Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Yfirlýsing frá Breiðablik: „Gísli man ekkert eftir atvikum á vellinum eftir höfuðhöggið“

Yfirlýsing frá Breiðablik: „Gísli man ekkert eftir atvikum á vellinum eftir höfuðhöggið“

Eftir grein á vef­síð­unni fot­bolti.net sá knatt­spyrnu­deild Breiða­bliks sér ekki annað fært en að senda frá sér yfir­lýs­ingu.

Snýst málið um að leik­maður Breiða­bliks, Gísli Eyj­ólfs­son, sýndi ljós­mynd­ara vef­síð­unnar fot­bolti.net óvirð­ingu er hann gekk meiddur af velli; kom síðar í ljós að Gísli hlaut heila­hrist­ing og var langt frá því að vera líkur sjálfum sér.

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una frá Breiða­blik í heild sinni:

Flosi Eiríks­son.

Á síð­unni Fótbolti punktur net birt­ist fyrr í kvöld frétt þess efnis að Gísli Eyj­ólfs­son, leik­maður Breiða­bliks hefði sýnt Jónínu Guð­björgu Guð­bjarts­dóttur, ljós­mynd­ara mið­ils­ins, dóna­skap.

Vegna þessa er nauð­syn­legt að fara yfir mála­vexti.

Í leik milli Leiknis og Breiða­bliks fékk Gísli þungt höf­uð­högg. Þegar sjúkra­þjálf­ar­inn kom að honum inn á velli, var hann ekki með sjálfum sér, tal­aði hálf­sam­heng­is­laust og var óstöð­ugur á fæti. Á leið út af velli sýndi Gísli ljós­mynd­ar­anum óvið­eig­andi fram­komu og biður knatt­spyrnu­deild Breiða­bliks Jónínu afsök­unar á þeirri hegðun.

Gísli man ekk­ert eftir atvikum á vell­inum eftir höf­uð­höggið, hvorki orða­skiptum eða öðru.

Þegar hann var kom­inn upp á sjúkra­hús og var sagt frá atvikum, hringdi hann í ljós­myndar­ann og bað hana afsök­unar á sinni fram­komu. Hún tók við því og sam­þykkti afsök­un­ar­beiðn­ina.

Knatt­spyrnu­deild Breiða­bliks for­dæmir skrif frétta­rit­ara Fotbolta punktur net, sem ekki var á leiknum, af atvik­inu og af hversu mik­illi léttúð er fjallað um alvar­legt höf­uð­högg okkar leik­manns og þess að hann var sendur beint upp á spít­ala.

Full­trúar Breiða­bliks reyndu að útskýra máls­at­vik fyrir frétta­rit­ara eftir að skrifin birt­ust með afar litlum árangri.

Við fögnum frétta­flutn­ingi af fót­bolta og kveinkum okkur ekki yfir gagn­rýni, en svona skrif er ekki hægt að láta liggja.

Gísli Eyj­ólfs­son á það ekki skilið né nokkur annar leik­maður sem lendir í svip­uðum atvikum eða meiðslum.

Að lokum ítrekum við afsök­un­ar­beiðni okkar í knatt­spyrnu­deild Breiða­bliks til Jónínu.

Flosi Eiríks­son, for­maður knatt­spyrnu­deilar Breiða­bliks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi