auð­vitað er harð­bannað og sví­virði­legt í augum Eflingar,“ skrifar Bjarn­heiður Halls­dóttir, for­maður Samtaka í ferða­þjón­ustu, um verk­falls­að­gerðir Eflingar gegn hót­elum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Grein hennar ber yfir­skrift­ina, Nú er nóg komið.

Bjarn­heiður for­dæmir fram­göngu Efl­ing­ar­fólks í aðsendri grein á Vísi.

„Áróð­urs­vélar Eflingar ham­ast linnu­laust – bæði nafn­laust og undir nafni – við að mála ferða­þjón­ustu upp sem þrælakistu þar sem ekki er hugsað um neitt annað en að maka krók­inn á kostnað þeirra lægst laun­uðu,“ skrifar hún.

Bjarn­heiður bendir á að svo virð­ist sem verka­lýðs­fé­lagið telji við hæfi að ráð­ast á atvinnu­grein sem sé nán­ast á hnjánum eftir að hafa gengið í gegnum tveggja ára barn­ing vegna Covid.

„Nú, á meðan greinin er enn á hnjánum eftir heims­far­aldur, finnst Verka­lýðs­fé­lag­inu Eflingu það frá­bær hug­mynd að ráð­ast á garð­inn þar sem hann er lægstur og höggva í ferða­þjón­ustu, smátt og smátt, þar til að hún lam­ast algjör­lega,“ skrifar Bjarn­heiður.

Grein Bjarn­heiðar í heild sinni á Vísi.

Nú er rétt ár liðið frá því að síð­ustu sótt­varn­ar­að­gerðum var aflétt á landa­mærum Íslands, eftir tveggja ára barn­ing og ólýs­an­lega erf­ið­leika allra í ferða­þjón­ustu. End­ur­reisn og við­spyrna grein­ar­innar hefur síðan verið öllum vonum framar, sem betur fer fyrir alla Íslend­inga. Gatið sem tekjur af ferða­mönnum skildi eftir sig í rík­is­sjóði var það stórt að end­ur­koma ferða­manna varð mik­il­væg­asta breytan í öllum hag­spám á Íslandi.

En Adam var ekki lengi í Paradís. Hinn nýi (eða öllu heldur gamli) skóli verka­lýðs­leið­toga þessa lands virð­ist leggja sér­staka fæð á ferða­þjón­ustu. Nú, á meðan greinin er enn á hnjánum eftir heims­far­aldur, finnst Verka­lýðs­fé­lag­inu Eflingu það frá­bær hug­mynd að ráð­ast á garð­inn þar sem hann er lægstur og höggva í ferða­þjón­ustu, smátt og smátt, þar til að hún lam­ast algjör­lega.

Áróð­urs­vélar Eflingar ham­ast linnu­laust – bæði nafn­laust og undir nafni – við að mála ferða­þjón­ustu upp sem þrælakistu þar sem ekki er hugsað um neitt annað en að maka krók­inn á kostnað þeirra lægst laun­uðu. Fólkið sem rekur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækin er kallað öllum illum nöfnum og stillt upp sem ótýndum glæpa­mönnum, sér­stak­lega ef fyr­ir­tækin hafa náð að skila ein­hverjum arði – sem auð­vitað er harð­bannað og sví­virði­legt í augum Eflingar. Það væri auð­vitað miklu betra fyrir starfs­menn að fyr­ir­tækin væru öll á hausnum. Í þessu sam­hengi er rétt að minna á það enn einu sinni, að lang­flest ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki á Íslandi eru lítil eða með­al­stór og rekin af venju­legu fjöl­skyldu­fólki.

Nái fyr­ir­ætl­anir og verk­falls­boð­anir Eflingar fram að ganga, þá líður ekki á löngu, þar til ferða­þjón­usta á öllu land­inu lam­ast. Ferða­þjón­usta byggir á sam­vinnu margra ólíkra fyr­ir­tækja, sem starfa í nokk­urs konar keðju – ef einn hlekk­ur­inn slitnar, þá er voð­inn vís. Erlendir ferða­menn munu afbóka ferðir sínar til lands­ins, gjald­eyr­is­tekj­urnar hætta að streyma til lands­ins, fólk missir vinn­una, verð­bólgan mun halda áfram að aukast og orð­spor áfanga­stað­ar­ins mun bíða hnekki. Er það það sem við viljum að ger­ist? Ætlum við að leyfa því að ger­ast?

Verkföll eru skil­greind sem ein af höf­uðóg­unum ferða­þjón­ustu – við hlið­ina á nátt­úr­ham­förum, stríðs­rekstri, far­sóttum og hryðju­verkaógn. Við höfum á allra síð­ustu árum þurft að kljást við ýmsar ógn­anir og þurfum á þessum tíma­punkti alls ekki á heima­gerðum ham­förum í boði Eflingar að halda.

Höfundur er for­maður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi