Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bæjarstjórinn sem sagði upp

Bæjarstjórinn sem sagði upp
Jón Björn Hákon­ar­son.

Jón Björn Hákon­ar­son sagði í dag starfi sínu lausu sem bæj­ar­stjóri Fjarða­byggðar; mun hann starfa áfram sem bæj­ar­stjóri næstu vik­urnar og ljúka störfum í mars, og vinna við að ráða nýjan bæj­ar­stjóra er þegar hafin.

Hann fjallar um málið á Facebook-síðu sinni og byrjar færslan svona:

„Dagurinn í dag felur í sér ákveðin tíma­mót í mínu lífi þar sem ég til­kynnti bæj­ar­ráði Fjarða­byggðar í morgun þá ákvörðun mína að segja upp starfi mínu sem bæj­ar­stjóri Fjarða­byggðar og í fram­haldi af starfs­lokum mínum í því starfi mun ég óska eftir leyfi frá störfum frá bæj­ar­stjórn Fjarða­byggðar út árið 2023.“

Jón Björn segir að „síð­ustu ár í starfi bæj­ar­stjóra hafa verið afar anna­söm, en á sama tíma ákaf­lega gef­andi. Ég hef frá árinu 1994 helgað sveit­ar­stjórn­ar­málum megnið af mínum tíma og ég lít stoltur og ánægður um öxl yfir þann tíma. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjót­andi að fá að vinna að fjöl­breyttum verk­efnum fyrir sam­fé­lagið okkar á þesum tíma, hvort sem er innan nefnda sveit­ar­fé­lags­ins, í bæj­ar­stjórn og nú síð­ast sem bæj­ar­stjóri.

Það hafa verið mikil for­rétt­indi að fá að vinna að málum sveit­ar­fé­lag­ins með fjöl­mörgum öfl­ugum og skemmti­legum kjörnum full­trúum úr hinu póli­tíska umhverfi hverju sinni. Það hefur ekki síður verið gef­andi að vinna með starfs­mönnum sveit­ar­fé­lags­ins.“

Hann bendir á að „sveit­ar­fé­lagið á mik­inn auð í sínum starfs­mönnum sem hefur verið gott að vinna með í gegnum tíð­ina. Þegar ég velti fyrir mér öllum þeim málum sem ég hef fengið að koma að þá veit ég eig­in­lega ekki hvað stendur þar upp úr því þetta hefur eig­in­lega allt verið jafn gaman að fá að vinna að.

Sam­ein­ing­arnar sem myndað hafa Fjarða­byggð tel ég hafa verið mikið gæfu­spor fyrir sam­fé­lagið allt. Öll sú mikla tvinnu­upp­bygg­ing sem hér hefur átt sér stað, sá árangur sem náðst hefur þó í sam­göngu­bótum, vel­ferð­ar­málin og breyt­ingar á þeim vett­vangi í auk­inni þjón­ustu við börn og fjöl­skyldur þeirra og almenna vel­ferð í Fjarða­byggð.“

Jón Björn nefnir að „allt eru þetta risa­vax­inn verkerfni en eins og alltaf þegar horft er í bak­sýn­is­speg­il­inn hefði maður viljað gera sumt öðru­vísi og annað betur en von­andi er það fleira sem eftir liggur sem hefur reynst sam­fé­lag­inu til góða eftir afrakstur sam­vinnu við svo margt gott fólk og íbúa hverf­anna okkar. Heilt yfir hefur, eins og ég sagði áðan, þessi tími minn á vett­vangi sveit­ar­stjórn­ar­mála í Fjarða­byggð verið afar skemmti­legur og gef­andi og ég er pínu meyr yfir að hafa fengið traust til þess­ara verka svona lengi.“

Hann segir frá því að hann hafi haft áhyggjur af orð­ræðu kjör­inna full­trúa, og hann er ósáttur hvað þetta varðar:

„Ég neita því þó ekki að síð­ustu miss­eri hef ég haft ákveðnar áhyggjur af því hvernig orð­ræða um störf kjör­inna full­trúa er að þró­ast og gagn­rýni og rök­ræða um mál­efni hefur þró­ast yfir á per­sónu­legar nótur á sam­fé­lags­miðlum og í almennri umræðu. Því þurfum við að breyta í sam­fé­lag­inu okkar til að gera störf kjör­inna full­trúa eft­ir­sókn­ar­verð til fram­tíðar litið. Það er eðli­legt að við höfum mis­mun­andi skoð­anir og lífs­sýn og rök­ræða fari fram um þær á eðli­legum vett­vangi án þess að per­sónum sé blandað þar inn á stundum ósmekk­legan hátt. Þannig viljum við að lýð­ræðið virki.“

Jón Björn segir að end­ingu að „næstu dagar fara í að ganga frá og koma málum sem ég hef verið að vinna í innan sveit­ar­fé­lags­ins í far­veg ásamt því að ljúka því sem ljúka þarf. Að því loknu mun ég taka mér góðan tíma til að hlaða batt­erýin og sinna vinum og fjöl­skyldu, í fram­haldi af því mun ég síðan fara að horfa í kringum mig eftir nýjum verk­efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi