Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sema Erla opnar sig upp á gátt um líflátshótanir og rasísk skilaboð: „Þið munuð ekki sigra mig!“

Sema Erla opnar sig upp á gátt um líflátshótanir og rasísk skilaboð: „Þið munuð ekki sigra mig!“

Bar­áttu­konan kraft­mikla, Sema Erla Serdar, hefur orðið fyrir miklum kyn­þátta­for­dómum hér á landi í mörg ár.

Hún er orðin þreytt á ástand­inu og skrif­aði pistil um það, sem byrjar svona:

„Mikið rosa­lega er svona áreiti alveg gjör­sam­lega óþol­andi. Það er ógeðs­legt hvernig full­orðið fólk leyfir sér enda­laust að ráð­ast inn í líf mitt til þess að áreita mig og níð­ast á mér og upp­runa mínum í þeim til­gangi að nið­ur­lægja mig, brjóta mig niður og bara ganga frá mér!“

Sema Erla Serdar.

Hún segir að „í um ára­tug hef ég þurft að sitja undir for­dómum, menn­ing­ar­legum ras­isma, íslamó­fó­bíu, hat­urs­orð­ræðu, hót­unum og ofbeldi. Um mig eru skrifuð fjöldi ummæla á netið í hverri viku. Mér eru send skila­boð, ég fæ tölvu­pósta, það er hringt í mig. Mér er óskað dauða, mér er hótað ofbeldi og líf­láti, það er hvatt til þess að ég sé myrt, mér er hótað kyn­ferð­is­of­beldi, það er hótað að drepa fjöl­skyld­una mína. Það er ráð­ist á mig úti á götu.“

Sema Erla segir að „þetta enda­lausa áreiti og ofbeldi er afleið­ing af ára­tuga­löngu skipu­lögðu per­sónu­níði, æru­meið­ingum, lygum og áróðri um mig af hálfu ein­stak­linga, hópa og fjöl­mið­ils sem eiga það sam­eig­in­legt að vera þjóð­ern­is­sinnar, ras­istar og ný-nas­istar.“

Hún færir í tal að henni séu „gerðar upp ann­ar­legar hvatir, óheil­indi og alls konar rugl og það er fullt af fólki sem trúir því. Ástæðan? Ég er kona af blönd­uðum upp­runa sem vill að við tökum á móti fólki á flótta með mannúð og mann­rétt­indi að leið­ar­ljósi. Það er glæp­ur­inn sem rétt­lætir ofbeldi gagn­vart mér.“

Sema Erla hafði betur gegn Margréti Frið­riks­dóttur í dóm­sal, eins og Mannlíf fjall­aði um.

Sema Erla segir að hún sé í raun varn­ar­laus gagn­vart slíkum hat­ursá­róðri og höt­unum:

„Það á eng­inn að þurfa að lifa við svona ofbeldi árum saman en við sem það gerum erum algjör­lega varna­laus gagn­vart þessu! Að ein­hverju leyti er þessi hegðun enn sam­fé­lags­lega sam­þykkt. Það birt­ist meðal ann­ars í því að kerfið verndar ekki þolendur fyrir svona áreiti og þetta ofbeldi hefur ekki neinar raun­veru­lega afleið­ingar fyrir ger­endur. Afleið­ing­arnar geta hins vegar verið miklar og alvar­legar fyrir þolendur. Það er ekk­ert að grín að lifa með hat­urs­orð­ræðu, áreiti og menn­ing­ar­legan ras­isma sem hluta af þínu dag­lega lífi!“

Fyrir sjö árum tók Sema Erla „upp á því að birta skjá­skot af skila­boðum og ummælum sem skrifuð eru um mig. Það gerði ég í leit minni að rétt­læti og til þess að skila skömminni. Síðan þá hef ég birt margt af því sem ég fæ sent. Ekki allt, því sumt er þess eðlis að ég bara get það ekki. Þetta er það eina sem ég get gert. Þetta er mín leið til þess að skila skömminni. Í stað þess að sitja á henni, gera hana að minni, og láta hana brjóta mig niður. Því skömmin er svo sann­ar­lega ekki mín.“

Hún nefnir að end­ingu að „svona ógeðs­leg ummæli segja auð­vitað ekk­ert um mig en mjög mikið um þann sem finnst í lagi að stunda svona áreiti. Við ykkur sem hagið ykkur svona vil ég segja að á meðan þið getið ekki látið mig í friði mun ég halda áfram að skila skömminni, opin­bera ykkur og birta við­bjóð­inn og hat­rið sem þið sendið mér. Ég mun halda áfram að kæra ykkur sem beitið mig ofbeldi. Megið þið hafa ævar­andi skömm fyrir hegðun ykkar.

Þið munuð ekki sigra mig!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi