Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Áttatíu ár liðin frá Þormóðsslysinu: „Eina vonin er, að hjálpin komi fljótt!“

Áttatíu ár liðin frá Þormóðsslysinu: „Eina vonin er, að hjálpin komi fljótt!“
Þormóður þegar hann hét Aldan.

Árið er 1943. Dagurinn 17. febr­úar. Veðrið er afar slæmt undan ströndum Reykja­nesskag­ans en vél­skipið Þormóður siglir með 24 far­þegar og sjö áhafn­ar­með­limi, frá Pat­reks­firði til Reykja­víkur en kemst ekki alla leið. Í dag eru nákvæm­lega 80 ár frá einu mann­skæð­asta sjó­slysi Íslands­sög­unnar.

Þormóður var skip frá Bíldudal en af þeim 31 sem fór­ust voru 22 þeirra frá Bíldudal. Meðal þeirra fórst sókn­ar­prest­ur­inn í þorp­inu, versl­un­ar­stjóri stærstu versl­un­ar­innar, tveir fram­kvæmda­stjórar og verk­stjóri hrað­frysti­húss­ins. Var því um að ræða gríð­ar­legt högg fyrir sam­fé­lagið á Bíldudal en miðað við fjölda íbúða þar árið 1943, var þetta nálægt því að 10 hver þorps­búi hefði lát­ist á einu bretti.

Eft­ir­far­andi texti er úr Morg­un­blað­inu 20. febr­úar 1943 en Mogginn fór ítar­lega yfir þetta hörmu­lega slys. Athugið að text­anum hefur ekki verið breytt en í þá daga var íslenskan oft skrifuð á annan máta en nú þekk­ist, auð­vitað.

M.s. „Þormóður ferst nálægt Garð­skaga með 30 manns

Tíu konur – eitt barn – tveir prestar – meðal þeirra er fór­ust

Þau átak­an­legu sorg­ar­tíð­indi hefir morg­un­un­blaðið að flytja, að M.s. „Þormóður“ frá Bíldudal hefir farist og með honum 30 manns, skips­menn og 23 far­þegar. Meðal far­þega voru 10 konur, eitt barn og tveir prestar. Skipið var að koma úr strand­ferð frá Húnaflóa og Vest­fjörðumi og var komið hjer suður í Faxaflóa. Á mið­viku­dags­kvöld sendi skipið frá sjer neyð­ar­kall; var þá leki kom­inn að skip­inu og hefir það senni­lega farist þá um kvöldið. Hefir fund­ist brak úr skip­inu skamt frá Garð­skaga og einnig eitt lík. Morg­un­blaðið hefir reynt að afla sjer sem glegstar upp­lýs­ingar um þetta átak­an­lega slys. Eft­ir­far­andi upp­lýs­ingar hefir blaðið fengið á skrif­stofu Gísla Jóns­sonar alþm., en hann var eig­andi skips­ins.

FERÐ „ÞORMÓÐS“

Ms. „Þormóður“ var leigt Skipa­út­gerð rík­is­ins, til strand­flutn­inga. Þessa síð­ustu ferð fór skipið til hafnar við Húnaflóa og sótti þangað rúm­lega 30 tonn af kjöti, sem flytja átti til Reykja­víkur. Á leið­inni frá Húnaflóa kom skipið við á tveim höfnum á Vest­fjörðum. Bíldudal og Pat­reks­firði.

Skipið fór frá Pat­reks­firði um hádegi á þriðju­dag. Á mið­viku­dags­morgun átti skrif­stofa Gísla Jóns­sonar tal við Pálma Loftsson for­stjóra Skipa útgerð­ar­innar. Var þá ákveðið, vegna þess að vonsku­veður hafði verið nótt­ina áður, að senda skip­stjór­anum á „Þormóði“ skeyti og spyrj­ast fyrir um, hvenær vænta mætti komu skips­ins til Reykja­víkur.

Loft­skeyta­stöðin hjer kall­aði skeytið út, en tókst ekki að ná sam­bandi við „Þormóð“ fyr en um kl. 7 á mið­viku­dags­kvöld. Kom þá svohljóð­andi svar frá skip­stjóra: „Slógum Faxabugt. Get ekki sagt um það núna (hvenær vænta megi skips­ins).“

Eftir mót­töku þessa skeytis setti Pálmi Loftsson sig í sam­band við björg­un­ar­skipið Sæbjörgu (sem var hjer úti í Flóa) og bað hana að standa í sam­bandi við „Þormóð“. Um svipað leyti og svar­skeytið kom frá skip­stjór­anum á „Þormóði“ bár­ust og tvö skeyti frá far­þegum, til ætt­iingja hjer í bænum og var í þeim sagt, að öllum liði vel og skipið væri vænt­an­legt næsta morgun.

NEYÐARKALL

Klukkan 22,35 á mið­viku­dags­kvöld barst Slysa­varna­fé­lagi Íslands svohljóð­andi skeyti frá skip­stjór­anum á „Þormóði“: „Erum djúpt út af Stafnesi. Mikill leki kom­inn að skip­inu. Eina vonin er, að hjálpin komi fljótt!“

Fram­kvæmda­stjóri Slysa­varna­fjelags­ins- gerði vita­skuld strax allar hugs­an­legar ráð­staf­anir. En vegna fár­viðris þá um kvöldið, var ekki við­lit að senda skip út til hjálpar.

LEIT HAFIN

Snemma á fimmtu­dags­morgun var hafin skipu­lögð leit að „Þormóði“. Tóku þátt í leit­inni aðal­lega tog­ar­arnir Gyllir, Arin­björn hersir og Rán, auk „Sæbjargar“. Enn­fremur flug­vjelar frá amer­íska flug­lið­inu og íslenska flug­vjelin (Örn Johnson). Leit­ar­skil­yrði voru ákaf­lega erfið.

BRAK FUNDIÐ. EINNIG EITT LÍK

Síðdegis á fimtu­dag fundu tog­ar­arnir Gyllir og Arin­björn hersir brak úr skipi ca. 7 mílur austur af Garð­skaga. — Gyllir fann einnig eitt lík af konu þar á floti. Símuðu tog­ar­arnir til Sæbjargar og báðu hana að koma á stað­inn. Var svo ákveðið að Sæbjörg færi til Reykja­víkur með líkið og tvö all­stór stykki úr skipi, sem þarna fund­ust. ,,Sæbjörg“ kom hingað kl. um 2 í gær. Hafði hún sent skeyti áður og bað fram­kvæmda­stjóra Slysa­varna­fé­lags­ins og kunn­ugan mann frá skrif­stofu Gísla Jónsson, að koma til móts við skipið á ytri höfn­ina. Sæbjörg hafði með­ferðis: Lík frú Jakobínu Páls­dóttur, konu Ágústar Sig­urðs­sonar, .versl­un­ar­stjóra, Bíldudal. Stórt stykki úr þil­fari og annað álíka úr byrð­ing. Vafa­laust hvorttveggja úr ,,Þormóði“. Talsvert af smærra spýtna braki var einnig í sjónum á sömu slóðum. Björg­un­arflek­inn hefir hins­vegar ekki fund­ist ennþá. Leitinni var haldið áfram.

REKALD Á STRÖNDINNI

Í gær fanst tals­vert af rekaldi á fjör­unum milli Sand­gerðis og Stafness. M. a. fanst aft­ur­hluti af björg­un­ar­bát, mat­væla­geymslu­kassi (sem var á þil­fari skips­ins), vatns­kútur, nið­ur­suðu­dósir (senni­lega úr björg­un­ar­bát; eða björg­un­arfleka). Haldið verður áfram leit á fjör­unum.

M.s. „ÞORMÓÐUR“

M.s. „Þormóður“ (áður ,,Alden“) var 101 tonn, bygt 1931. Fisk­veiða­fjel. Njáll í Bíldudal (Gísli Jónsson), keypti skipið 1942. Var þá nýbúið að setja í skipið 240 ha. díes­el­vjel, svo og nýja hjálpar vjel. Skipið var útbúið öllum full­komn­ustu tækjum, svo sem dýpt­ar­mæli, tal­stöð o. fl. — Hafði það skoð­un­ar­vott­orð til milli­landa­sigl­inga. Þetta var önnur ferð skips­ins eftir gagn gerða við­gerð, (klössun).

REKIST Á SKER?

Að lokum skal þess getið, að sjer­fróðir menn, sem í gær skoð­uðu stykki þau úr „Þormóði“, sem ,Sæbjörg“ kom með telja greini­leg merki þess, að .skipið hafi tekið niðri. Er því giskað á, að skipið hafi orðið of grunt fyrir og rek­ist á svo­nefnda FIös ,við Garð­skaga og brotnað þar í spón.

Skips­höfnin á >Þormóði«: Gísli Guð­munds­son skip­stjóri frá Bíldudal. Giftur, tvö börn (tengda­sonur Ágústs Sig­urðs­sonar versl­un­ar­stjóra og konu hans, Jakobínu Páls­dóttur, sem einnig fór­ust með skip­inu).
Bárður Bjarna­son stýri­maður, fæddur 1904, kvæntur, frá Ísafirði. Lárus Ágústs­son 1. vjel­stjóri, Kárastíg 13, Reykja­vík. Kvæntur á börn.
Jóhann Kr. Guð­mund­seon 2. vjel­stjóri, Laugaveg 169 A. Fæddur 1904. Trú­lof­aður. — Unnusta hans hefir mist þrjá bræður í sjó­inn.
Gunn­laugur Jóhanns­son mat­sveinn, frá Bíldudal. Fæddur 1914. Kvæntur Fjólu Ágústs­dóttur, er fórst með skip­inu, áttu eitt barn, og móðir Gunn­laugs, Salóme Krist­jáns­dóttir, fórst einnig með skip­inu. Bjarni Pjet­urs­son, háseti, frá Bíldudai. F. 1920. Ókvæntur.
Ólafur Ögmunds­son háseti, frá Flateyri. Fæddur 1919. — Hann var einka­barn Ögmundar Ólafs­sonar, báts­manns á „Súðinni.“

Farþegar, er fór­ust frá Bíldudal:

Ágúst Sig­urðs­son, versl­un­ar­stjóri hjá h.f. Maron á Bíldudal og Jakobína Páls­dóttir kona hans. Þau láta eftir sig 7 börn.
Þor­valdur Frið­finns­son verk­smiðju­stjóri rækju­verk­smiðj­unnar á Bíldudal, ungur maður, giftur Helgu, dóttur Sig­ur­bjöms Þor­kels­sonar, kaup­manns. Lætur eftir sig 2 börn.
Þorkell Jónsson, sonur Jóns Bjarna­sonar kaup­manns, verk­stjóri við hrað­frysti­húsið á Bíldudal og kona hans Sigríður Eyj­ólfs­dóttir og með þeim var 7 ára gam­all sonur þeirra Bjarni. Þau áttu annað bara yngra, sem ekki var með skip­inu.
Sjera Jón Jak­obs­son prestur að Bíldudal, sonur Jakobs Jóns­sonar frá Galta­felli Kvæntur. Átti 3 börn ung.
Bjarni Pjet­urs­son sjó­maður. Giftur, 2 börn.
Karl Eiríks­son sjó­maður. ógiftur.
Áslaug Jens­dóttir, 18 ára gömul. Dóttir Jens Her­manns­sonar, kenn­ara á Bíldudal.
Gísli Krist­jáns­son bíl­stjóri, ógiftur,
Óskar Jónsson, verka­maður. ógiftur,
Kristján Guð­munds­son sjó­maður af tog­ar­anum Baldri, og kona hans Indíana Jóns­dóttir
Jón Þ. Jónsson, giftur. 2 börn
Mál­fríður Jóns­dóttir.
Fjóla Ásgeirs­dóttir, kona Gunn­laugs mat­sveins á „Þormóði“,
Salóme Krist­jáns­dóttir, móðir Gunn­laugs mat­sveins,
Loftur Jónsson kaup­fjelags­stjóri. Giftur. 1 barn. Tengda­sonur Edvalds Möller á Akureyri,

Úr Dala­hreppi í Barða­strand­ar­sýslu:

Guðbjörg Elí­as­dóttir, ung stúlka, ógift,
Bene­dikta Jens­dóttir frá Selárdal.

Frá Pat­reks­firði:

Sjera Þor­steinn Krist­jáns­son prestur i Sauð­lauka­dal. Átti 2 börn, sem eru við nám.
Þórður Þor­steins­son skip­stjóri á b.v. Baldri Giftur, 2 börn.

Skips­höfnin var sjö manns. Farþegar 23, af þeim tíu konur og einn sjö ára drengur. Af þeim 30, sem fór­ust, voru 22 frá Bíldudal og meðal þeirra sókn­ar­prest­ur­inn, versl­un­ar­stjóri stærstu versl­un­ar­innar, fram­kvæmda­stjórar tveir og verk­stjóri hrað­frysti­húss­ins. Fóru þarna sem sagt flestir helstu for­víg­is­menn stað­ar­ins. — Mun aldrei jafn til­finn­an­legt mann­tjón hafa komið fyrir eitt kaup­tún að til­tölu við fólks­fjölda stað­ar­ins, þar sem í einu hverfa í sjó­inn nál. 10. hver maður kaup­túns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi