Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnari var sagt að pabbi hans hafi yfirgefið hann: „Ég geng ennþá með þá höfnunartilfinningu“

Gunnari var sagt að pabbi hans hafi yfirgefið hann: „Ég geng ennþá með þá höfnunartilfinningu“

Gunnar Hrafn Jónsson segir sam­band sitt við Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, eig­in­konu móður hans, ekki vera til staðar. Segir hann þær hafa sagt sér ósatt um ástæðu þess að faðir hans fór af heim­il­inu er hann var krakki.

„Nei, ég get nú ekki sagt að ég hafi lært nokkuð af henni. Hvorki klækja­stjórn­mál né nokkuð annað,“ sagði Gunnar Hrafn þegar Reynir Trausta­son spurði hann hvort Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir hafi ekki getað kennt honum eitt­hvað í póli­tík­inni en hann var um tíma þing­maður Pírata.

Samband hans við Jóhönnu hefur alltaf verið stirrt. „Það var alltaf allt svo við­kvæmt því það var logið svo mikið að mér varð­andi þeirra sam­band,“ sagði Gunnar Hrafn og átti þá við sam­band Jóhönnu og móður hans, Jónínu Leós­dóttur rit­höf­und. „Ég fékk ekk­ert að vita en ég var mjög ungur þegar það byrj­aði. En svo þegar ég fékk að vita, þá var búin til lyga­saga, til þess að milda höggið. Um það að pabbi hafi í raun farið frá mér. Hann hafi viljað fara til útlanda og búa erlendis. Sem særði mig alveg rosa­lega og ég geng ennþá með þá höfn­un­ar­til­finn­ingu. Og eftir það hafi mamma kynnst Jóhönnu. En svo kemur fram í bók­inni sem hún gefur út, Jóhanna og Jónína, að þær voru að halda fram­hjá í tölu­verðan tíma áður en pabbi vissi af því. En síðan skilur mamma við pabba og í raun og veru rekur hann að heiman. Og ég fékk ekk­ert að vita það fyrr en ég er kom­inn á þrí­tugs eða fer­tugs­ald­ur­inn, að pabbi minn hafi ekki farið frá mér. Það hefði gjör­breytt okkar sam­bandi í æsku, okkar pabba. Og okkar Jóhönnu, ekki að það hafi verið gott, það hefði verið ennþá verra, ef ég hefði vitað þetta.“

Aðspurður hvort það sé lítið sam­band á milli hans og Jóhönnu svarar Gunnar: „Það er ekk­ert sam­band. Ég ræði ekki við hana. Ég veit ýmis­legt upp á hana sem ég er búinn að segja að ég muni ekki upp­ljóstra fyrr en hún er fallin frá. En ég mun skrifa ævi­sögu þar sem ég mun segja mína hlið og hlið margra ann­arra sem hafa dílað við hana. Ég vil ekki nota orð eins og mútur en hún hefur mikið stuðn­ings­lið í kringum sig af því að hún hefur hjálpað fólki í krafti emb­ættis síns, meðal ann­ars mér. Hún fékk vinnu fyrir mig sem blaða­maður með einu sím­tali þegar hún var þing­maður eða ráð­herra.“ Reynir spurði Gunnar hvaða mið­ill hafi ráðið hann svarar hann: „Geturðu giskað hvern hún hringdi í? Það var Styrmir Gunn­ars­son. Hann sagði að það væri af því að afa­bróðir minn var Magnús af Mel. Það var afsökun hans fyrir því að ráða mig, ungan og óreyndan blaða­mann inn og hann leyfði mér að skrifa um hvað sem er. Ég sagði honum að ég vildi skrifa um Ísrael og Palest­ínu af því að ég var nýbú­inn að vera þar og hann segir mér endi­lega að gera það. Og ég skrifa grein alveg þvert á rit­stjórn­ar­stefnu Morg­un­blaðs­ins um Ísrael og Palest­ínu. Og hún var birt í heild sinni.“

Telur Gunnar Hrafn Jóhönnu aðeins hafa reddað honum vinn­unni af greiða­semi við móður hans. „Ég hef aldrei skilið þeirra sam­band, satt að segja. Öll mín æska …, þær hafa byrjað saman og hætt saman, og ég er ekki að ýkja, svona 30 til 40 sinnum. Og í hvert ein­asta skipti varð upp­nám á heim­il­inu. Ég var svo­lítið marker­aður af því sko, verður mamma hágrát­andi upp í rúmi næstu tvo daga. Er Jóhanna góð við hana eða er Jóhanna búin að detta í það?“ Sagði hann enn­fremur að Jóhanna hafi ekki þorað út úr skápnum því hún hafi verið svo hrædd við Jón Baldvin Hanni­bals­son, sam­flokks­manns hennar. „Jón Baldvin var búinn að segja henni að hann vissi af þessu og hann ætl­aði að eyði­leggja hana. “

Í nýjasta við­tali Mann­lífs­ins lætur Gunnar Hrafn Jónsson allt flakka í ein­lægu spjalli um sam­skipti hans við hryðju­verka­menn, stirrt sam­band hans við stjúp­móður sína, Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, tíma hans með Pírötum og sitt­hvað fleira. Hægt er að hlusta á við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi