Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brynjar í viðtali hjá Sölva: „Það er galin umræða að fólk megi ekki hafa ólíkar skoðanir“

Brynjar í viðtali hjá Sölva: „Það er galin umræða að fólk megi ekki hafa ólíkar skoðanir“
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson, sem er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist hafa þá reglu að hafa ekki uppi stór orð um fólk á net­inu, nema það sjálft sé að gera það við annað fólk:

„Ég stramma mig oft af og segi alls ekki allt sem ég er að hugsa á net­inu, þó að það sé ákveð­inn hópur sem er mjög ósáttur við mig. Ég kemst líka oft að því að ég hafi farið fram úr mér og þá sé ég að mér og tek skref til baka. Ég get alveg skilið að fólk verði stundum fúlt út í mig, en ég reyni að beina orðum mínum ein­göngu að þeim sem hafa sjálfir verið að hjóla í aðra á net­inu. Ég myndi aldrei hafa uppi sterk orð um fólk sem hefur ekki sjálft verið mikið að láta til sín taka á net­inu. Það kemur fyrir að mér blöskrar svo gjör­sam­lega ofstop­inn í ákveðnu fólki að ég lít svo á að það sé rétt­læt­is­mál að segja það sem mjög margir eru að hugsa, en fæstir þora að segja. Það sem pirrar mig einna mest er þegar frægt fólk ætlar að slá um sig og fá punkta fyrir dyggða­skreyt­ingar þegar það hefur ekki einu sinni kynnt sér málin. Svo er þetta fólk oft svo svaka­lega reitt og kallar fólk ill­virkja, ómenni og fleira í þeim dúr, bara ef fólk er ósam­mála. Ég reyni nú yfir­leitt að vera með léttan und­ir­tón þegar að ég er að atast í þessu fólki, enda gerir reiði manni ekk­ert gott.“

Brynjar seg­ist hugsi yfir því hvort umburð­ar­lyndi sé almennt á und­an­haldi miðað við umræður á milli fólks:

„Mér finnst umburð­ar­lyndi orðið mun minna en það var. Þetta er oft á tíðum orðið þannig að ef þú ert ekki sam­mála mér, þá ertu óvinur minn. Sú hugsun virð­ist vera orðin meira ríkj­andi, sem kann ekki góðri lukku að stýra. Við verðum að hafa rými til að vera stundum ósam­mála í frjálsu sam­fé­lagi. Ef fólk sest niður og ræðir málin kemst það oft að því að það ber í raun minna á milli en fólk hélt. En ef það er farið beint í þessa hugsun um að þeir sem eru ósam­mála séu óvinir og vont fólk er erfitt að finna leið­ina til baka.“

Brynjar seg­ist ein­læg­lega þeirrar skoð­unar að umræða um hat­urs­orð­ræðu sé komin á mjög skrýtnar brautir og við verðum að fara að staldra við, enda virð­ist ákveð­inn hópur vilja eigna sér hvað sé hat­urs­orð­ræða og hvað ekki:

„Menn eru farnir að víkka hug­takið um hat­urs­orð­ræðu svo svaka­lega að það á nán­ast að vera refsi­vert ef allir eru ekki á sömu skoðun og þú. Svo er þetta í raun ákveð­inn hópur sem vill eiga þessa umræðu og fá að ákveða hvað er hat­urs­orð­ræða og hvað ekki. Oft á tíðum finnst þessu fólki sjálfu alveg sjálf­sagt að ráð­ast á ein­stak­linga á net­inu og spyrja sig aldrei að því hvort það sé hat­urs­orð­ræða. En svo þegar fólk er á annarri skoðun en þessi hópur er það allt orðið hat­urs­orð­ræða. Þetta er ekki nýtt af nál­inni og var gert í gömlu ráðs­stjórn­ar­ríkj­unum. Það að tala gegn stjórn­völdum og meiri­hlut­anum var þá land­ráð og þá varstu að eyði­leggja sam­fé­lagið og þá var notað orðið hat­urs­orð­ræða eins og nú. Fyrsta skrefið var úti­lokun, svo var það fang­elsun og svo var það bara Síbería. Allir ein­ræð­is­herrar byrja smátt og eru alltaf að berj­ast fyrir mjög góðum mál­stað. Saga fas­ism­ans er saga af fólki sem í upp­hafi sagð­ist vera að berj­ast fyrir mjög göf­ugum mál­stað. En svo verður ofstop­inn bara meiri og meiri. Það er galin umræða að fólk megi ekki hafa ólíkar skoð­anir. Fólk hlýtur að sjá að sú þróun sem er í gangi er á margan hátt óhugna­leg ef hún fær að halda áfram óbeisluð og eng­inn stígur niður fæti.“

Þáttinn með Brynjari og alla aðra þætti Sölva má nálg­ast inni á www:sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi