Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arnar um áfangaheimilin: „Á mánudeginum þá kíki ég inn í herbergið hans og þá var hann látinn“

Arnar um áfangaheimilin: „Á mánudeginum þá kíki ég inn í herbergið hans og þá var hann látinn“
Skjáskot úr sjón­varps­við­tali: Arnar Gunnar Hjálmtýs­son Mynd: Ágúst B. Sverrisson

„Við erum bara þarna að sjá um hús­næðið í sjalfboða­vinnu. Það er nátt­úru­lega margt sem þarf að gera, það þarf að fara og kaupa allt sem þarf kló­sett­pappír og kaffi og sápu og allt sem er til staðar í því og fara með ruslið á hverjum degi og allt svona til­fallandi,‘‘ sagði Arn­ar Gunn­ar Hjálm­týs­son, for­stöðu­maður áfanga­heim­il­is­ins Betra líf, í sam­tali við Mannlíf í morgun. Mikil umræða skap­að­ist um áfanga­heim­ilið í kjöl­far elds­voð­ans sem kom upp í hús­næð­inu í síð­ustu viku og lýstu nágrannar yfir áhyggjum sínum. Arnari sárnar umræðan síð­ustu daga en sjálfur seg­ist hann, ásamt syni sínum og kær­ustu hans, sjá um hús­næðið í sjálf­boða­vinnu.

,,Sonur minn og kærasta hans sjá um þrif líka á sam­eign­inni. Íbúum þarna ber skylda til þess að sjá um að her­bergin þeirra séu þokka­lega snyrti­leg og taka ábyrgð á því,‘‘ segir hann. Í hús­inu eru þrjá­tíu her­bergi og hafa allir leigj­endur aðgang að sam­eign. Aðspurður hvað sé í sam­eign segir hann ótal margt falla þar undir. ,,Hvert her­bergi hefur aðgang að allri sam­eign­inni, það er eld­hús, gang­arnir, reyk­ing­ar­að­staða, þvotta­hús og sal­erni.‘‘

Leiguna segir hann ekki ger­ast ódýr­ari á Íslandi.  ,,Það er allur kostn­aður við húsið inni í leig­unni. Síðan er leigan þarna frá 120 þús­und upp í 140 þús­und en að öllu jafna eru þau(íbúar) með 80 þús­und í húsa­leigu­bætur að lág­marki. Ef þú ert öryrki þá færðu ofan á það heim­ils upp­bót og þá  ertu kom­inn með 120 þús­und. Þannig að sumir þarna eru í raun og veru í fríu hús­næði og það ger­ist ekk­ert ódýr­ara a Íslandi.‘‘ Arnar seg­ist greiða um 3,7 millj­ónir af hús­inu mán­að­ar­lega, þar af greiði hann 720 þús­und krónur í fast­eigna­gjöld. Sjö hund­ruð og tutt­ugu þús­und krónur þykir afar há upp­hæð en er það vegna þess að húsið er skráð skrif­stofu­hús­næði.

,,Af því að þetta er skrif­stofu­hús­næði. Þeir vildu ekki breyta þessu, þó ég reyndi að fá þá til þess að breyta því af því  að þetta er heim­ili hjá fólki, það býr þarna. Borgin vildi ekki breyta því þá eru fast­eigna­gjöldin um 80 þús­und á mán­uði og þeir eru ekk­ert æstir i að lækka skatt­tekj­urnar sínar. Þeir neit­uðu, þeir sögðu það er aldrei breytt fast­eigna­gjöldum. Ég fékk bara svar frá þeim,‘‘ segir hann og bætir við: ,,Fólkið sem er að borga leig­una þarna eru nátt­úru­lega þeirra skjól­stæð­ingar. Þeir eru i mörgum til­fellum að skaffa 186 þús­und á mán­uði. Svo fá þeir nátt­úru­lega sér­stakan hús­næð­is­stuðn­ing líka sem er 40 þús­und. Svo fá þau 40 þús­und frá HMS sem er ríkið þannig þá eru þau alltaf alla­vega með 80 þús­und. Þetta eru allt saman pen­ingar frá ríki og sveit­ar­fé­lögum. Við erum að borga niður skóla og leik­skóla og allt og svo er Reykja­vík­ur­borg líka að reka gisti­skýlið. Gisti­skýlið er nátt­úru­lega, eins og margir vita, það er ekk­ert geðs­legt að vera þar. Þú ert með fjóra til sex saman i her­bergi og þér er hent út klukkan tíu á morgn­anna og þú getur ekki farið að sofa því þá er búið að stela af þér sím­anum. Þetta segja mér bara menn sem að eru hjá mér sem hafa þurft að vera þar. Hjá mér fá þeir lykil af sér her­bergi og eng­inn annar kemst inn i það.‘‘ Arnar veit til þess að bið eftir félags­legu hús­næði hafi verið allt að níu ár.

,,Einn maður sagði við mig i fyrra sko, eldri maður, sem sagði: ,,Þetta er i fyrsta skipti i þrjú ár sem mér finnst ég eiga heima ein­hvers­staðar, þegar ég hef lykil af her­bergi.‘‘ Þetta er raun­veru­leik­inn fyrir þetta fólk. Þessi maður fékk síðan félags­í­búð en hann var búinn að bíða í níu ár eftir henni. Níu ár.‘‘

Áfanga­heim­ili hafa venju­lega þá reglu að fólk haldi sér edrú meðan það dvelur þar. Aðspurður hvers vegna Betra líf sé frá­brugðið segir Arnar úrræðið kall­ast Housing First.
,,Ég er með úrræði sem heitir Housing First þarna,‘‘ segir hann og bætir við að hann hafi hitt stofn­anda Housing First, Juha Kaakinen, árið 2019 þegar hann heim­sótti Ísland og kynnti úrræðið á fundi Vonar hjá SÁÁ. ,,Þremur árum eftir að þeir byrj­uðu þetta þá fækk­aði úti­gangs­mönnum um sjö­tíu pró­sent í Finn­landi. Ég sem sagt tók bara upp á því, að eigin frum­kvæði, að bjóða þeim að koma þarna inn með því skil­yrði að þau myndu panta í með­ferð. Þetta er allt saman fólk þó að það sé veikt,‘‘ segir hann en bið­tími fyrir fíkla sem hafa farið ítrekað í með­ferð segir hann bið­tíma geta verið allt að sjö til átta mán­uðir.

Þegar fólk fær inn í með­ferð, lætur það þig vita?
,,Eig­in­lega í öllum til­fellum þá skutla ég þeim upp á Vog. Það er bara þannig. Ekki bara það, ég þekki líka fullt af fólki sem er að vinna hjá SÁÁ og get reynt að ýta á það að það fái flýti­með­ferð.‘‘

Þrír ungir menn lét­ust í síð­ast­lið­inni viku úr ofneyslu fíkni­efna. ,,Í fyrra voru 52 ungir ein­stak­lingar sem dóu á Íslandi út af ofneyslu eit­ur­lyfja. Það er fyrir utan alla þá sem deyja úr alka­hól­isma langt fyrir aldur fram.‘‘ Ekki er langt síðan að maður lést á áfanga­heim­il­inu sem Arnar rekur en sá var orð­inn mjög veikur að hans sögn. ,,Hann deyr lík­lega á föstu­degi og við erum nátt­úru­lega ekki að fara inn i her­bergi hjá fólki reglu­lega, þetta er heim­ili þeirra ég þarf þá að biðja um leyfi og það eru bara per­sónu­vernd­ar­lög varð­andi það. Þessi maður var búinn að vera mjög veikur frá því hann kom til okkar, hélt engri fæðu niðri. Hann kom 5 ágúst,‘‘ segir hann og bætir við: ,,Þessi maður var fæddur 1968 og systir hans þakk­aði okkur kær­lega fyrir það að veita honum húsa­skjól síð­ustu daga ævi hans því að hann hafði ekki í nein hús að vernda. Hann var bara orð­inn skinn og bein og hélt engum mat niðri. Hann gat ekki drukkið og gat ekki, ekki drukkið. Það var farið með hann nokkrum sinnum niður á spít­ala og þeir gátu ekk­ert gert fyrir hann. Síðan á mánu­deg­inum þá kíki ég inni her­bergið hans vegna þess að her­bergis félagi hans við hliðin á honum sagði að hann hafi ekk­ert heyrt í honum eða rek­ist á hann fara a kló­settið eða neitt svona og þá var hann lát­inn. Og hann er ekki fyrsti sem að deyr hjá okkur því þetta er graf alvar­legur sjúk­dómur. ‘‘

Arnar hefur beðið um styrki allt frá því að hann opn­aði áfanga­heim­ilið en hefur enn enga styrki fengið.  ,,Í mann­rétt­inda­sátt­mála sam­ein­uðu­þjóð­anna, sem Ísland er búið að skrifa undir og sam­þykkja, segir að allir eigi rétt á fæði, klæði, hús­næði, lækn­is­þjón­ustu og félags­þjón­ustu. Ég er að reyna að hjálpa sveit­ar­fé­lög­unum því þau geta ekki hjálpað þessu fólki að redda einu af þessum atriðum, sem er hús­næði. Ég er bara ósköp venju­legur maður sem bara ofbauð ástandið.‘‘

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi